Stúdentablaðið - 01.10.1995, Síða 18
18
HASKOLINN
U.1JLJL
Verkfræ&ideild:
JÚLÍUS SÓLNES
lúlíus er fyrrverandi þingmaður og
ráðherra fyrir Borgaraflokkinn.
Gera má ráð fyrir að hann muni
stokka upp í bílaflota forseta-
embættisins og kaupa jeppa til að
þvælast um hálendið, líkt og hann
gerði í umhverfisráðuneytinu.
Þannig getur hann verið í góðum
tengslum við alla þjóðina, ef
einhver vandamál koma upp, þá
þeysir hann á jeppanum yfir
hálendiö og leysir vandann.
„Júlíus hefur alla burði til ab verða
jjóður forseti. Hann er vel
menntaður og tungumálamaður
mikill. Hann hefur gaman af
ferðalöjmtm og einnig er skógrœkt
honum hugleikin, hvort tvegflja
nauðsynlegt fyrir forseta. Hann er
reynslumikili í heimsmálum og
alþjóðasamskiptum. Hann hefur til
að bera þá áraðni oyj ákveðni sem til
þarf en pjetur jafnframt verió
jliplóaþegar svo ber tmdir. Ókostir
hans virðast ífljótu brajjði enpir. Tel
cp hann verðugati fulltrúa til þess að
leiða þjóðina inn á nýja öld. Eg
skora því á háskólanema að veita
Júlíusi Sólnes brautargcngi í
komandi jörsetakosningum,a sagði
Þorvaldur Guðjónsson verk-
ffæðinemi.
Raunvísindadeild:
SIGMUNDUR GUÐBJARNASON
Hann er fyrrverandi háskólarektor
og naut virðingar í því starfi. Þegar
fjðlmiðlar hafa spurt hann hvort
hann hyggist sækjast eftir forseta-
embætnnu hefur hann verið dulur
og ekki viljað segja mikið. Ljóst er
að hann nýtur talsverðra vinsælda
og Stúdentablaðið getur sér þess til
aö hann verði með í slagnum á
næsta ári þrátt fyrir að vera á meðal
þeirra elstu sem hafa verið nefndir.
„Sigmundur hefur margt til að bera
sem g&ti prýtt forseta. Hann er
sterkur persónuleiki og traus-
tvekjandi. Hann hefur lands-
fóðurlega ímynd og mikla yfirsýn
yfir íslenska þjóðfélagið í gegnum
störf sín. Hann er einnig virtur á
sínu sriði hér heima og erlendis og
v&ri góður fulltrúi Islands á
erlendrigrund. Sigmundur er mjög
fróður og víðlesinn og hefur gegnt
trúnaðarstörfum þannig að menn
vita að hverju þeir ganga ef hann
býður sig fram,“ sagði Bergþóra
Hlíðkvist Skúladóttir nemi í
lífefnafræði.
Lagadeild:
SIGURÐUR LÍNDAL
Sá maður sem ætíð er kallaður til
þegar skeggræða þarf stjórnarskrá
íslenska lýðveldisins er Siguröur
Líndal. Hann hefúr manna mest vit
Bessastaði
Deildir HAskólans keppa um hásxtið á Bessastöðum. Nánast allar eiga fulltrúa í
keppninni um hver skuli taka við krúnu Vigdísar Finnbogadáttur. ICristján Guy Burgess
kannaði málið ogfékk álit nemenda forsetaefnanna A jtví hvernig pau k&mu til með að
standa sig í emb&tti forseta Islands
á íslenskum lögum og raunar flestu
öðru samkvæmt þeim sem þekkja
gerst til hans. Hann hefúr ekki
einungis embættispróf í lögfræði
heldur einnig cand. mag. próf í
sagnfræði. Laganemar styöja Sigurð
í embættið og hlakka til þess að sjá
hann í hópi erlendra þjóðhöfðingja,
á milli þeirra Kohls og Chiracs.
„Þaó skal Jyrst nefna að Sigurður
hefur náttúrulega verið forseti í nœr
30 ár, hjá Hinu íslenska bók-
menntafélagi. Sem lagaprófessor
þekkir hann betur en flestir aðrir
valdheimildir forsetnemb&ttisins og
takmörk stjórnarskrárinnar og
myndi eflaUst notf&ra sér þ&r
heimildir í ríkari m&li enfyrri tveir
forsetar. Sigurður er virtur meðal
lögfr&ðinga en þeir eru yfirleitt 3-4
í hverri ríkisstjórn. Hann hefði því
örugglega mikið persónulegt áhrifa-
vald á ráðherra. Mikil þekking hans
á sögu, bókmenntum og lögum
myndi eflaust koma honum vel hér á
landi og á erlendum vettvangi. Eg
tel þó að forseti eigi að standa utan
við stjómmáladeiíur til þess að
óeðlileg togstreita myndist ekki milli
forseta og þings og er því líklega
ósammála Sigurði í þeim efnum, “
sagði Einar Hannesson laganemi.
Félagsvísindadeild:
SIGRÍÐUR DÚNA
KRISTMUNDSDÓTTIR
Þrátt fyrir að hafa flúið kvenna-
hreyfmguna í faðm Sjálfstæðis-
flokksins hefúr Sigríóur Dúna verið
nefnd sem líklegt forsetaefni.
Mörgum líst einnig dæmalaust vel á
að fá hinn fjallmyndarlega fjármála-
ráðherra til að búa í glæsihíbýl-
unum sem hann hefúr fjármagnað á
Bessastöðum.
„Það er svolítið skemmtilegt að þú
skulir spyrja mig að þessu því ég var
búin að hugsa að Sigríður Dúna
v&ri ág&t í forsetaemb&ttið, áður en
hennar nafn kom inn í umr&ðuna.
Akademtskur ferill hennar er
ákjósanlegur þar sem hún hefur b&ði
fengið nasasjón af pólitík og - að
sjálfsögðu - mannfr&ði sem ég tel
vera einstaklega gott fyrir forseta
því menntunin gefur víðsýni og
fordómaminni lífssýn. Mér finnst
líka vera mikill plús að hún sé kona
og tíguleg og virðuleg kona eins og
forsetinn sem við höfum haft. Það er
náttúrlega mikilv&gast að hún vilji
sjálf verba forseti og það á eftir að
koma í Ijós,a sagði Sara Jónsdóttir
mannfræðinemi.
Viðskipta og
hagfræðdeild:
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON
í kosningunum 1980 bauö
Guðlaugur Þorvaldsson sig fram til
forseta og tapaði naumlega. Hann
hafði áður verið háskólarektor sem
fulltrúi viðskipta- og hagfræöi-
deildar og fetaöi Guömundur
Magnússon í þau spor. I ljósi þess
ætti hann að vera kjörinn
frambjóðandi.
„Það fer ákafiega vel á því að vclja
hagfr&ðiprófessor í þetta emb&tti.
Gtiðmtmdur er sérlega vel fallinn
til að gegna þessu emb&tti og hlýtur
að teljast kjörinn frambjóðandi með
tilliti til reyttslunnar. Hann sat í
nefnd sem danska ríkisstjórnin
skipaði til að kafa ofan í efnahags-
vandamál í F&reyjum sem &tti að
geta nýst vel til á þessum síðustu og
verstu tímum. Attk þess er ág&tt að
kjósa hann sem forseta úr þvt að
menn höfðu ekki r&nu á að gera
hann að seðlabankastjóra. Svo
verður auðvitað gaman að heyra
hann flytja áramótaávarp • tim
þróun verðbréfavístölunnar og lýsa
áhyggjum yfir minnkandi
jaðarframleiðni verkafólks í
samanburði við önnur lönd með
tilheyrandi línuritum,a segir
Sólmundur Ari Björnsson hag-
fræðinemi.
Heimspekideild:
PÁLL SKÚLASON
Þegar Vigdís Finnbogadóttir
svaraði fyrir ummæli sín um frelsið
í Kína á blaðamannafúndi sagði
hún að menn gætu spurt Þorstein
Gylfason eða Pál Skúlason um
hvort frelsið væri ekki afstætt. Þetta
lásu menn sem stuðníng víð þá
kumpána og töldu aö þess væri ekki
lengi að bíða að þeir tilkynntu um
framboð. Blaðið telur líklegra að
Páll verði fúlltrúi heimspekideildar í
slagnum. Hann er nú forseti
deildarinnar og rökstuddar kjafta-
sögur herma að hann sé að
undirbúa forsetaframboð - við
seljum það þó ekki dýrara en við
keyptum það.
jfiáll kemur náttúrlega til með að
taka við teórctíska þ&tti gróður-
setninganna af Vigdísi þar scm
hann hefur mikið stundað nátt-
úrusiðfr&ði. Ég vona þó að hann
verði betur undirbúinn í nýárs-
ávarpinu hcldur en hann er oft í
tímum. Það vcrður líka gaman að
fylgjast meb því hvort hann m&ti
með pípuna og totti hana fyrir
alþjóð þegar hann flytur ávarpið,a
sagði Valgeir Valdimarsson heim-
spekinemi.
Læknadeild:
HELGI VALDIMARSSON
Helgi Valdimarsson deildarforseti
Læknadeildar gæti verið kallaður
Hillary að kosningum loknum því
að líklegra er að hann verði
„forsetafrú“ en forseti þar sem
hann er kvæntur Guðrúnu
Agnarsdóttur lækni og fyrrverandi
alþingismanni. Hún hefur mjög
ákveöió verið nefnd sem ein sú
líklegasta til þess að taka við af
Vigdísi Finnbogadóttur. Guðrún er
reyndar einnig starfsmaður Há-
skólans þar sem hún vinnur á
rannsóknarstofnuninni á Keldum.
Ljóst er að ef Guðrún nær kosn-
ingu þá verður hún ekki ein á
forsetavakt þar sem Helgi er annars
vegar.
,Ég held að Helgi g&ti haft mikla
h&fileika til að bera til þess að verða
J'orsetafrú “ á Bessastöðum. Hann
hefur verið óaðfinnanlegur í
kl&ðabnrði og smekkvísi allan þann
tíma sem hann hefur kennt mér.
Hann g&ti líka verið s&tur á
myndum. Ég veit samt ckki hversu
liðt&kur hann er í laxveiði eða
gróðursetningum en hann v&ri
alveg örugglega mjög gsmartur“ við
hliðina á konunni sinni að n&la
fálkaorðunni í fólk, “ sagði Guðrún
Guðmundsdóttir læknanemi.
Hverjir eru þó eftir?
Ekki hefúr neinn verið ákveðið
nefndur sem fúlltrúi tannlækna- og
guðfræðideildar en þar eru þó
menn innanborðs sem gætu sómt
sér vel í hásætinu á Alftanesi. Einar
Sigurbjörnsson prófessor við
guðfræðideild er til dæmis sonur
Sigurbjörns biskups sem var í
hávegum hjá þjóðinni og gæti hún
örugglega vel sætt sig við hann eða
bróður hans Karl sem þjónar
Hallgrímskirkju.
Forseti tannlæknadeildar, Sigfús
Þór Elíasson, hefúr einnig kynnst
þjóðinni náið þar sem hann hefúr
ferðast um landið og kannað tann-
lieilsu nemenda í grunnskólum sem
margir eru nú komnir á kosninga-
aldur og minnast hans sem tann-
læknisins sem boraði ekki.