Stúdentablaðið - 01.12.2009, Side 33
Viðburðaskrá
Unnur Arndísardóttir, Uni,
í Iðnó
Unnur, eða Uni eins og hún kallar sig, er ung og
upprennandi söngkona sem gefur út slna fyrstu
sólóplötu fyrir jólin, Platan ber nafnið Enchanted og
fagnar söngkonan útgáfunni með útgáfutónleikum
í Iðnó þann 16. desember kl. 20:30. Uni hefur
meðal annars stundað tónsmíðanám við
nútímatónlistarbraut The College of Santa Fe f
Bandaríkjunum og í sumar tók hún þátt í Trúbatrix-
tónleikaferðinni um landið og finna má lag með
henni á disk Trúbatrixa sem einnig var gefinn út í
sumar. Með Uni á tónleikunum verður einvalalið
hljóðfæraleikara. Jón Tryggvi Unnarsson leikur á
gítar og Baldvin Freyr Þorsteinsson einnig, Andrés
Lárusson leikur á bassa, Myrra Rós Þrastardóttir
syngur bakraddir og Gestur K. Pálmason leikur á
trommur. Einnig koma fram sérstakir gestir sem
aðstoða Uni og gera kvöldið enn meira töfrandi.
Miðasala fer fram á www.midi.is.
Egill Sæbjörnsson í
Hafnarhúsinu
Egill Sæbjörnsson listamaður heldur tónleika í
Flafnarhúsinu í tengslum við listasýningu sína sem
var opnuð 29. október á sama stað. Egill er ungur
myndlistamaður sem hefur vakið mikla athygli
bæði hér heima og erlendis á síðustu árum. Verk
hans eru blanda af gjömingum, innsetningum
og málverkum. Hann hefur meðal annars verið
tilnefndur til Carnegie-verðlaunanna 2010 og fyrir
stuttu var gefin út vegleg bók um listamanninn
í Þýskalandi. Nýlega gaf hann út aðra plötu sína
sem ber nafn listamannsins, Egill Sæbjörnsson, en
hann spilar lög af þeirri plötu á tónleikum slnum I
Hafnarhúsinu þann 17. desember kl. 20:00.
Fyrirlestrar
10. desember kl. 20:00
Hafnarhús - Samtímarými
Fyrirlestur og umræður um samstarf milli
ReykjavíkurAkademíunnar og Listasafns Reykjavíkur.
I Fríkirkjunni I Reykjavlk.
15. desember kl. 12:15
Jólatónleikar Óp-hópsins I fslensku óperunni.
Hópurinn samanstendur af sjö ungum
óperusöngvurum og píanóleikara.
12. desember kl. 13:00
Árni Björnsson segirfrá gömlum og nýjum
jólasiðum I Þjóðminjasafni (slands.
13. desember kl. 15:00
Hafnarhús - Mannlýsingar
Sigfríður Björnsdóttir tónlistarsagnfræðingur leiðir
gesti I gegnum tónlistarsöguna með Mannlýsingum
Errós.
fónlist
11. desember kl. 19:30
Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar fslands.
Sveitin flytur meðal annars Jólakonsertinn
eftir Corelli og arlur úr Jólaóratóríu Bachs.
Gestasöngvarar verða Ingibjörg Guðjónsdóttir og
Gissur Páll Gissurarson. Miðasala á www.sinfonia.is.
11. og 12. desember kl. 22:00
Breska bandið The Fancy Toys heldur tvenna
tónleika á Kaffi Rósenberg, Klapparstíg 25.
12. desember kl. 20:00
Færeyska söngkonan Eivor Pálsdóttir heldur tónleika
16. desember kl. 20:30
Útgáfutónleikar Unnar Arndísardóttur, öðru
nafni Uni, í Iðnó. Þar mun hún spila efni af
nýútgefinni plötu sinni Enchanted ásamt einvalaliði
hljóðfæraleikara.
16. desember kl. 20:30
Tónleikar með Megasi og Senuþjófunum í Salnum í
Kópavogi.
17. desember kl. 20:00
Tónleikar með Gunnari Þórðarsyni og Svavari Knúti í
Fríkirkjunni í Reykjavík.
17. desember kl. 20:00
Egill Sæbjörnsson flytur tónlist af nýútkominni plötu
sinn í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu.
18. og 19. desember kl. 14:00
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands. Flutt
verður meðal annars jólaævintýrið um snjókarlinn
með tónlist eftir Howard Blake þar sem Páll Óskar
er sögumaður. Einleikarar verða Rannveig Marta
Sarc og Sólveig Steinþórsdóttir. Gradualekór
Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar mun
einnig syngja með.
20. desember kl. 17:00/21:00
Jólatónleikar Baggalúts á stóra sviði
Borgarleikhússins. Þar flytja þeir félagar öll sín
vinsælu aðventu- og jólalög ásamt glænýjum
jólalögum.
30. desember kl. 20:00
Electra Ensemble leikur franska tónlist á
Kjarvalsstöðum.
Myndlist
27. desember kl. 17:00
Óskar Ericsson opnar fyrstu einkasýningu sína í The
Loste Horse Gallery, Skólastræti 1.
Gallerí Kling og Bang
Sýning Bryndísar Hrannar Ragnarsdóttur sem ber
heitið Snjór á himnum. Þar verða sýnd hljóð- og
myndbandsverk og innsetningar.
Hafnarborg
Tvær sýningar verða í Hafnarborg í Hafnarfirði
í desember. Á neðri hæðinni er Davíð Örn
Halldórsson með sýningu sína Hvar er klukkan? í
aðalsalnum er sýningin Úrvalið - íslenskar Ijósmyndir
1866-2009. Þar getur að líta Ijósmyndir 13 íslenskra
atvinnuljósmyndara, bæði látinna og sem enn eru
við störf.
Leiklist
26. desember
Frumsýning á söngleiknum Oliver! eftir Lionel
Bart í leikstjórn Selmu Björnsdóttur á stóra sviði
Þjóðleikhússins.
Sýningin Hnykill í leikstjórn Margrétar
Vilhjálmsdóttur. Sýningin er blanda leiklistar,
tónlistar og gjörninga. Sýningar eru í gömlu
vöruhúsnæði að Bygggörðum 5 við Gróttu.
Miðasala og nánari upplýsingar um sýningardaga í
síma 595-9170 eða 865-0170.
Hið sígilda jólaævintýri Charles Dickens verður
sýnt í Loftkastalanum í desember. Hinn ástsæli
leikari Þórhallur „Laddi" Sigurðsson fer með öll 25
hlutverkin I þessari þekktu jólasögu. Leikstjóri er Jón
Gunnar Þórðarson. Miðasala og nánari upplýsingar
um sýningardaga eru á www.midi.is.
Kvikmyndir
8. desember kl. 20:00 og 12. desember kl. 16:00
Old Joy.
Amerísk vegamynd frá árinu 2006 f leikstjórn Kelly
Reichardt. Sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum
Kvikmyndasafns fslands.
15. desember kl. 20:00 og 19. desember kl. 16:00
On Golden Pond.
Bresk/bandarísk Óskarsverðlaunamynd frá árinu
1981 í leikstjórn Mark Rydel. Meðal leikenda
eru Henry Fonda, Katherine Hepburn og Jane
Fonda. Sýnd i Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum
Kvikmyndasafns fslands.
Áhugavert
6. desember kl. 15:00
Viðey - friður og fjölmenning.
Fjölmenningarleg listasmiðja fyrir börn og fullorðna
í tengslum við friðarsúlu Yoko Ono.
STÚDENTABLAÐIÐ