Dvöl - 19.05.1935, Page 2
2
D V
Ö L
16. maí 19ÍJ5
Kýmnisögur
1. skáld: Heflr þú orkt kvæðið,
sem birtist í Miðdagsblaðinu í dag?
2. skáld: Já.
1. skáld: Ég hefi heyrt því
hrósað mjög mikið.
2. skáld: Það þykir mér vænt
um að heyra.
1. skáld: Já, það er alstaðar
fullyrt, að kvæðið sé eftir mig.
Húsfreyjan: Var það ekki
sex punda lax, sem þú veiddir
á laugardaginn?
Húsbóndinn: Jú, að minnsta
kosti það.
Húsfreyjan: Það er eins og
vant er hjá þeim í fiskbúðinni,
þeir reyna allt af að ná meira en
þeim ber með réttu. Þeir gera
okkur reikning fyrir átta punda
laxi.
K e n n s 1 u k o n a n : Ef ég fer
í vasa manns til að ná í peninga,
livað er ég þá?
T e 1 p a n: Konan hans.
Kennslukonan: Qeturðu sagt
mér hvað átt er við með því að
segja að Karl tólfti hafi verið ein-
valdur?
T e 1 p a n : Hann var ógiftur.
S t ú 1 k a n : Ég er viss um að
þér erúð ekki einn af þeim, sem
eiga kærustu í hverri höfn.
Sjómaðurinn: Já, því er
yður óhætt að treysta. Ég hefi
t. d. aldrei komið til Buenos Ayres.
— Hm, — bréf með Borgarrönd
------já, það er svo sem auðséð
að hann Hansen vinur minn er
dáinn — ég þekki skriftina hans.
Tveir vinir hittust eftir langan
aðskilnað. Eftir að þeir hafa skipzt
á algengum kveðjuorðum, segir
annar þeirra:
— Ég heyri sagt að það só
sérlega vingott milli þín og dóttur
læknisins, þar sem þú átt heima?
— Hvaða bölvuð vitleysa, við
erum gift fyrir löngu.
Skoti nokkur þjáðist af tannverk
og fór til tannlæknis til að láta
draga úr sér. Eftir að læknirinn
hafði athugað tennur Skotans,
skýrði hann honum frá að margar
þeirra væri svo ekemmdar og að
þær þyrfti að taka, og myndi það
kosta 18 kr. með deýfingu en 12
kr. án hennar. Eftir að Skotinn
hafði hugsað sig um stundarkorn
ákvað hann að láta taka tennurn-
ar án deyfingar. Læknirinn byrj-
aði nú á verki sínu, en er hann
hafði tekið fjórar tennur ieið yfir
sjúklinginn. Þegar hann vaknaði
úr yfiriiðinu spurði hann strax:
Var þetta deyfing? — Nei. —
Jæja, þá skulum við halda áfram.
— Hefirðu selt mikið síðan þú
byrjaðir að mála?
Málar’i’n’n: Já, já! Heilmik-
ið! tírið t mitt, þrennan alfatnað
og allar bækurnar mínar.
Prentsmiðjan Acta.