Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Síða 26

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Síða 26
10 leiðir til að létta greiðslubyrðina Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna var sett á laggirnar árið 1996 og aðstoðar einstaklinga sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Til að ná tökum á fjármálunum þarf að huga að þeim leiðum sem minnka útgjöld og létta greiðslubyrði. 1. Að skoða vel framfærslukostnað, t.d. með því að færa heimilisbókhald í einhvern tíma. Þannig ætti að fást betri yfirsýn yfir það í hvað peningarnir fara í hverjum mánuði og hvar sé hagkvæmast að kaupa inn. Einnig ætti heimilisbókhald að auðvelda áætlun greiðslna fram í tímann. 2. Að reyna að lækka framfærslukostnað, t.d. símakostnað og áskriftargjöld. 3. Að kanna hjá (búðalánasjóði hvort hægt sé að fresta greiðslum af lánum í allt að þrjú ár en fyrst í eitt ár. Jafnframt að kanna möguleika á að lengja lánstíma þeirra um allt að þrjátíu ár. Einnig er hægt að sækja um skuldbreytingu vanskila í allt að þrjátíu ár. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna sér um að senda inn umsókn fyrir viðskiptavini sina. Einnig er hægt að snúa sér til viðskiptabanka. 4. Að hafa strax samband við kröfuhafa ef greiðslufall verður, t.d. vegna lækkaðra tekna. 5. Að kanna hvort hægt sé að fá að greiða einungis vexti af t.d. skuldabréfi tímabundið. 6. Að kanna hvort að hægt sé að fresta greiðslum tímabundið. 7. Að kanna hvort hægt sé að lengja lánstima. 8. Að kanna ný úrræði um greiðslujöfnun með þaki. 9. Ef ekki nást samningar við kröfuhafa bendir Ráðgjafarstofa á það úrræði að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar með fyrirvara um að viðkomandi falli undir skilyrði laga er snúa að gjaldþrotaskiptum. Greiðsluaðlögunin er enn þá í mótun og má búast við breytingu á henni á næstunni. 10. Elægt er að sækja um réttaraðstoð til að leita nauðasamninga tii dómsmálaráðuneytisins. Forsenda þess konar samninga er algjört eignaleysi. Þann 1. nóvember stóðu í fyrsta sinn til boða ný úrræði sem varða greiðslubyrði. Greiðslubyrði verðtryggðra veðlána var færð aftur til 1. janúar 2008. Síðan miðast greiðslan við greiðslujöfnunarvfsitölu ef hún er lægri en vísitala neysluverðs. Lánstími lengist að hámarki um þrjú ár. Greiðsluþyrði gengistryggðra húsnæðislána verður færð aftur til greiðslu í maí 2008. Síðan 26 STÚDENTABLAÐIÐ miðast hún við greiðslujöfnunarvísitölu. Lánstími lengist einnig að hámarki um þrjú ár. Greiðsluþyrði gengistryggðra bílalána og bílasamninga verður færð aftur til maí 2008. Hafi lánið verið tekið á tímabilinu frá 1. júní 2008 til 1. október 2008 verður greiðslubyrðin við upphaf greiðslujöfnunar svipuð og hún var á fyrsta gjalddaga samningsins. Síðan miðast hún við geiðslujöfnunarvísitölu. Lánstími lengist að hámarki um þrjú ár. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna er á Elverfisgötu 6. Efún er opin alla virka daga frá 9-16. Óþarfi er að panta tíma. Einnig er hægt að senda Ráðgjafarstofunni umsókn er viðvíkur almennri ráðgjöf á Netinu á rad.is en mikilvægt er að undirskrift fylgi slíkri umsókn. Að auki er einnig boðið upp á svokallað netspjall á sömu síðu þar sem hægt er að fá beint samband við ráðgjafa.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.