Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Page 23

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Page 23
hátíðarnar er einnig boðið upp á spariföt. Hún bendir einnig á að Rauði krossinn strafrækir eða tekur þátt (rekstri átta geðræktarmiðstöðva um allt land. Athvarfið Vin sem og Konukot, athvarf fyrir heimilislausar konur, eru opin fyrir gesti yfir jólin og þar reynir fólk að gera sér dagamun. Innan Rauða krossins vinna heimsóknavinir um allt land að því að draga úr einsemd fólks. Félagið vinnur að málefnum innflytjenda, aðstoðar flóttafólk og hælisleitendur, rekur sjúkrabifreiðar, er leiðandi (skyndihjálp og sálrænum stuðningi og veitir neyðaraðstoð innanlands sem utan. Á hverju ári eru einhverjir sendifulltrúa Rauða kross íslands að störfum yfir jólin við verkefni í þróunarsamvinnu eða vegna náttúruhamfara. Sjálfboðaliðar um allt land halda starfi Rauða krossins uppi og eins er það um hátíðarnar. Það er því einungis hægt að veita þessa þjónustu vegna þeirra einstaklinga sem eru tilbúnir að gefa af sér á þessum tíma þegar flestir skjólstæðingar Rauða krossins þurfa sérstaklega á aðstoð að halda. Eins og undanfarin ár verður sólahringsopnun allar hátíðarnar hjá Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Elfa Dögg S. Leifsdóttir, verkefnastjóri hjá Hjálparsímanum, segir að þar sé hlustað og veitt ráðgjöf t.d. vegna þunglyndis, kvíða eða vanlíðanar. Hjálparsíminn er einnig hugsaður fyrir einmana fólk og veitir upplýsingar um samfélagsleg úrræði. „Fyrir jól og áramót er hægt að fá upplýsingar um „Á hverjum stað eru söfnunarbaukar þar sem gestir og gangandi geta stutt við starfið á meðan verslað er inn fyrir jólin." matarúthlutanir, hátíðarmálsverði og opnunartíma ýmissa athvarfa," bendir Elfa á og hvetur fólk til að vera ófeimið við að hringja og spyrjast fyrir. Ungmennadeild Rauða kross (slands (URKÍ-R) er einnig mjög virk. Deildin skapar ungu fólki vettvang til að sinna starfi innan Rauða krossins. Þar er unnið sambærilegt starf og ( öðrum deildum en auk þess vinnur URKÍ-R sérstaklega að þeim mannúðar- og mannréttindamálum sem snerta sérstaklega ungt fólk. Marín Þórsdóttir segir að nokkrum nýjum verkefnum hafi verið hleypt af stokkunum (vetur og það standi til að halda áfram góðu starfi eftir áramótin. Sem dæmi stóð ungmennadeildin fyrir skiptifatamarkaði í leikskólunum. „Með þessu erum við að bjóða foreldrum upp á að koma með föt sem eru orðin of lítil fyrir börn þeirra og skipta þeim fyrir föt sem passa. Við viljum koma til móts við foreldra sem hafa minna á milli handanna og færa þjónustuna nær fólkinu," segir Marín. Ungmennadeildin vinnur með Reykjavíkurdeildinni í þeirra verkefnum núna fyrir jólin, sérstaklega í þeim verkefnum þar sem þörf er fyrir margar hendur og sjálfboðaliða. Má þar nefna matarúthlutun auk þess sem sjálfboðaliðar deildarinnar verða é 10 stöðum í miðbænum í samstarfi við kaupmenn og gefa kakó og piparkökur. „Á hverjum stað eru söfnunarbaukar þar sem gestir og gangandi geta stutt við starfið á meðan verslað er inn fyrir jólin," segir Marín. Hún bendir á að allt starf Rauða krossins sé byggt á vinnu sjálfboðaliða og því fleiri sem eru með því betri aðstoð geti samtökin veitt. Þeim sem hafa áhuga á að starfa með URKÍ-R geta haft samband á netfangið urkir@redcross.is eða (síma 545-0407. Greinilegt er að mikið og gott starf er unnið í öllum deildum Rauða krossins. Fjölbreytt úrræði eru í boði og þá sérstaklega í jólamánuðinum. Allar upplýsingar um starfsemi deilda eða athvarfa á vegum Rauða krossins er að finna á www.redcross.is og allar upplýsingar eru aðgengilegar ( gegnum Hjálparsímann 1717. Blaðamaður hvetur stúdenta, sem og aðra landsmenn, til að rétta Rauða krossinum hjálparhönd. Mikilvægt er að standa saman og leggja sitt af mörkum og þá má fólk ekki vera feimið við að að þiggja þá aðstoð sem það þarf á að halda. Edda Sigurðardóttir Barnagleði og fj ölskyldudr ama f kringum jólin er gott að komast í hátíðarskap með því að gera sér dagamun og fara í leikhús. Stúdentablaðið leit inn í tvö af stærstu leikhúsunum á höfuðborgarsvæðinu og kynnti sér jóladagskrána. Þjóðleikhúsið hefur upp á margt að bjóða um þessar mundir. Brennuvargarnir er eitt af frægustu leikritum 20. aldarinnar og hefur verið sviðsett ( fjölda landa. Herra Biedermann, aðalsögupersónan í leikritinu, endar óvænt með tvo grunsamlega útigangsmenn á heimili sínu. Síðastliðnar vikur hafa byggingar logað út um alla borg og brennuvargar ganga lausir. I góðmennsku sinni neitar herra Biedermann að trúa, eða það hentar honum betur að trúa ekki, að mennirnir sem hann hýsir séu brennuvargarnir sem leitað er að. Þessu heldur hann til streitu þrátt fyrir að mennirnir stafli olíutunnum upp á lofti hjá honum. I verkinu er tekist á við hugleysi og grægði á sama tíma og það sýnir hversu langt manneskjan er tilbúin að ganga til að fá viðurkenningu frá öðrum. Allt er þetta sett upp á mjög skemmtilegan og kómískan hátt. Höfundur leikritsins er Max Frisch og leikstjóri sýningarinnar er Kristín Jóhannesdóttir en hún hlaut Gdmuverðlaunin fyrr á árinu fyrir að hafa leikstýrt sýningunni Utan gátta. Meðal leikara eru Björn Thors, Eggert Þorleifsson og Ólaffa Hrönn Jónsdóttir. Þann 26. desember verður hinn þekkti söngleikur Óliver! frumsýndur. Söngleikurinn er byggður rennuvargarnir. á klassískri skáldsögu Charles Dickens og fjallar STÚDENTABLAÐIÐ um Óliver Twist sem er munaðarlaus drengur. I gegnum Ólíver kynnast áhorfendur lífi hinna verst settu í Lúndúnaborg á 19. öld. Söngleikurinn hefur verið sýndur um allan heim og notið mikilla vinsælda en þar er að finna hinar ýmsu persónur eins og götustráka, þjófa, ómaga og götudrósir. Mörg börn taka þátt í sýningunni og er hún mjög lífleg, spennandi og fjörug. Leikritið skrifaði Lionel Bart og Selma Björnsdóttir leikstýrir. Meðal leikara eru Álfrún Örnólfsdóttir, Örn Árnason og Þórunn Lárusdóttir. Fimmta leikárið i röð verður barnaleiksýningin Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu. Sýningin er ekki sett upp á hefðbundin hátt heldur er tekið á móti börnunum I anddyri leikhússins og eru þau leidd bæði með leik og söng i gegnum húsið.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.