Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 18

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 18
Desember í Bóksölunni - ekki bara fyrir stúdenta Flestir kannast líklegast við að hafa séð Bóksölu stúdenta frá Hringbrautinni, í eldra húsnæði sínu við hlið Þjóðminjasafnsins. í dag er hún til húsa á Háskólatorgi, nýbyggingu við hlið Aðalbyggingar Háskólans. Frá árinu 2007 hefur Félagsstofnun stúdenta rekið þar, auk Bóksölunnar, veitingastaðinn Hámu sem er um leið kaffitería fyrir háskólanema. Félagsstofnun stúdenta er þjónustufyrirtæki háskólanema sem sér meðal annars um uppbyggingu stúdentagarða og að reka leikskóla fyrir börn háskólanema og kaffistofur víðs vegar um háskólasvæðið ásamt þvi að veita stúdentum aðgang að bókum og hollum mat á sanngjörnu verði. Bóksala stúdenta selur einnig bækur fyrir framhaldsskóla og hefur Félagsstofnun stúdenta starfrækt skiptibókamarkað fyrir háskólanema á Netinu. Því er enginn eiginlegur skiptibókamarkaður fyrir hendi í Bóksölunni heldur getur fólk skráð bækur sínar til sölu á heimasíðunni vvww. studentamidlun.is. Þannig gefst námsmönnum tækifæri á að finna þær bækur sem þá vantar á Netinu og hafa samband beint við seljanda. Þetta „Bóksalan hefur til sölu allar helstu handbækur og fræðirit sem notuð eru við nám á háskólastigi hér á landi en það er langt í frá það eina sem þar er á boðstólum. í Bóksölunni er sama úrval og í öðrum bókabúðum borgarinnar og jólabækurnar eru að sjálfsögðu allar komnar" STÚDENTABLAÐIÐ lækkar verð notaðra bóka umtalsvert þar sem enginn umboðskostnaður leggst á bækurnar, seljendur verðleggja sjálfir bækur sfnar. Jólavertíðin að hefjast í Bóksölu stúdenta Bóksala stúdenta er opin virka daga allan ársins hring og verður einnig opin tvo síðustu laugardaga fyrir jól. Bóksalan fer því hvorki ekki í sumar- né jólafrí líkt og nemendur. Margeir Gunnar Sigurðsson, starfsmaður hjá Bóksölunni, segir að þegar nær dragi jólum fjölgi viðskiptavinum. „Mest stúdentar," segir Margeir spurður um það hverjir versli helst í Bóksölunni og hann segir að vel geti verið að stúdentar leitist við að versla jólagjafir fyrir sína nánustu í Bóksölunni. Bóksalan á sína fastakúnna sem koma ár eftir ár og finnst gott að versla þar. Að sjálfsögðu er ávallt mest að gera í búðinni í byrjun hverrar annar þegar stúdentar flykkjast þangað til að kaupa skólabækur. Smám saman dregur þó úr umferðinni yfir önnina, eins og Margeir orðar það, og þrátt fyrir að bókaormum landsins detti kannski ekki í hug að skreppa í Fláskólann að kaupa sér jólabækurnar er þar jólatörn eins og annars staðar. Bóksalan hefur til sölu allar helstu handbækur og fræðirit sem notuð eru við nám á háskólastigi hér á landi en það er langt í frá það eina sem þar er á boðstólum. ( Bóksölunni er sama úrval og í öðrum bókabúðum borgarinnar og jólabækurnar eru að sjálfsögðu allar komnar. Aðspurður segir Margeir að meira mætti vera um að fólk utan Háskólans verslaði í Bóksölunni. Síðastliðin tvenn jól hafa námsmenn og starfmenn Háskólans verið stærsti viðskiptavinahópurinn en að sjálfsögðu eru allir velkomnir, segir Margeir. Rómantfskar vampírusögur og grafískar skáldsögur Bóksalan hefur þá sérstöðu að hvergi hér á landi er að finna jafn mikið úrval erlendra bóka. Ef leitað er á milli lækna-, laga- og annarra fræðibóka er hægt að finna marga skemmtilega og óvenjulega flokka. Einn flokkanna er tileinkaður grafískum skáldsögum eða „graphic novels"eins og þær kallast á ensku, sem eru teiknimyndasögur f bókarformi. Úrvalið af þeím er ekki mikið í almennum bókabúðum. Þessi deild varð ekki til f kringum tiltekna námsgrein við Háskólann, segir Margeir, heldur er reynt að vera með sem fjölbreyttast úrval af bókum sem gætu höfðað til allra nemenda við Háskólann. Þegar blaðamann bar að garði blöstu við honum bækur (flokknum rómantfskar vampírusögur sem búið var að stilla upp. Þetta eru bækur f anda Twilight-bókaflokksins sem hefur notið mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni undanfarin ár, bæði ( nýlegum þýðingum og kvikmyndum. Þegar blaðamaður spyr hvort algengt sé að fólk kaupi bækur hjá þeim aðrar en fræðirit segir Margeir að nóg sé af þvf og að námsmenn grfpi oft með sér bók sem þá langi að lesa þegar lærdómnum sleppir. Námsmönnum við Háskólann finnst eflaust þægilegt að hafa bókabúð á háskólasvæðinu því þangað er líka hægt að leita ef eitthvað vantar fyrir lærdóminn eða önnur tækifæri, en þar er að finna góða ritfangadeild og ýmsa gjafavöru. Því er óhætt að segja að hægt sé að finna jólapakka við allra hæfi á Háskólatorgi, hvort sem það er nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, fantasíukilja, læknahandbók eða ein af fjölmörgum erlendum bókum sem Bóksala stúdenta hefur upp á að bjóða. Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.