Stúdentablaðið - 01.05.2007, Qupperneq 21
Hljómsveitin
spá sem minnst í því núna.
Frosti: Sá markaður sem tók okkur
einna best var í Þýskalandi. Þar
var hlutunum hins vegar ekki fylgt
eftir sem skyldi. Þess vegna væri ég
persónulega tilbúinn að leggja meiri
áherslu á þann markað í framtíðinni.
ÞaNNIG AÐ ÞIÐ VITIÐ A ÞESSARI STUNDU
EKKI HVORT PLATAN MUNI KOMA ÚT
ERLENDIS?
Bjami: Nei, í raun og vem ekki. Við
erum fyrst og fremst ánægðir að
vera lausir undan þessum samning
við Sony sem var ekkert sérstaklega
góður.
Þröstur: Við emm nokkum veginn
í sömu spomm og við vomm þegar
Halldór Laxness kom út hér heima.
Umboðsmaðurinn okkar er að
leita að útgefanda erlendis sem og
plötufyrirtækið okkar Smekkleysa.
Eini munurinn er kannski sá að
við emm orðnir aðeins gáfaðri og
þekkjum betur inn á þennan bransa.
'Frosti: Ég tel það hins vegar afar
ólíklegt að platan verði ekki gefin
út erlendis. Smekkleysa hefúr
einfaldlega lagt of mikið fjármagn og
fyrirhöfn í hana til þess að íslenskur
markaður einn og sér geti staðið undir
henni. Enda er platan alltof góð til
þess að Islendingar fái einir að njóta
hennar.
Hvað STENDUR þá til hjá ykkur á
NÆSTUNNI. VERÐUR PLÖTUNNI EKKI
FYLGT VEL EFTIR?
Frosti: Jú, það stendur ekkert annað til
en að reyna fylgja henni eitthvað eftir
hérna heima. En í raun og vem vitum
við samt ekki hvemig það verður. Við
höfúm allir í nógu að snúast á hinum
ýmsu vígstöðvum og emm bara að
taka eitt skref í einu. Satt best að segja
höfum við ekki náð að einbeita okkur
mikið að mínus undanfarið.
Bjami: Við munum reyna að spila
eins og við getum í sumar. Enda er
platan fúll af sumarsmellum.
Þröstur: Þetta er sumarplatan í ár,
ekki spuming.
NÚ HEFUR TITILL PLÖTUNNAR THE
Great Northern Whalekill VAKIÐ
MIKLA ATHYGLI. HVAÐA VIÐBRÖGÐ
HAFIÐ ÞIÐ FENGIÐ VIÐ HONUM OG ER
EINHVER SÉRSTÖK ÁSTÆÐA SEM LIGGUR
AÐ BAKI NAFNGIFTINNI?
Frosti: Nafnið er í raun tilvísun í
tvennt. Annars vegar breiðskífu með
einni allra bestu metalsveit sögunnar,
Pantera. Þeir gáfú á sínum tíma út
plötuna The Great Southem Trendkill.
Við leyfúm okkur þessa skírskotun
ekki síst vegna þess að hljómsveitin
Pantera er komin á goðsagnakenndan
stall í rokksögunni. Hún er hætt
og verður aldrei meir. Hins vegar
emm við að vísa í það ástand sem
upp kemur þegar smáþjóð eins og
ísland hefúr hvalveiðar að nýju. A
tímum þar sem græn náttúmhyggja er
fyrirferðameiri en nokkm sinni fyrr.
Þarna á sér stað árekstur sem okkur
þykir í besta falli athyglisverður. Enda
þótt hljómsveitin sem slík taki enga
afstöðu í þessu máli virðist titillinn
hvarvetna vekja upp spumingar og
forvitni.
Þröstur: Sumir hafa kosið að túlka
hann á þann hátt að við séum
yfirlýstir hvalyeiðiandstæðingar. Það
er ekki rétt enda skiptar skoðanir á
hvalveiðum innan bandsins.
Bjarni: Þetta er einfaldlega frábært
nafn á plötu, titill sem tekið er eftir.
Að þessu sögðu kveð ég þá félaga en
það er greinilegt að mínus ætlar sér
stóra hluti með nýju plötunni.
Það er óhætt að mæla með The Great
Northem Whalekill. Ég legg því til að
fólk kynni sér plötuna á heimasíðu
hljómsveitarinnar www.myspace.
com/minus eða hreinlega láti það eftir
sér að kaupa hana. Ef Steingrímur
J. Sigfússon og Kristján Loftsson,
forstjóri Hvals, verða einhvern tímann
sammála þá er það í þessu máli.
Einar Bragi Jémsson
einajo@hi.is
Spurning?
Berglind Ósk Filippíudóttir
Heyrst hefur að Silvía Nótt
SÉ AÐ LEITA AÐ ÞÉR VEGNA
HÖFUNDARÉTTARMÁLA.
Æji, hún er algjört Fuck Face
og skunkesíusjúklingur. Þessi
geðsjúklingur er búinn að elta mig
á röndum alveg frá því ég skapaði
Silvíu Nótt.
HeLDURÐU AÐ BRÓÐIR ÞINN VERÐl
NOKKUÐ OFBELDSIFULLUR EF ÉG KEM
HEIM TIL HANS?
Hann er vanur að beita gesti harðræði
þessi örfáu skipti sem fólk kemur í
heimsókn.
Hvar á hann heima?
Veistu hvar Kringlan er?
JÁ
Já það er ekki þar, en ég veit ekki
hvort það sé sniðugt að þú heimsækir
hann miðað við fyrri kynni.
ÞÁ FINN ÉG BARA HEIMILISFANGIÐ
SJÁLFUR.
Birgir Freyr Birgisson
Sæll Birgir, má ég spyrja þig út f
KOSNINGARNAR?
Þetta er svolítið þreytt en þú mátt
spyrja ef þetta er síðasta skiptið sem
þú spyrð mig!
HVAÐA FRAMBJÓÐANDA AF SAMA KYNl
HEFÐIR ÞÚ HELST VIUA SOFA HJÁ?
HVERSKONAR HÁLVITA
SPURNING ER ÞETTA?!
DRULLAÐUR ÞÉR ÚT EÐA ÉG
TEK ÞETTA OG
TREÐ ÞVÍ UPPÍ ...!!!
N2E
TONASTOim
ÓþARFI AÐ ÆSA SIG, ÞETTA ER BARA
SAKLAUS SPURNING HEFURÐU KANNSKl
EITTHVAÐ AÐ FELA?
AAAAARRRRRRRGGGGG!
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími: 552 1185* www.tonastodin.is