Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Síða 16

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Síða 16
Luclcy rocords Nú fer að styttast í jólin og eflaust eru margir farnir að huga að undirbúningi þeirra. Áhugavert er að skoða hvernig landinn hyggst halda jólin í ár. Tölur um gestafjölda í Kringlunni segja að aðeins hefur dregið úr heimsóknum um þrjú prósent það sem af er ári. Hvort svipaður gestafjöldi sé merki um að landinn gefi lítið fyrir krepputal skal ósagt látið. Áhugavert er þó að skoða hvað stúdentum finnst um komandi jól. Hefur kreppan áhrif á jólin hjá stúdentum eða verða jólin í ár lík þeim fyrri? Hvað þykir stúdentum skipta mestu máli þegar kemur að jólunum? Blaðamaður fór á stúfana og spjallaði við nokkra stúdenta um komandi jól. Markmiðið var að athuga hvernig stúdentar væru stemmdir fyrir komandi jólum. Friðmar Bjartmarsson, fyrsta ári í byggingarverkfræði Ertu mikið jólabarn? Ekki mikið jólabarn, raunar hef ég ekki oft haldið upp á jólin. Man samt eftir nokkrum jólum frá því ég var yngri. Hvað er það besta við jólatímabilið? Ég hef oft gert það að fara upp í bústað og það er mjög slakandi tími, bara uppi í bústað með bók og kósý. STÚDENTABLAÐIÐ Finnur þú fyrir miklu áreiti í kringum jólin? Hvað finnst þér um allar þessar auglýsingar? Þetta náttúrulega byrjar snemma en annars reyni ég að kúpla mig út úr þessu svo ég finn ekki mikið fyrir þvi. Munu komandi skattahækkanir og kaupmáttarrýrnun hafa áhrif á það hvernig þú heldur jólin í ár? Nei, engin áhrif. Ef þú myndir bera saman þessi jól við jólin árið 2007, væri þá mikill munur og í hverju felst hann? Sáralítill munur, ég er bara heppinn, á engar eignir og skulda ekkert. Fær ríkisstjórnin gott í skóinn eða kartöflu? Haha, hún fær kartöflu. Hvað hefur ríkisstjórnin gert til að verðskulda kartöflu? Hún hefur bara ekki staðið sig og hefði þurft að gera betur. Munt þú kaupa eitthvað í Kolaportinu fyrir þessi jól? Örugglega ekki. Hafa jólin breyst mikið frá því þú varst lítill? Já, myndi segja það, meiri efnishyggja i öllu. Hvernig er með jólagjafir, gefurðu margar slíkar? Hverjir fá gjafir í ár? Gef engar jólagjafir enda held ég ekki upp á jólin. Hvað viltu helst fá í jólagjöf í ár? Ef ég myndi fá jólagjöf þá myndi mig langa í iPod. Ef grátandi og svangur maður myndi banka upp á hjá þér á aðfangadag, myndirðu bjóða honum í mat? Já, af hverju ekki? Ætlarðu að gefa til góðgerðamála fyrir þessi jól? Ekkert frekar á jólunum en á öðrum tima. Ef þú ættir að lýsa jólunum í ár með einu lýsingarorði, hvaða lýsingarorð yrði fyrir valinu? Afslappað. Hlín Gunnlaugsdóttir, fyrsta ári í jarðfræði

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.