Heimir : söngmálablað - 01.03.1939, Qupperneq 24

Heimir : söngmálablað - 01.03.1939, Qupperneq 24
20 H E I M I R ættaður. Afi hans var Moses Mendelsohn, frægur lieims- spekingur, og faðir lians var vellauðaugur hankastjóri» sem veitli syni sínum það bezta uppeldi, sem kostur var á. Á lieimili hans voru margir merkustu menn lands- ins tíðir geslir, eins og t. d. tónskáldið Weber. Aðeins 17 ára gamall samdi Mendelsolm músikina við „Jóns- messunæturdrauminn* ‘eftir Shakespeare, og er það eitt af meistaraverkum tónlistarinnar. Mendelsohn var frá- hær pianósnillingur og snjall hljómsveitarstjóri, há- mennlaður maður, sem liafði lagt stund á heimspeki og fagurfræði jafnhliða músikinni. Hann dró „Matte- usar Passion“ eftir Bach fram úr gleymskunnar djúpi og uppfærði hana og var hann þá ekki nema 17 ára gamall. Er þvi ekki fjarri sanni að segja, að hann liafi „endurvakið Baeh“ að þessu leyti og liafið tónverk lians til vegs og virðingar. Mendelsohn er merkilegt tónskáld. Við íslendingar kunnum nokkur lög eftir hann, eins og „Ó, dalur, hlíð og hólar“, „Dýrðarfagri dalur vænn“, „Vorið góða grænt og hlýtt“ o. fl., en merkilegustu tón- smíðar hans liggja á sviði hljóðfæralistarinnar, og vil ég sérstaklega nefna fiðlukonsertinn í e-moll. Samtíðar- mönnum hans þólti mikið koma til tónsmíða lians, öllu meira en nú þykir, og munu þess fá dænii, að nokkurt tónskáld hafi verið eins mikils virt i lifanda lífi og hann. Tónsmíðar Schumanns sættu aftur á móti mót- spyrnu fyrst framan af, en nú finnst mönnum þær vera lcjarnbetri músik og merkilegri. Samt sem áður leit Schumann upp til Mendelsohns og sagði um hann: „Mendelsohn er mesti tónlistafrömuður, sem uppi er í lieiminum, og lít ég upp til lians eins og tröllaukins fjalls“. Andi Mendelsolms var ljós og skýr og var form- snilldin með afbigðum mikil. Formfestan var hin veika hlið Scliumanns, einkum framan af æfinni. Hann tók Mendelsohn sér til fyrirmyndar í þessum efnum. Ann- ars vita menn næsla lítið um það, hvernig kunnings- skap og samvinnu þessara frægu manna hefir verið

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.