Listviðir - 07.04.1932, Síða 21
7. aj>ril 1952
eistvlðír
Énskur leiklangaskápur
Framúrskarandi hentugur,
einkum í þröngum húsa-
kynnum. [Slíka skápa má
einnig smíöa hér á landi.
LISTVIÐIR gela upplýsingar
ef óskað er].
Skápurinn er þrískiptur og
má leggja hann saman
þegar barnið er hætt leik
sínum. Er til jafn mlkils
gagns og gleði fyrir móður
og barn.
runninn af rótum vizku eða fávizku sá verkn-
aður bamanna, sem talið er eð sýni mestar
g'áfur og' afburða þroska.
Um leið og barnið sleppir sér og hefir gengið
fyrstu sporin eitt og hjálparlaust, þá er það
sent á einhvern dagskóla fyrir börn. Allskonar
kenningum er nú komið í framkvæmd í þess-
um skólum. Venjulegar skólastofur með stór-
um húsgögnum, þar sem hátt er undir loft
og myndir hanga hátt uppi á veggjum, eru
álitnar óviðeigandi fyrir börn á þessu reki.
Uar af leiðandi eru gerðar litlar skólastofur
fyrir þessi námsbörn, myndimar eru hafðar
örfá fet frá gólfi, dyrnar hálft fjórða fet á
hæð og stælingar af húsgögnum fullorðinna
fylla stofurnar. f þessum dvergaheimkynnum
hefir barnið af fyrir sér með sínum lærðu jafn-
öldrum og lærir sitt af hverju um lífið, frelsið
• og hamingjuleitina, — það sama og móðir þess
lærði á sínum æskuárum úti við lambféð og
l ýrnar í sveitinni.
Ileima verður umhverfi barnsins einnig að
vera á þennan hátt. Skreytingunni á barna-
lierberginu, sem ætti eiginlega að heita vinnu-
stofa, verður mjög að vera stillt í hóf. Og ekki
má segja því helgisögur eða æfintýri. — Sann-
leikann, öllum sannleikanum og engu nema
sannleikanum er troðið í bamið í stórum
skömtum. Og leikföngin eiga að vera verk-
færi en ekki aðeins til garnans.
Þar eru til dæmis leikföng, sem líkjast
helzt pyndingaráhöldum, samanfléttaðir bræð-
ir, sem eiga að kenna barninu, hvemig það
eigi að binda á sig skóna. Leikföng með
hnöppum og hnappagötum kenna því mikilvæg
sannindi um það, hvemig það eigi að hneppa,
að sér kápunni. — Litlar tröppur kenna bæj-
arbarninu leyndardóma þess að ganga upp og
ofan stiga, sem það getur aldrei fengið hug-
mynd um á annan veg, þar sem í húsinu er
ekki um annað en lyftur að ræða.
Þá er mjög merkileg skreyting bamaher-
bergisins. Þar eru myndir, sem sérstaklega
eru til þess gerðar að vekja hugsanir í barns-
vitundinni. Stundum er herbergið skreytt í
stórum stíl samkvæmt nýmóðins hugmyndum.
Menn geta varla beðið eftir því, að börnin
vaxi upp og sýni hvaða áhrif silfrið og kú-
bistisk horn hafa á þann, sem sogast inn í
þetta æsta andrúmsloft.
Stundum undrast maður, að nokkur skuli á-
ræða að eiga barn á þessum tímum. Ef einhver
átti bam í fyrri daga, sem var dálítið — hvað
skulum við segja — treggáfað, þá var hægt
að fela það á bak við ummæli, svo sem að það
væri óframfærið, feimið og mannfælið. En nú
á tímum er barnið og veikleikar þess opin bók
fyrir hvern þann, sem hefir þekkingu og löng-
un til að lesa.
Enskt nýtízku barnaherbergi,
Skoðið myndina I stækkunarglerl, og þér munuð sji að á vegg-
Inn er málað landabréf, flugvél, skip o.fl., en krlngum eldstæðlð
er málað stafrófið.
?!
L