Dvöl - 19.05.1935, Síða 14
14
D V
ö L
10. mal 1035
Minnismerki Linne
í Uppsölum.
finna samband á milli plánetanna
og veðurfarsins hér á jörðu, með
því að gefa nánar gætur endur-
teknum fyrirbrigðum veðurfars-
ins í sambandi við endurteknar
afstöður í sólkerfinu. Á þann
hátt er myndaður grundvöllur til
þess að geta skygnzt fram í
tímann og sagt fyrir um veður-
farið löngu áður en það í raun og
veru skeður.
Kaldbakur.
Þótt víðlendar grundir eg gisti,
þar gnœfir ei tindur, þar rís ekki fjall
þá ber eg í sál minni
Kaldbaksins kinn,
hans klappir og vindhljóð
og snjóskriðufall
og fegurð um standberg og stall.
Eg ól8t við hans hliðar og hamra
og háreista tign þessa, ógróna lands.
Þvi þeJcki eg fjallanna áhrif og afl
á ómótað skapferli vaxandi manns,
og vald þeirra í hugsunum hans.
Þar nœðir um kinnar og kletta,
og Kaldbakur drynur
við grimmustu él.
En striðið er þeirra,
sem lúta ekki lágt,
þvi að liflð er barátta, vœrðin er hel.
Og dalbúar vita það vel.
Og þessvegna er fólkið við fjöllin,
8vo fastlynt og öruggt
í sókn og i vöm.
Það vandist því einnig
að horfa sem hœst,
og hvorttveggja stórlát
og tilbeiðslugjörn
eru bergdalsins vindleiknu böm.
Sem fyrirmynd stuðlarnir standa
að stórfelldum Ijóðum
og myndum i senn.
Frá Kaldbaksins hlíOum
með kenning og vald,
skulu komandi tímar fá listamenn,
þótt ófœddir séu þeir enn.
Guðmundur Ingi.