Listviðir - 07.04.1932, Síða 7

Listviðir - 07.04.1932, Síða 7
7. apríl 1952 £ 1 s t v i ð i r þótt það áður hefði verið ætlun mín að gera það að atvinnu minni að mála andlitsmyndir“. Þegar hér var komið vorum við komnar inn á vinnustofu Miss Brahams og meðan ég; var að hlusta á frásögn hennar um skólaárin, renndi ég augun- um eftir liillunum, sem voru í stofunni og virti fyrir mér fjöldamarga ■ uppdrætti, sem hún hafði gert, suma með blý- anti, en suma með bleki. Iiún fór þá að taka þá niður og sýna mér og þegar ég spurði hana, skýrði hún ná- kvæmlega fyrir mér, hvernig vinnu hennar væri varið. Þegar búið er að lesa kvik- myndaleikritið og endanleg ákvörðun hefir verið tekin um hvert leiksvið, sem á að kvik- mynda, tekur Miss Braham eftirrit af handritinu og athug- ar hvert leiksvið út af fyrir sig. Þegar hún er búin að athuga nákvæmlega allt, er nokkru máli skiptir á leiksviðinu, sem hún ætlar að fara að vinna að, svo sem alla innganga á leik- sviðinu, þar sem leikendurnir verða að koma eða fara, ofna, glugga, húsgögn, yfirleitt allt smátt og stórt, sem tilheyrir leiksviði, sem á að kvikmynda, gerir Miss Braham ofurlítinn blýantsuppdrátt, þar sem allir þessir hlutir eru sýndir ná- kvæmlega þar, sem þeir eiga að vera. Þegar hún hefir full- vissað sig um, að allt það, sem á að vera á leiksviðinu, er á uppdrættinum og á algeHega réttum stað, íhugar hún vand- lega, hvort ekki beri að bæta við einhverjum húsgögnum, út- búnaði, skrauti eða einhverju öðru, sem mundi gera leiksvið- ið eðlilegra. „Þeg'ar ég er búin ab því“, segir Miss Braham, „leita ég að smiðnum og við ráðgumst um þær breytingar, sem hann óskar eftir og þær uppástung- ur, sem hann hefir að gera. Þegar við erum orðin þess full- viss, að leiksviðið sé eins og við óskum eftir, bý ég til ofur- lítið mót af leiksviðinu í rétt- um hlutföllum“. Á meðan hún var að skýra þetta fyrir mér, stakk hún hendinni inn í skáp nokkurn og tók úr úr honum fjöldann all- an af snildarlegum leiksviðs- mótum, öll með nákvæmlega réttum hlutföllum. Eitt af því var eftirlíking á enska hjóna- skilnaðardóminum (English Divorce Court). Til þess að geta búið hana til eyddi hún nálega heilli viku í dómssaln- um sjálfum og veitti nákvæma eftirtekt öllu smáu og stóru, sem þar er. Hvernig hún hefir farið að því að búa til svo ná- kvæma eftirlíkingu á dóminum er méi óskiljanlegt og það þvi fremur, að hún samkvæmt ófrávíkjanlegri reglu í hjóna- skilnaðardóminum, hvorki fékk að gera þar nokkum uppdrátt né skrifa nokkuð niður. Annað mót, sem hún sýndi mér, var af mjög fínni dagstofu, sem notað var í kvikmyndinni Should a Doctor Tell? „öll mótin eru úr borðum, sem gerð eru úr hvítum viði og standa á litlum viðarbjálkum. Það lá nærri, að ég ósKaði þess, að ég væri aftur orðin bam — ég hefði tímum saman getað leikið mér að þessum blekkj- andi barnaleikföngum, að þvi að setja saman úr borðunum fyrst viðtalsstofu læknis í Harley Street, síðan ef til vill setustofu í einhverju hóteli og óteljandi aðrar stofur eða önn- ur leiksvið, allt eftir því, hvað mér hefði dottið í hug í það og það skifti. Miss Braham setur saman úr borðunum leiksviðið, sem hún er að vinna að, og þegar það er fullgert notar hún það til að gefa smiðnum, málaran- um, rafmagnsfræðingnum og öllum öðrum, sem eiga að vinna að leiksviðinu, bending- ar um það, hvernig það eigi að vera. Mér fannst sú almenna þekking, sem Miss Braham hef- ir, alveg ótrúleg, og þó segist hún enn alltaf vera að læra. I hvert skifti, sem hún mótar nýtt leiksvið aflar hún sér nýs lærdómsforða. Hugsið ykkur heila, sem á að geta mótað leiksvið frá öllum tímum fra syndaflóðinu og fram á okkar daga þannig, að hvert smáræði sé í samræmi við tímana, sem um er að ræða! Leiðbeinandi má elcki leyfa sér að gera nein- ar verklegar villur — almenn- ingur hefir allt of gott auga fyrir þeim, jafnvel þótt smiðn- um sæist yfir þær. Miss Braham hefir verið eini leiðbeinandinn á vinnu- stofu brezka Lionkvikmyndafé- lagsins í Beaconsfield, síðan það félag var stofnað. Þessi gáfaða kona hefir einnig aðstoðað leiðbeinendur á öðrum vinnu- stofum, einkum Gainsborough- vinnustofunni. Ég tek ofan fyrir Miss Braham. Hún vinnur meira en flestar aðrar konur og ég er viss um að hún er ánægðari en þær flestar. — S T A K A Þar, sem fellur foss úr hlíð fagur, niður á hamrastalía, heyri eg lands míns lögin blíð, laðandi rnig til sín kalla. j. j. 7

x

Listviðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listviðir
https://timarit.is/publication/599

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.