Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 4
Leiðari
Það styttist
óðum í jólafrí
Prófunum lýkur og jólin koma fyrr en varir.
Flestum þykir eftirsóknarvert að geta lagst upp í sófa, sett
tærnar upp í loft og horft áhyggjulaus á eina jólamynd eða
svo. Þó er það ekki mögulegt öllum að slappa svona af.
í dag eru margir hreinlega ekki fjárhagslega í stakk búnir
til að halda jól. Gríðarlegur fjöldi býr við þær aðstæður að
hafa misst heimili sitt og þarf því að treysta á góðmennsku
náinna ættingja og vina. Jólin geta því verið erfiður tími fyrir
marga þegar engir peningar eru fyrir hendi til þess að kaupa
jólagjafir eða að versla í jólamatinn.
(blaðinu kynnumstvið starfi Rauða krossins í aðdraganda
jólanna. Starfið sem þar fer fram er óeigingjarnt en jafnframt
krefjandi. Það hlýtur að vera hollt fyrir hvern mann að stunda
sjálfboðastarf í einni eða annarri mynd og sérstaklega i
aðdraganda jóla. Þeim fer vafalaust fækkandi sem eiga
afgang um hver mánaðamót en öll ættum við þó að reyna
að leggja okkar af mörkum í náungakærleik og veita þeim
aðstoð sem helst þurfa á að halda. Að geta lagt eitthvað af
mörkum er gefandi í sjálfu sér, jólagjafir þurfa ekki alltaf að
fela í sér peningaútlát.
Jólin hafa löngum verið kölluð hátíð barnanna, börnin gera
jólin að enn meira tilhlökkunarefni með eftirvæntingu og
niðurtalningu í aðfangadag. Það eru þó þau sem oft finna
mest fyrir því þegar erfiðleikar steðja að. Börnin eiga ekki
sök á því hvernig fyrir okkur er komið en þau finna engu að
síður fyrir afleiðingunum.
í dag þekkja eflaust flestir íslendingartil einhverra sem hafa
misst heimilið sitt, sparnaðinn eða vinnuna eða til þeirra sem
sitja uppi með himinháar skuldir þar sem höfuðstóll lána
hefur rokið upp úr öllu valdi. „Þetta fólk" er auðvitað bara
fólk eins og ég og þú. Ég vil hvetja lesendur til að leggja sitt
af mörkum til að gera jólahátíðina ánægjulegri fyrir þessar
fjölskyldur þannig að þeir sem eiga um sárt að binda geti
fengið hvíld frá áhyggjunum og hlakkað til jólanna.
Áslaug Baldursdóttir
ritstjóri
Naomi Lea Grosman
Blaðamaður
Margrét Ágústsdóttir
Blaðamaður
margret@oddi.is
Kristján Andri Jóhannsson
Blaðamaður
kajl 7@hi.i
Björn Gíslason
Prófarkalesari
bgisla@hi.is
Jón Júlíus Karlsson
Ljósmyndun
jjkl @hi.is
Edda Sigurðardóttir
Blaðamaður
edsl 3@hi.is
Ritstjórn
Súsanna Gestsdóttir
Blaðamaður
sojalatte@gmail.com
^ Steinunn Björk Bragadóttir
^^c^a^@^otrna'l'com
Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir
Blaðamaður
tha50@hi.is
Karl Emil Guðmundsson
Umbrot
skemill@gmail.com
Þórdís Reynisdóttir
Ljósmyndun
flickr.com/photos/tordi
Ásdís Auðunsdóttir
Blaðamaður
asa24@hi.is
Kristrún Ósk Karlsdóttir
Blaðamaður
kriskar@hi.is
4
STÚDENTABLAÐIÐ