Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 32
Gestapenninn
Kjósum lífið
Kjósum
Jón Gnarr
Stöndum vörð
um alls konar
Ég fer mikið í sund. Mér finnst gaman (sundi. Eftir
góðan sundsprett, þar sem ég syndi af mér stressið,
fer ég í heita pottinn á meðan krakkarnir busla í
barnalauginni eða fara í rennibrautina. Ef ég vil get
ég farið í gufu. Ef ég er slæmur í bakinu get ég farið
í nuddpott og jafnvel í bununa. í heitu pottunum
eru alltaf fjörugar umræður um málefni líðandi
stundar. Allir eru jafnir í sundi. Feiti bankastjórinn
og gamla krumpaða skúringakerlingin sitja hlið við
hlið eins og jafningjar. Kynlegir kvistir koma oft við
og hafa þá oft ýmislegt til málanna að leggja og er
þá oft mikið hlegið. Einu sinni kom gamall maður
allsber í heita pottinn í Laugardalslauginni. Það var
mjög skemmtilegt. Það sagði honum það enginn.
Hann bara var þarna.
Sund er lúxus sem við búum við á íslandi. Við
áttum okkur ekki alltaf á því. Okkur finnst það svo
eðlilegt. En það er það ekki alls staðar í heiminum.
Sundlaugar í útlöndum eru ógeðslegar ef þær eru
þá til staðar. Vatnið er kalt og það eru engir heitir
pottar. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að komast
reglulega f sund og eiga góða stund með okkur
sjálfum og öðrum. Það er sérstaklega mikilvægt á
þeim timum sem við lifum nú. Það eru svo miklir
erfiðleikar hjá mörgum. Þess vegna er líka svo
mikilvægt að það sé ókeypis.. Þannig geta allir
leyft sér það óháð efnum og aðstæðum. Við viljum
ekki að sundlaugarnar okkar verði einhvers konar
griðastaður fyrir bankastjóra, stjórnmálamenn og
menntafólk. Við viljum ekki sjá fátækt fólk standa
fyrir utan sundstaði og komast ekki inn. Þess vegna
vill Besti flokkurinn að það sé ókeypis í sund fyrir
alla íslendinga. Og ekki nóg með það heldur líka
ókeypis handklæði þannig að háir og lágir geti
synt saman, kaupmaðurinn og verkamaðurinn geta
jafnvel keppt í bringusundi og leyst svo lífsgátuna f
heita pottinum á eftir.
Á dögunum sat ég f heita pottinum þegar ung
stúlka spurði skyndilega: „Af hverju eru stjórnvöld
ekki að gera neitt fyrir námsmenn?" Enginn svaraði
henni. Heldur ekki ég. Ég horfði niður. Ég vissi ekki
hverju ég ætti að svara. Ég vildi ekki svara, ég vildi
að einhver annar gerði það. En það var meira. Ég
skammaðist mín, skammaðist mín fyrir að búa í
landi sem gerði ekki neitt fyrir námsmenn. Litla
stúlkan horfði spyrjandi í kringum sig en enginn
hafði kjark til að horfa á mótí. Þögnin var næstum
þrúgandi. Rétt áður hljómuðu leiftrandi fjörugar
samræður og hlátrasköll en með spurningu sinni
hafði litla stúlkan komið við óþægilegan blett í
samfélagi okkar, jarðsprengjusvæði sem fæstir
hætta sér inn á. Og þar sem ég sat og starði ofan
í vatnið hugleiddi ég þetta. Af hverju í ósköpunum
gerir ríkisstjórnin ekkert fyrir námsmenn? Hvað
með öll stóru orðin fyrir kosningarnar? Eru þau nú
gleymd? Er atkvæði námsmanna eitthvað minna
virði en annarra? Við segjum nei! Nám er fjárfesting
eins og hús eða bíll. Að læra eitthvað er eins og
að kaupa sumarbústað. Maður getur slakað á inni
í honum eða gert hann upp og selt hann með
hagnaði. Að styðja námsmenn er að fjárfesta í
framtíðinni. Besti flokkurinn vill að framtíðin sé björt
og í framtíðinni verði (slendingar glaðir og geti farið
áhyggjulausir í sund og talað hver við annan um
Besta flokkinn og hvað sé best. Vonandi verður fólki
framtíðarinnar jafn annt um framtíðina og okkur.
Besti flokkurinn er besti valkosturinn fyrir
námsmenn. Jafnvel þótt við ætlum ekki að standa
við neitt sem við lofum þá hljóma okkar loforð
betur en allra annarra flokka. Við krefjumst
þess að námsmenn fái ókeypis í strætó. Við
leggjum til að námsmenn á háskólastigi fái að
auki ókeypis í leigubíla á opnunartima háskóla.
Besti flokkurinn vill að allir námsmenn fari
saman í strætó. Þar er kjörinn vettvangur fyrir
námsmenn til að ræða saman um Besta flokkinn
og hver séu uppáhaldsfögin þeirra í skóla. Þar
er líka kjörið tækifæri til að benda skólafélögum
sínum á það ef þeir þurfa að herða sig í einhverri
tiltekinni námsgrein og bjóðast til að veita þeim
stuðning. Þannig verður samskiptamáti að opnu
og lýðræðislegu upplýsingatorgi i gegnsæju
háskólasamfélagi nútímans. En strætó er ekki
aðeins miðstöð samræðna heldur líka afdrep
einveru og einbeitingar. Þar er tilvalið að fara yfir
glósur á leið til og frá skóla eða íhuga einhverja
tiltekna námsgrein.
Ókeypis í sund fyrir námsmenn er eitt helsta
baráttumál Besta flokksins. Það er gott fyrir alla að
fara í sund, sérstaklega námsmenn. Fátt er betra
eftir að hafa setið yfir námsbókum heilan dag
en að stinga sér til sunds og skola af sér stressið
I tæru vatni. Svo er tilvalið að safnast saman i
heitu pottunum og ræða námsefni dagsins. Besti
flokkurinn hvetur til slíkrar umræðu og styður hana.
Skemmtilegt væri að skipta pottum eftir fögum. Oft
gleymast aðalatriði í amstri dagsins. Því væri tilvalið
að kennarar fylgdu nemendum sínum i sund og
gætu svo svarað spurningum í heita pottinum. Þetta
myndi ekki bara gera námið skemmtilegra heldur
lika árangursríkara.
Besti flokkurinn leggur einnig til að stofnað verði
sérstakt Menntatorg þar sem námsmenn gætu
hringt, sér að kostnaðarlausu, í ákveðið númer og
talað við aðra námsmenn um námið og hvað sé
best.
Stjórnvöld hafa svikið námsmenn. Því vill besti
flokkurinn breyta. Krafa okkar er skýr: Ókeypis í
strætó, ókeypis í sund og frí handklæði. Og ókeypis
fartölvur og alls konar. Allt fyrir námsmenn. Veldu
það besta fyrir þig, börnin þín og foreldra þína.
Veldu þá það sem er best fyrir alla. Veldu Besta
flokkinn.
Jón Gnarr
formaður
STÚDENTABLAÐIÐ