Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Síða 14

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Síða 14
Pilsnerfrumvarpið í drögum að frumvarpi til nýrra umferðarlaga sem nú eru til umsagnar öðru sinni hjá samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu er lagt til að lækka beri leyfilegt hámarksmagn vínanda í blóði ökumanns úr 0,5%o (prómill) í 0,2%o. í skýrslu sem fylgir frumvarpinu og Jakob Kristinsson og Kristín Magnúsdóttir unnu fyrir hönd Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði er m.a. vitnað til rannsóknar sem gerð var hér á landi árið 1999. í þeirri rannsókn kom í Ijós að áfengismagn í blóði fór yfir 0,2%o hjá þremur einstaklingum af 12 eftir að þeir höfðu drukkið hálfan lítra af pilsner sem hafði áfengismagn sem nam 2,2%o. Hjá einum hafði styrkurinn meira að segja nálgast 0,3%o. Þetta frumvarp hefur því vakið miklar umræður og hefur verið nefnt pilsnerfrumvarpið. Blaðamaður setti sig í samband við Einar M. Magnússon, upplýsingafulltrúa Umferðarstofu, og ræddi við hann um afleiðingar ölvunaraksturs og um nýja frumvarpið. „Það er algengur misskilningur hjá fólki að það sé í lagi að keyra eftir neyslu áfengis ef áfengismagnið í blóðinu er undir 0,5%o þar sem núverandi refsimörk eru bundin við 0,5%o. Hins vegar er staðreyndin sú að umferðalög mæla fyrir um að bannað sé að keyra undir áhrifum vímuefna, þar með talið áfengis. Af þeim sökum grípur lögregla oft til þess ráðs að banna ökumanni, sem mælist undir áhrifum sem þó eru undir 0,5%o, að stjórna ökutæki. Ökumaðurinn yrði í því tilviki að bjarga sér t.d. með leigubíl en hann gæti síðan nálgast bifreið sína sólahring seinna," segir Einar. „Því má segja að frumvarpið sé sett fram til þess að draga úr þessu svigrúmi sem ýmsir telja sig hafa," bætir hann við. Meginmarkmið frumvarpsins er að auka umferðaröryggi því minnstu áhrif vímuefna slæva dómgreind, athygli og viðbragð ökumanna. Stafar hætta af þér? „Ökumaður sem er undir áhrifum áfengis hefur þrengra sjónsvið en sá sem er allsgáður. Hann á efiðara með að sjá hættur I jaðarsjónarsviði og getur því ekki brugðist eins örugglega við þeim. Dómgreind hans og athyglisgáfa hefur skerst, jafnvel þó svo að hann hafi aðeins neytt lítils magns af áfengi. Viðbragðstími lengist og sjálfráðar hreyfingar brenglast og líkur á slysi aukast verulega, jafnvel þótt áhrif áfengisins séu Iftil. Fórnarlömb þess slyss geta verið einhverjir nákomnir ökumanninum, jafnvel börn," segir Einar í grein sem ber heitið Stafar hætta af þér? í þessari sömu grein kemur fram að á tíu ára tímabili, frá árinu 1998 til 2007, létust 38 manns í umferðinni þar sem ölvunarakstur er talinn aðalorsök. Hugsanleg viðhorfsbreyting til hins verra Ef litið er á Ifnurit, sem Umferðarstofa vann og sýnir hlutfall slysa vegna ölvunaraksturs af heildarfjölda alvarlegra slysa og banaslysa, er óhugnanlegt að sjá að á árinu 2008 fjölgaði ölvunaraksturstilfellum f flokki alvarlegra umferðarslysa mikið ef miðað er við síðustu tíu ár. „Þetta eru nýlegar niðurstöður og við höfum ekki enn getað greint nákvæmlega niðurstöður með hlíðsjón að öllum mögulegum áhrifavöldum. Þetta bendir þó óhjákvæmilega til þess að hugsanlega hafi orðið hugarfarsbreyting í þessum málum og það til hins verra. Er það mögulegt að fólk líti ölvunarakstur ekki jafn alvarlegum augum og áður?" spyr Einar. (skýrslu sem Ríkislögreglustjóri sendi frá sér um ölvunarakstursþrot á árunum 2007-2008 kemur fram að stærsti aldurshópurinn sem ók undir STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.