Dvöl - 20.01.1935, Page 15
20. jan. 1935
D V
Ö L
15
nótt inn á fjöllum. Hún stóð úti í
smávöxnum seljuskógi og gaf hrein-
kálfinum salt úr hendi sér. Niðri í
daldraginu niðaði áin, og í hlíðinni
glítraði í döggvotan bjarkarskóg-
inn i lággengu náttskini.
— Hvernig getur þú gleymt
Söndru þinni, henni Söndru okkar.
Hann þrýsti sér að hreininum. . .
Sólin hækkaði á lofti.------- Bör
Enason spratt á fætur. Hann þrýsti
hnénu á ný að hálsi hreinsins og
stálið blikaði í sólinni. Dýrið rak
upp öskur og ætlaði að brjótast á
fætur. Augu þess glömpuðu, en
hnífurinn var hjaltafastur í hálsi
þess og blóðboginn stóð upp með
blaðinu. Nú orkaði hann engu fram-
ar, engu nema því að deyja.
Bör Enason kippti hnífnum út.
Hann laut niður að stungunni og
teigaði hreinsblóðið. Allt kjark-
leysi var horflð. Hann rétti úr sér
og hvessti augun inn yfirheiðarn-
ar. Þessi rjúkandi rauði drykkur
gerði hann hálftrylltan. Áður en
8ólin rynni bak við Seljaás, skyldi
hann verða heima. Hann kastaði
sér niður og sötraði seytlu þá er
rann úr hálsi hreinsins. Hann fann
síðasta titringinn í líkama dýrsins.
Nú var hreininum hans borgið .
Hann stökk á fætur fölur í and-
liti, reif skíðin af sleðanum og
spennti þau á sig. Svo tók hann
stefnuna beint af augum yfir lyng-
þúfur og brísa, yfir mýrasund,
hæðir og hnúka.
Áfram. Áfram upp hæðir og
ása á jafnri þéttri göngu, niður
Ung leikkona
Myndin er af undrabarninu
danska, Lille Connie. Hún er þriggja
ára gömul, en hefir þegar leikið
eitt aðalhlutverkið í stórri, danskri
kvikmynd og tókst það svo vel,
einstakt er talið í sinni röð. Lille
Connie er fyrsti kvikmyndaleik-
arinn, sem Danir hafa átt á þessum
aldri og nýtur hún því mikillar
aðdáunar hinna yngri bíógesta þar
í landi.
brekkur og bratta með kófið upp
af stafkringlunum. Það var langt
undir Seljaás í dag. Ásarnir voru