Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 11

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 11
okkur ( botn reyndar, en heimamenn voru kannski aðeins skeptískir þar sem við dúkkuðum þarna upp, fimm saman, skjannahvítir í stuttbuxum. Við ræðum um ný plötuumslög sveitanna. Siggi segir frá því að græni liturinn hafi verið höfuðeinkenni fyrstu tveggja platna Hjálma en að á þriðju plötunni hafi annað verið uppi á teningnum. S: Já, við lentum í svolítilli krísu sem hljómsveit á þriðju plötunni sem endurspeglaðist þá í litnum á því „kóveri" sem var appelsínugult eða eins og fölnað laufblað. Kannski var eitthvað að hausta innan bandsins á þeim tíma enda er þriðja platan svona einna melankólískust af öllum plötunum. En svo var svo mikið stuð á nýju plötunni að við þurftum að fá græna litinn aftur. Nýja „kóverið" er málverk eftir listamanninn Davíð Örn sem ég hef þekkt í nokkur ár en við fengum að velja úr nokkrum verkum hans. G: Við fengum vinkonu okkar, Reginu Maríu Árnadóttur, sem er að stúdera grafíska hönnun í New York, til þess að vinna umslagið fyrir okkur. Myndlistin hennar felst meðal annars í því að skera út nokkrar Ijósmyndir og skeyta þeim saman eins og hún gerir á „kóverinu" okkar þar sem hún notar tvær Ijósmyndir. Önnur myndin er af allsberri konu sem horfir út um gluggann. Myndirnar í bæklingnum sem fylgja plötunni eru eftir Jóa Kjartans en Regína vann með þær. Hvernig er tónlist ykkar að þróast? G: Fyrsta platan okkar var voða mikið indípopp en núna eru miklu meiri pælingar, stærri pælingar. Lögin eru meira hugsuð fyrir fram, ég myndi segja að það væru vandaðri vinnubrögð í gangi. Svo eru bara nýjar stefnur farnar að segja til sín, svolítið mikið diskó, nýjar útsetningar og þessi söngleikjafílingur og smá Phil Spector „sánd" þarna inn á milli, Wall of Sound áhrif til dæmis í Feels like Sugar sem er svona power-ballaða sem Sigga syngur. Það eru svona element sem eru tekin héðan og þaðan sem við vildum prófa okkur áfram með. Strákarnir eru viðloðandi ótal hljómsveitir og má þar nefna Svitabandið, Baggalút, Sigríði Thorlacius og heiðurspilta, Fallega menn og fleiri. Þessa dagana starfar Guðmundur með Frostrósum. Það má segja að þeir hreinlega lifi og hrærist f tónlist. En hverjir ætli séu áhrifavaldar þeirra? S: Það eru svo margir, ég myndi segja að það væru aðallega mamma og pabbi og allt umstangið í kringum þau en þau hafa alla tíð verið á kafi i tónlist, mamma að spila á píanó og pabbi að syngja úti um allar trissur. Svo náttúrulega var spilað mikið af plötum heima, Elton John, Stevie Wonder og fleira. alltaf að spila á flygilinn heima og svo var það óneitanlega mikill innblástur að hafa stóra bróður niðri í kjallara með allar græjurnar. Stóra bróður sem var líka að spila á tónleikum og kenna manni á gítar og svoleiðis. Ég held að aðalinnspýtingin sé frá fólki í kringum mig, fyrst mamma og pabbi og svo Siggi. Þegar ég svo flutti ( bæinn frá Keflavfk þá datt ég inn í vinahóp sem var allur stilltur inn á þetta svið. Held að MH hafi líka haft mikið að segja en þar ríkir þessi sérstaka menning. Ég meina, hvernig er ekki hægt að vera innblásinn af því umhverfi þar sem Stuðmenn sömdu til dæmis / bláum skugga. I MH kynntist ég ótrúlega mörgu músfkfólki, þar á meðal eiginlega öllum þeim sem eru í Hjaltalín. Þar voru trilljón hljómsveitir í gangi, maðurtók þátt í söngkeppni, lagasmíðakeppni og tróð upp í Norðurkjallaranum. Svo núna f dag þá er ef til vill mestu innspýtinguna að finna innan Hjaltalín þar sem við erum sjö til átta manns, öll ólík með mismunandi áhugasvið og reynslu á bakinu og við smitum út frá okkur og þá hvert til annars. Annars var ég heltekinn af Bítlunum og Elvis f mörg ár. Kom fram á grunnskólaskemmtun í Keflavík þegar ég var ellefu ára þar sem ég tók Elvis með kústskaft í hendi. I kjölfarið var ég lagður í einelti og laminn. Auk þess að starfa saman í tónlist búa bræðurnir saman við Miklatún í Reykjavík. En hvernig ætli sambúðin gangi? G: Siggi er afskaplega sérvitur og veit sínu viti. Er þrjóskur. Hann er ofsalega góð húsmóðir, hann eldar rosalega góðan mat meðan ég kann sjálfur ekki að elda. Uppáhaldsmaturinn minn sem Siggi eldar er fiskur. Hann býr til dæmis til rosalega góðan skötusel. Þegar hann fer út í búð og kaupir í matinn kemur hann oftast til baka hlaðinn alls konar ffneríi. S: Það þýðir ekkert að kaupa bara hrísgrjón og banana. G: Ég held því fram að þegar Siggi labbar inn í búð þá einhvern veginn geti hann ekki hamið sig. Hann er þvílfkur sælkeri og ég nýt góðs af því. S: Gummi getur ekki eldað og getur ekki gengið frá eftir sig en hann er yfirleitt alltaf í góðu skapi svona ef maður fer vel að honum. Ef maður fer illa að honum þá er voðinn vís, sérstaklega ef það er snemma dags. Við erum reyndar líkir að því leytinu til, erum báðir svona b-hliðar. Hvað með áhugamál fyrir utan tónlistina? S: Ég hef mikinn áhuga á Ijósmyndun en hef ekki getað sinnt því mikið undanfarið. Svo finnst mér gaman að elda góðan mat og borða góðan mat. G: Ég var rosalega mikið í hestum þangað til að það komst bara ekki lengur að. S: Það kemst ekkert rosalega mikið annað að þegar maður er að reyna að starfa sem tónlistarmaður á Islandi. G: Ég hafði samt hugsað mér það að gerast A-týpa og verða svona útivistargæi, klífa fjöll og veiða, fá mér svo byssuleyfi og skjóta rjúpur og hreindýr. Nú eru jólin að skella á, eruð þið bræðurnir í jólastuði? S: Ég komst í svolítið jólastuð um daginn en þá vorum við að taka upp tvö jólalög sem koma út á sjö tommu vínyl fyrir jólin. Eruð þið jólabörn? S: Já, það er voða notalegt þegar þau eru loksins komin en ég er voðalega Iftið fyrir stressið og allt það sem fylgir jólunum. En kannski verður þessu öðruvfsi háttað þessi jólin, minna stress en það var í góðærinu. G: Já, ég held það. Ég fann einmitt fyrir þessari jólatilfinningu á Akureyri um daginn. Jólasnjór, jólatré og Sigga Beinteins syngjandi úti á götu og margir frekar snemma í því að kaupa jólagjafir. Vinur minn úr bænum sem ég spjallaði við sagði mér frá því að núna færi hann bara í verslunarferð til Akureyrar í staðinn fyrir Glasgow, ég held að það sé dálítið jákvætt og gott fyrir efnahaginn. Annars held ég að ég kaupi ekki neinar jólagjafir, mun bara G: Ég hef oft pælt f þessu. Ég er alveg sammála Sigga, við erum náttúrulega aldir upp i geðveikislega mikilli músík, pabbi var alltaf syngjandi og mamma STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.