Skutull - 24.12.1951, Síða 13
S K U T U LL
13
ÖRN ARNARSON:
ÞULA
JÓLAKLUKKUR
Jólaklukkur kalla,
hvellum hreim.
Hljómar þessir gjalla
um allan heim.
Ómar þessir berast
yfir stærstu höf,
upp til jökulfrera.
niður í dýpstu gröf.
Jólaklukkur kalla,
kalla enn,
koma biðja alla,
alla menn,
boða jólafriðinn
um flóð og láð:
Friður sé með yður
og drottins náð.
Jólaklukkur kalla,
Komið þér!
Komið geta ei allir.
Því er ver.
Marga, marga trylla
myrkra tröll.
Margir fara villir
um eyðifjöll.
Jólaklukkur kalla,
klökkum hreim.
Kallið gleður alla,
sem rata heim,
gremur þá, er trylla
hin grimmu tröll,
grætir þá, er villast
um eyðifjöll.
BÖRNIN GÓÐ!
Eflaust kunnið þið mörg falleg kvæði um jólin
og margar skemmtilegar þulur, sem þið svo hafið
yfir hvert fyrir annað á gleðistundu, og þá ekki
hvað sízt á sjálfum jólunum. — Gömul kona hefur
beðið blaðið fyrir þessu þulu til ykkar. Þetta er
skemmtileg þula, og vonandi hafið þið gaman af
að læra hana:
Hér koma kýr mínar
ofan af fjöllum,
heim gangandi
götu setjandi;
Flekka og hún Fræna, —
fylla þær skjólur.
Geit og hún Grána
ganga til hellis.
Hvað býr í helli?
Hornaskella.
Ekki eru allar kýr mínar, —
vantar mig Dokku.
Ekki spyr ég að henni
Ketilrokku.
Dokka hljóp í dal
og Drimbilkolla,
Æsintoppa,
Aldinskjalda.
Gullhyma mín —
hún gengur fyrir þeim öllum,
og mjólkar bezt handa börnunum öllum.
llllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHllllilllllillliltlllll
m % =
Leikfélag fsafjarðar |
| óskar
öllum |
= fsfirðingum 1
| Gleðilegra jóla
| og farsældar §
| á komandi ári |
| og
| þakkar
leikendum
og
2 leikhúsgestum
| fyrir
| líðandi
| ár.
I1IIIIIII1IIIIII!IIII1III]||||||I!II!1I!!IIIII||||||!III|||||||||||||||||||!!
Laugardag og
sunnudag kl. 9
Slunginn sölumaður.
Aðalhlutverk:
Rer Skelton.
Sunnudag ki. 5
Týndur þjóðflokkur
Spennandi mynd.
Aðalhlutverk:
Johnny Weismúller
Síðasta sinn.
Annan í jóluin kl. 2
Silfur í Syndabæli.
Aðalhlutverk:
Roy Rogers
| Kl. 5 og 9
1 Hawai-nætur
Amerísk söngva- og músík
2 mynd í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
= Ester Williams
I Peter Lawford.
et
GLEÐILEG JÓL!