Stúdentablaðið - 01.12.2009, Qupperneq 24
Leitin að jólunum.
Þau fá að kynnast ævintýraveröld jólanna og sjá
leikþætti sem fjalla um jólin, hvernig þau eru nú
og hvernig þau voru í gamla daga. Sýningin hefur
notið mikilla vinsælda og fékk Grímuverðlaunin
sem barnasýning ársins árið sem hún var frumflutt.
Verkið er eftir Þorvald Þorsteinsson og er í leikstjórn
Þórhalls Sigurðssonar. Meðal leikara eru Ólafur Egill
Egilsson, Arnbjörg Hlif Valsdóttir og Valur Freyr
Einarsson.
Þjóðleikhúsið sinniryngstu kynslóðinni vel í kringum
jólin. Sindri silfurfiskur er þriðja barnleikritið sem
sýnt er í desember. Sagan fjallar um Hafdísi sem
vinnur í skrautfiskabúðinni Fjörfiski. Hafdís tímir
ekki lengur að selja fallegu fiskana og þeir verða
vinir hennar. Hún vill frekar segja sögu fiskanna og
sagan af Sindra silfurfiski er ein af þeim. Þetta er
falleg og litrík sýning sem fjallar um fólk og dýr á
sjó og landi. Um er að ræða nýtt brúðuleikverk fyrir
yngstu börnin sem tekur um 35 mínútur i sýningu.
Leikstjóri verksins er Þórhallur Sigurðsson en Áslaug
Jónsdóttir skrifaði handritið. Elva Ósk Ólafsdóttir
leikur.
Jólaguðspjallið nólgast ó óvenjulegan hótt
Dagskráin í Borgarleikhúsinu er heldur ekki af
verri endanum. Leikritið Fjölskyldan hefur verið
sýnt i rúman mánuð og er eitt það vinsælasta í
heiminum í dag. því segir frá því þegar ættfaðirinn
hverfur sporlaust og fjölskyldan safnast saman á
óðalinu. Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið
og hið skyndilega brotthvarf ættföðurins skýrist
smátt og smátt. Óvæntir atburðir eiga sér stað
og söguþráðurinn tekur ófyrirsjáanlega stefnu.
Leikskáldið Tracy Letts hefur fengið mikið lof fyrir
verkið og hafa gagnrýnendur erlendis gengið svo
langt að kalla það fyrstu klassík 21. aldarinnar.
Leikstjóri er Hiimir Snær Guðnasson. Meðal leikara
eru Pétur Einarsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir
og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Trúðarnir er mættir aftur i Borgarleikhúsið, nú með
sjálft jólaguðspjallið. Jesús litli gerist á árinu núll
í Palestínu. Heródes er landstjóri í Róm og þegar
von er á að frelsarinn fæðist gerir hann þá kröfu
að öll sveinbörn, tveggja ára og yngri, verði drepin.
(verkinu segja trúðarnir sannleikann og láta allt
flakka. Sýningin er líka einstök þar sem trúðarnir
eiga það til að bregða út af handritinu og fer það
jafnvel eftir áhorfendunum hversu langt frá því er
vikið.
Leikstjóri sýningarinnar er Benedikt Erlingsson og
höfundar sýningarinnar eru Benedikt Erlingsson,
Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir,
Kristjana Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson.
Leikarar eru Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana
Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson.
Fjölskyldan.
Söngvaseiður er vinsælasti söngleikur allra tíma
og ratar reglulega á fjalir leikhúsa um allan heim.
Uppsetning Borgarleikhússins, sem frumsýnd var
síðasta vor, hlaut einróma lof gagnrýnenda og
áhorfenda. Þarfer grímuverðlaunahafinn Valgerður
Guðnadóttir á kostum í hlutverki Maríu.
Leikstjóri sýningarinnar er Þórhallur Sigurðsson
og leikarar eru Valgerður Guðný Guðnadóttir,
Rúnar Freyr Gíslason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Guðjón Davíð Karlsson, Jóhann Sigurðarson,
Pétur Einarsson, Theodór Júlíusson, Hanna
Marfa Karlsdóttir, Linda Ásgeirsdóttir, Bergur Þór
Ingólfsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Þórunn Erna Clausen og margir
fleiri.
Einkaspæjararnir Harry Rögnvalds og Heimir
Schnitzel nutu mikilla vinsælda í útvarpsþáttum
nefndum eftir þeim árið 1988. Nú koma þeir í fyrsta
skipti saman á svið þar sem þeir reyna að leysa
dularfullt hvarf eiginmanns Dlönu á brúðkaupsnótt
24
STÚDENTABLAÐIÐ