Dvöl - 20.01.1935, Side 11

Dvöl - 20.01.1935, Side 11
20. jan. 1935 D V Ö L 11 F e i g ð Eftir Johan Falkberget [Johan Falkberget er fœdd- ur 30" sept. 1870 í norðanverðum Nor- egi, sonur fátœks málmnema. Hann naut engrar menntunar og gerðist sncmma námumaður. Sumar af hin- um fyrri skáldsögum hans, svo sem „Fimbulvinter" og „Urtidsnatt", sem gerast meðal námumanna, eru skrif- aðar meðan hann vann sjálfur að þeim starfa. Nú orðið má telja Falkberget eitt af merkustu skáldum Noregs. Sumar af beztu sögum hans eru: „Brœnd- offer“, 1918, „Lisbeth paa Jarnfjeld“, 1915 og „Den fjerde nattevagt", 1923. Falkberget skrifar á landsmáli]. Það leið að miðnætti. Bör Ena- son fjallabúi stóð í skrifstofu gamla læknisins og hisjaði upp um sig skinnbuxunum. Vetrarnóttin var köld og björt. Það voru þykkar, krystallaðar rósir á gluggarúðunum. Úti fyrir, undir stjörnubjörtum himni, lék skriðsnjórinn kringum húsið. Inni í stofu gamla læknisins var notalegt og hlýtt. Grenibútarnir snörkuðu í ofninum og Gabríel erkiengill, sem stóð ofan á gamla Kirívariariofninum, var orðinn eld- rauður. Heimasteypt tólgarkerti vörpuðu daufu ljósi frá skrifborð- inu út um stofuna. Mynd af forn- um og fyrirmannlegum ofursta hékk á einum veggnum milli kross- aðra korða. Þessir merkilegu korð- ar höfðu eitt sinn verið í eigu ofurstans, En er hinn gamli stríðs- maður fór til himnaríkis, skyldi hann korðana eftir, þar eð þess- konar hlutir eru ekki notaðir þar í sveit, eins og hér á jörðunni. Gamli læknirinn minntist þessa oft, er vel lá á honum. Bör Enason þorði ekki að setj- ast niður. Honum virtist það ekki ráðlegt. Stólarnir voru svo gljá- andi fagrir og í setunum voru rósaprjónaðar sessur. Það gat vel verið að það settust hreinshár á sessurnar af buxunum hans. Ekki var ofgott að eiga við gamla læknirinn ef í hann fauk, þó hann ætti það ekki á hættu. Auk þess var' hann á hraðri ferð og mátti sem minnstum tíma eyða hér inni. Fram undir Seljaás lá Sandra, stúlkan hans, fyrir dauðanum. Hann kippti í buxnahaldið. Það var tvennt til, hvort hann sæi hana hér eftir öðruvísi en á líkfjölum og í kistu. Máske var hún nú á þessari stund leyst við þrautirnar og skilin við lífið. Honum barðist grátur fyrir brjósti. Þá yrði hún ekki brúðurin hans um næstu sólstöður, eins og þau höfðu svo oft mælt sín í milli.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.