Dvöl - 09.06.1935, Side 8

Dvöl - 09.06.1935, Side 8
4 D \ 9. júní 1935 Ö L henni, ást, sem aðeins e n d a ð i í dauðanum“. Markgreifafrúin klappaði lóf- um fyrir þessu. „Hve indælt, já hvílíkur draumur væri það að vera elskaður þannig! Hvílík hamingja, að lifa í fimmtíu og fimm' ár umluktur af svo sterkri og heitri ást. Hve hamingjusöm og glöð hlyti sú persóna að hafa verið í lífi sínu, sem þannig var dýrkuð. Læknirinn brosti og mælti: „Já vissulega, frú, en yður skjátlast ekki nema í því eina atriði, að sá er fyrir ástinni varð, var karl- maður. Þér þekkið hann, það var hr. Chouquet, lyfsali í borginni, og konuna þekktuð þér líka. Það var gamla konan, sem gerði við stólana, hún kom venjulega til lrastalans árlega, en ég skal nú skýra nánar frá þessu". Hrifning kvenfólksins var nú horfin. Andlit þeirra virtust segja: ,,Svei“. Svo greinileg var óbeit þeirra, alveg eins og óhæfa væri að ástin félli öðrum í skaut en þeim fáguðu og fyrirmann- legu, sem einir væru verðir eftir- tektar af efnastéttunum. Læknirinn hélt nú áfram: „Fyr- ir þremur mánuðum var ég sótt- ur að banabeði þessarar gömlu konu. Iíún hafði komið kvöldið áður, í vagni sínum, sem jafn- framt var hús hennar. Vagn hennar var dreginn af aumum húðarklár, sem þér hafið séð, og fylgdu henni tveir stórir, svartir húndar, vinir hennar og varð- menn. Sóknarpresturinn var þar einnig; hún útnefndi okkur sem löglega umboðsmenn sína, og til þess að kynna okkur mikilvægi hinna síðustu óska sinna, sagði hún okkur æfisögu sína. Ég þekki ekkert einkennilegra né viðkvæmara mál. Foreldrar henn- ar gerðu einnig við stóla, hún hafði aldrei átt heima í húsi á föstum grunni. Þegar hún var smábarn hafði hún gengið í tötr- um, rifnum og skitnum. Þau dvöldu í úthverfum smábæjanna. Við limgarðana leystu þau hest- inn frá vagninum, og meðan hest- urinn tók niður og hundurinn svaf fram á lappir sínar, þá lék litla stúlkan sér í grasinu, en foreldrar hennar gerðu við alla gamla stóla þorpsins, í skuggum! álmviðarins við veginn. Það voru litlar samræður í þessu umferð- arhreysi. Eftir að ákveðið var með fáum nauðsynlegum orðum, hver skyldi ganga fram hjá hús- unum og hrópa „Við gerum við stóla“, þá var tekið til að flétta hálminn, og ef svo vildi til að barninu varð reikað of langt, eða það reyndi að slást í leik með þorpsbörnunum, þá heyrðist hin reiðilega rödd föðurins segja: „Komdu strax, ormurinn þinn“! Þetta voru einu hlýju orðin, sem hún fékk- Þegar hún varð eldri, var hún látin safna skemmdum stólbotnum, og lenti hún þá stundum1 meðal þorps-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.