Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 14

Stúdentablaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 14
lauiaminur kynlanaa Evrópumet í launamun kynjanna Menntun kvenna og staða í þjóðfélaginu Fyrirtœpum tveimur úrum söfnuðust tugþúsundir kvenna saman í miðborg Reykjavíkur til að minnast þess að 30 ár voru liðin frá kvennafrídeginum 24. október, 1975. Islenskar konur voru ósáttar með stöðu sína ogkrafan var launajafnrétti kynjanna. Þœr vildu þannig sýna fram á verðmæti vinnuframlags kvenna fyrir islenskt atvinnulif). Þá sló klukkan 14:08 en það var áætlaður sá tími er konur væru búnar að vinna fyrir launum sinum—miðað við hlutfallsleg laun kvenna af launum karla. Frá Skólavörðuhoíti var lagt af stað í kröfugöngu niður á Ingólfstorg undir slagorðinu „Konur höfum hátt“ Svo mikil var ösin orðin á holtinu og Skólavörðustíg, í Bankastræti og Austurstræti að gangan varð að ryðja sér leið niður á Ingólfstorg þar sem útifundur hófst kl. 16. Talið er að allt að 50.000 manns hafi verið i miðhænum meðan á fundinum stóð, aðallega konur, en það erþriðjungur allra kvenna á landinu. Fjölmiðlar sýndu Kvenna- frídeginum mikla athygli og daginn eftir voru dagblöðin undirlögð af myndum og fréttum. Sjónvarpið var með beina útsendingu nær allan fundartímann og fréttir af vióburðinum birtust í þó nokkrum erlendum fjölmiðlum. En hvar eru konurnar nu? Kvennameirihliiti í skólum Nemendur í framhaldsskólum og háskólum landsins hafa aldrei verið fleiri en á haustdögum 2006. Tölur frá Hagstofu íslands sýna ennffemur að konur eru umtalsvert fleiri en karlar meðal nemenda bæði á framhaldsskóla- og háskólastigi. Síðustu tvo áratugi hefur nemendum á háskólastigi fjölgað mikið og árið 1984 voru konur í fyrsta sinn fleiri en karlar á þessu skólastigi. Konum í hópi nemenda hefur fjölgað hlutfallslega meira en körlum og staða kynja, hvað þetta snertir, því smám saman snúist við. KynjahlutfallHÍ Þegar kynjahlutfall við Háskóla íslands er skoðað sérstaklega kemur í ljós að 63,7% nemenda eru konur en 36,3% karlar. Konur eru nú fjölmennari í ölium deildum skólans nema í Verkfræðideild. Þar eru karlar 70%. Hjúkrunarfræðideild sker sig nokkuð úr en þar eru kvennemendur nánast allsráðandi. Jöfnust er skiptingin í Viðskipta- og hagffæðideild og lagadeildinni þar sem konur eru ríflega helmingur nemenda. Bilið breikkar aðeins í raunvísindadeild, en þar eru konur tæplega 60% nemenda. Þegar litið er til samfélagsins er annað hlutfall uppi á teningnum. Konur virðast ekki vera að skila sér í stjómenda- eða áhrifastöður í þjóðfélaginu í samræmi við þessar tölur. Skýring á þessu gæti, að hluta til, verið að íslenskur vinnumarkaður er mjög kynskiptur. Konur eru því oft að keppa innbyrðis um stjómunarstöður, til dæmis í umönnunargeiranum. Dr. Lilja Mósesdóttir prófessor í hagffæði segir þó fátt um svör sem byggja beint á rannsóknum. Hún bendir þó á að stjómunarstöður í einkageiranum séu sjaldan auglýstar, sem geri konum erfitt að færa sig milli geira á vinnumarkaði. Eins hefúr kæmnefnd jafnréttismála gefið atvinnurekendum ffítt spil hvað varðar kröfúr sem hæfústu einstakiingamir þurfa að uppfylla til að fá stöður. Lilja segir þetta þýða „að atvinnurekendur geti hagrætt fyrirfram starfskröfúnum til að tryggja að karl úr tengslanetinu sé hæfastur.“ Skráðir nemendur við Háskóla Islands haustið 2006 Konur Karlar Hlutfall kvenna í% Félags- vísindadeild 1.824 582 75,8 Guðfræði- deild 101 47 68,2 Hjúkrunar- fræðideild 517 19 96,5 Hugvísinda- deild 1.242 617 66,8 Lagadeild 327 294 52,7 Lyfjaffæði- deild 102 48 68 Læknadeild 320 178 64,3 Raun- VísindadeOd 548 396 58,1 Tannlækna- deild 53 22 70,7 Verkfræði- deild 250 583 30 Viðskipta- og hagffæðid. 626 578 52 Hagstofa Islands Menntiinarstig mannfioldans Þegar litið er á menntunarstig fólks 25-64 ára ffá árinu 2002, byggt á gögnum vinnumarkaðsrannsókna Hagstofúnnar, kemur athyglisverð staðreynd í ljós. Kynin standa jöfn að vígi þegar kemur að háskólamenntun, fimmtungur kvenna og karla em með þá menntun. Hlutfall karla með háskólamenntun er í kringum 22% hjá 25-54 ára en nokkuð lægra hjá 55-64 ára, eða 14%. Því yngri sem konumar em því hærra hlutfall þeirra er með háskólamenntun. Þetta kemur heim og saman við mikla sókn þeirra í háskólamenntun síðustu árin. Nýtt af nállnniP Samfelld skráning brautskráninga af hálfú Hagstofúnnar hófst skólaárið 1995/96. Arið 1985 útskrifaðist jafnt hlutfall kynjanna með háskólapróf, samkvæmt Hagtíðindum um Félags- heilbrigðis og dómsmál ffá október 2005. Þetta var í fýrsta sinn sem jafnmargar konur og karlar vom útskrifúð með háskólapróf. Á þessum tíma vom háskólamir tveir, Háskóli Islands og Kennaraháskóli Islands. Útskrifaðir njemendur úr Háskólum á Islandi 2004 Konur hafa verið í meirihluta útskrifaðra nemenda frá háskólum samanlagt hér á landi frá því að Hagstofan hóf samfellda skráningu árið 1995. Af útskrifúðum nemendum með meistara- eða doktorsgráðu vom karlar framan af í meirihluta. Konur hafa þó verið í meirihluta útskrifaðra nemenda af meistarastigi síðan 1997 með einni undantekningu. Árið 2003 vom útskrifaðir 113 karlar en 104 konur með meistaragráðu. ■ Kynjahlutfall útskrifaðra doktorsnema hefúr verið jafnara ffá 1995, en þar hafa karlar oftar verið í meirihluta. Konum með doktorsgráðu Ifá íslenskum háskólum hefúr þó fjölgað undanfarin ár. Hinu megin við borðið Upplýsingar um kynjahlutfall akademískra starfsmanna við Háskóla íslands er nú að finna á heimasíðu skólans. Þessi nýja starfsmannaskrá er frá I. desember 2006 og sýnir að akademískir starfsmenn skiptast þannig eftir kyni: Fastir kennarar við H.I. Konur Karlar Samtals Aðjúnkt 14 10 24 Lektorar 50 47 97 Dósentar 48 100 148 Prófessorar 34 160 194 Konur Karlar Samtals Með lýrstu háskólagráðu 1479 705 2184 Viðbótamám að lokinni fýrstu gráðu* 50 245 295 Meistaragráða 123 169 292 Doktorsgráða 7 7 14 *Dæmi um þetta nám er t.d. nám til kennsluréttinda. Hagstofa Islands Heimasíða Háskólans Hér snúast hlutfoll kvenna og karla nokkuð við. Þetta er að hluta hægt að skýra með framgangskerfi Háskóla íslands þegar kemur að ráðningu akademískra starfsmanna. Kennarar eru fyrst ráðnir inn sem lektorar en verða síðan dósentar og að lokum prófessorar eftir ákveðinn tíma. Það verður því fróðlegt að fylgjast með þróuninni næstu ár, hvort hún verði í samræmi við kynjahlutfall útskrifaðra nemenda frá skólanum. Enginn launamunur er milli kennara við HI kennurum þar sem launakerfið er gagnsætt. Hluturkvennaeykst Ný skýrsla um „fjöldatölur og hlutfall kynjanna hjá Háskóla íslands 1997 og 2007,“ sýnir að hlutfall kvenna er að aukast í háskólasamfélaginu. Aðalfúlltrúar Háskólaráðs eru tíu og þar sitja nú sex konur en fjórir karlar. Hlutur kvenna er einnig að aukast hægt og bítandi í nefndum Háskólaráðs. Þar hefúr þeirra hlutur aukist úr þrettán prósentum í 29% á síðastliðnum tíu árum. Hlutur kvenna i •formennsku nefnda háskólaráðs við Háskólann hefúr einnig aukist úr átján í 55% og konur eru nú 36% deildarforseta við skólann. Þessar tölur endurspegla þó 2005: engan veginn kynjahlutfall nemenda við skólann. Yfirlýst jafnréttisstefna er við líði í Háskólanum. Þar er í gildi skipulögð jafnréttisáætlun varðandijafnréttikynjannasem segir að jafnréttissjónarmiða eigi að gæta á öllum sviðum háskólastarfsins. Þessi þróun, að viðbættu gagnsæju launakerfi, ætti að stuðla að bættum hag kvenna innan veggja skólans á komandi árum. Þekkíngervald? En leiðir langskólamenntun kvenna til jafnréttis kynjanna? Er „aðeins tímaspursmál hvenær konur ráða lögum og lofum í samfélaginu?“ Þessari spumingu velta Þorgerður Einarsdóttir, Dósent í kynjafræði við Háskóla íslands, og Berglind Rós Magnúsdóttir, Uppeldis- og menntunarfræðingur og doktorsnemi við H.Í., fyrir sér í greininni Karlar í útrýmingarhættu? Um stöðu kvenna og karla í framhaldsskólum og háskólum. (Kynjamyndir í skólastarfi, 2005). Þær benda á „kynbundið námsval á háskólastigi og mismunandi virðingar- og valdastöðu karla- og kvennagreina.“ Jafnvel þó að konur séu nú fleiri í öllum deildum Háskóla íslands þá segja Þorgerður og Berglind Rós að „afrakstur menntunar sé ekki sá sami fyrir konur og karla. Menntun skilar konum ekki sambærilegri stöðu eða kjörum á vinnumarkaði og körlum.” Konur hafa til að mynda verið meiri en helmingur útskrifaðra nemenda úr viðskiptaffæði í yfir tíu ár, en eru afar fáséðar í stjómum og ráðum í fjármálaheiminum. Varðandi konur í læknisfræði segja þær ,,ffamgangshrað[i] kvenna í læknastétt sýni að þrátt fyrir að konur reynist hafa marktækt hærri einkunn en karlar á lokaprófi úr læknadeild síðastliðin 20 ár er hlutfall þeirra í yfirmannastöðxun á Landspítala - Háskólasjúkrahúsi að jafnaði þrefalt lægra en karla.“ Þorgerður og Berglind Rós sýna að þegar staða kynjanna í framhaldsskólum og háskólum er sett í samhengi við völd og áhrif kynjanna í samfélaginu kemur í ljós að viðmið, menning og gildismat er sniðið að körlum fremur en konum. Ein af ástæðum þess að konum gengur hægt að ná frama innan Háskólanna sé að „vísindin og aðferðir þeirra vom til staðar áður en konur fengu aðgang að vísindasamfélaginu og þær hafa þurft að tileinka sér þann arf.“ Menntun virðist því ekki duga til - hugarfarsbreytingu þarf til að efla jafnrétti. Konurogpólitík Konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt til Alþingis árið 1915, en fullan rétt á við karla árið 1920. Fyrsta konan tók sæti á þingi árið 1922. Næstu fimm áratugi var fjöldi kvenna á þingi aðeins ein, tvær eða engin. Árið 1971 voru þijár konur kjömar (5%) og þeim fjölgaði ekki aftur fyrr en árið 1983 er níu konur voru kjömar, sem svaraði til 15% þingmanna. Hlutfall kvenna meðal þingmanna fór svo hækkandi fram til ársins 1999 þegar 22 konur vom kjömar, 35% þingmanna. í kosningunum 2003 fækkaði þingkonum í 19 og hlutfal! þeirra af þingmönnum fór niður í 30%. Karlar skipa því enn mikinn meirihluta þingsæta. Konum fjölgaði hlutfallslega meira meðal frambjóðenda en kjörinna fúiltrúa á tímabilinu 1963-2003, eða úr 8% frambjóðenda árið 1963 í 50% árið 1995. Það ár voru konur 25% kjörinna fúlltrúa. Árið 2003 vom konur 42% frambjóðenda og 30% kjörinna fulltrúa. EhKertsamræmí Pólitískvöldkvennaeruíengusamræmi við völd karla og það hefúr ekki breyst með hækkandi menntunarstigi kvenna. í Alþingiskosningunum árið 2003 buðu sjö stjómmálaflokkar og stjómmálaöfl fram lista með frambjóðendum og fengu fimm þeirra kjöma fulltrúa á þing. Karlar vom í meirihluta frambjóðenda hjá öllum þessum aðilum og einnig meðal kjörinna fulltrúa þeirra. Hlutur kvenna meðal frambjóðenda var hæstur hjá Samfylkingunni 48% og einnig meðal kjörinna þingmanna eða 45%. Tölur vom svipaðar hjá Vinstri hreyfingunni - grænt ffamboð en lægri hjá öðmm flokkum. Konur í sveitarstiórnum Konur öðluðust kosningarétt til sveitarstjóma á landinu öllu árið 1909 en fýrstu áratugina fór lítið fýrir beinni þátttöku þeirra á þeim vettvangi. Árið 1950 voru sjö konur kosnar til setu í sveitarstjórnum og rúmlega 1.100 karlar, konur voru því innan við 1%. Þrjátíu árum síðar var hlutfall kvenna í sveitarstjómum orðið tólf% en 22% árið 1990. Hlutfall kvenna var hæst I síðustu kosningum árið 2006 eða 32%. Kjömir sveitarstjómarmenn í landinu em alls 628, þar af429 karlar, eða 68%, og 199 konur, eða 32%. Oddvitar í sveitarstjómum em 98, þar af em karlar 73 og konur 25. Konur em í meirihluta sveitarstjómarmanna í tíu sveitarfélögum á landinu en í sjö sveitarfélögum er engin kona meðal sveitarstjómarmanna. Stiórnír, nefndir og ráð Hlutur kvenna í stjómum, nefndum og ráðum ríkisins var þrjú% árið 1970, og karla 97%. Rúmlega 30 ámm síðar eða 2001-2003 var hlutfall kvenna 29%. Árin 2001- 2003 vom 1.014 konur og 2.519 karlar í nefndum hins opinbera. Karlar voru í meirihluta nefndarmanna í öllum ráðuneytum. AIls em ráðuneytisstjórar þrettán talsins. Til skamms tíma var ein kona í þeim hópi en þeim fjölgaði í tvær í september 2004. Konurímeirihliita Eftir kosningamar 1999 var ríkisstjómin skipuð þremur konum og níu körlum og fjórum konum og átta körlum við lok ársins þegar ráðherraskipti fóru fram. í ríkisstjórn sem skipuð var að loknum kosningum sumarið 2003 sátu þrjár konur og níu karlar á ráðherrastóli við þingslit 2007 vom konumar fjórar og karlamir átta. Alls hafa tíu konur gegnt starfi ráðherra hér á landi. Enn í dag þykir það merkisfrétt að konur séu í meirihluta ráðherra í ríkisstjóm lands en það er staðan í Finnlandi í dag. ísland skartaði reyndar lyrsta kvenforseta heims, én síðan em liðin mörg ár. Af 63 alþingismönnum á síðasta kjörtímabili vom 23 konur en 40 karlar. Menntun kvenna virðist ekki vera að skila sér á Alþingi íslendinga. Atvinnubátttaka breytist Á sama tíma og atvinnuþátttaka karla hefur verið nokkuð stöðug undanfama áratugi eða um 90% hefur atvinnuþátttaka kvenna tekið miklum breytingum. Tölumar em ekki algjörlega sambærilegar en gefa vísbendingar um þróunina. Árið 1920 var atvinnuþátttaka kvenna 35%. Stóra stökk kvenna varð síðan á milli 1960 og 1980 en á því tímabili má heita að atvinnuþátttaka þeirra hafi tvöfaldast, fór í 65% 1981. Hún hélt áfram að aukast og var komin í 75% árið 1991 og í 78% árið 2003. Það ár var atvinnuþátttaka karla 86%. 141 Stndentablaðið

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.