Skutull

Volume

Skutull - 24.12.1964, Page 5

Skutull - 24.12.1964, Page 5
SKTTTULL 5 Börnin afhenda þingforsetum blóm. Efst til vinstri sézt Langlielle, þá Alv Kjös, varaforseti Stórþingsins, Nils Hönsvahl forseti lagaþingsins, Per Borten, forseti óðalsþingsins og síðan varaforsetarnir Einar Hareide og Jakob Petterson. Bömin eru nemendur Rosenhofsskóla. an kominn að Eiðsvelli, marg- ir um langan veg. Framan af degi hafði verið skýjað, og fremur kalt í veðri, en nú glaðnaði til, og sólin setti á hátíðina sinn blessaða svip. Stórþingið, ríkisstjórnin og gestirnir gengu í fundarsal- inn, þar sem stjórnarskrá Noregs var samin. Það var þröngt um rúmlega 200 manns í þessum litla sal, en enginn lét það á sig fá. Flestir sátu á mjóum trébekkjum, sem eru þeir sömu og fyrir 150 áram, en margir urðu að standa. Þegar konung og krónprins bar að garði, gengu þingfor- setamir allir til móts við þá og fylgdu þeim til sætis. Síðan flutti Nils Langhelle ræðu. Hann er kennari að menntun og sögufróður, og í fáum en skýrum dráttum lýsti hann því sem gerðist á Eiðs- velli fyrir 150 árum. Eftir friðinn í Kiel hafði Kristján Friðrik, prins, mikinn hug á að gera tilkall til konungs- erfða í Noregi, en konungar voru þá allir einvaldir. Fyrri- hluta ársins ráðfærði hann sig tvisvar við vini sína á búgarð- inum Eiðsvelli, sem vinur hans Carsten Anker átti. í síðara skiptið kveður prófess- or Georg Sverdrup upp úr með það, að ekki geti verið um neitt erfðatilkall að ræða, heldur beri að kalla saman stjórnlagaþing til að setja landinu stjórnarskrá, og fela hverjum, sem þingið álíti hæf- astan, framkvæmdavaldið. — Hins vegar lét hann það jafn- framt í ljós, að hann efaðist ekki um, að Norðmenn mundu velja prinsinn fyrir konung, ættu þeir frjálst val. Prinsinn féllst á álit Sverd- rups, og þriðji Eiðsvallarfund- urinn hófst á páskadag. Þar mæta þjóðkjörnir fulltrúar, en ekki útnefndir af prinsinum. Danakonungur hafði afsalað sér tilkalli til Noregs, og prinsinn Kristján Kriðrik og norski herinn stóðu gegn því, að landið yrði sameinað Sví- þjóð. Það lá mikil spenna og óvissa í loftinu, og alls konar orðrómur var á kreiki, en þjóðfundurinn kaus 15 manna nefnd til þess að semja stjórn- arskrá. Formaður nefndarinn- ar var aðeins 31 árs, Magnus Falsen. Hann naut þá þegar mikils álits, og nú er hann kallaður „faðir stjórnarskrár- innar“. En þama lögðu margir fleiri mætir menn hönd að verki, og á þeirra tíma vísu varð norska stjórnarskráin ó- venjulega lýðræðisleg. Með henni fær þjóðin æðsta vald í ríkinu. Hún felur Stórþinginu að setja lög og fjárlög, og jafnframt verður konungsríkið Noregur frjálst, óháð, óskipt- anlegt og fullvalda ríki. Þann 17. maí 1814 var Kristján Friðrik síðan kjörinn konungur Noregs, og áður en þingfulltrúarnir skildu að Eiðsvelli tókust þeir í hendur undir kjörorðinu: „Enig og tro til Dovre faller“. En margt fer öðruvísi en ætlað er, og þannig varð um sögu Noregs. Það upphófst nýtt stríð, og konungurinn varð að segja af sér og fara úr landi. Norðmenn gengu síð- an í konungssamband við Sví- þjóð, og stóð það til 1905. En þetta skeði með samningum, og í þeim samningum var það styrkur Noregs að vera sjálf- stætt ríki, með sérstaka stjórnarskrá, þing og stjórn, og mikla hæfileikamenn eins og Christie, stórþingsforseta, í fylkingarbrjósti. Þannig urðu ákvarðanir Eiðsvallarfundarins varanleg- ar. Fulltrúarnir unnu afrek, er jafnan mun stafa ljómi af í sögu Noregs. Stjórnarskráin opnaði dyrnar inn í framtíð- ina. Eitthvað á þessa leið sagðist Langhelle frá, og að lokinni ræðu hans var þjóðsöngurinn sunginn. Þessi látlausa athöfn var mjög áhrifarík. Að henni lokinni hófst útisamkoma á palli, sem reistur hafði verið á hlaðinu á Eiðsvelli. Þar flutti Langhelle aðra ræðu, Ólafur konungur flutti ágæta ræðu, flutt voru kvæði og leikin norsk lög. Mannfjöldinn skipti þúsund- um, og sólin skein. Ég minnist þess m.a. úr ræðu konungs, að hann benti á, að til þess að skilja, hvílíkt afrek Eiðsvallar fulltrúarnir hefðu unnið, yrðu menn að kynna sér ástandið í Noregi eins og það var 1814. Landið var í hafnbanni, og lá við sulti. Fjárhagur þess var í molum, og dýrtíð í vexti. Þjóðbanki var ekki til, og ekk- ert sem tryggði það, að norska ríkið gæti staðið undir þeim útgjöldum, sem það kynni að taka á sig. Og sigurvegararn- ir í Napoleonsstyrjöldunum beittu sér allir gegn því að Noregur fengi sjálfstæði. Þrátt fyrir alla þessa erfið- leika gengu feður stjórnar- skrárinnar á Eiðsvelli ó- trauðir til verks, fullir af bjartsýni, og þess vegna hljót- um við að dást að þeim í hæsta máta, sagði Ólafur konungur. Við erum í dag hamingjusöm þjóð, og höfum fengið föður- land í arf frá liðnum kynslóð- um, er byggir tilveru sína á stjórnarskrá, sem tryggir frelsi og réttlæti öllum Norð- mönnum til handa. Fyrir þetta skulum við vera Eiðsvallar- fulltrúunum þakklátir að ei- lífu, og minnast þeirra í dag og alla daga með ást og virð- ingu. Já, þannig var þetta vissu- lega þann 17. maí s.l. Það leyndi sér ekki, að Norðmönn- um þykir afar vænt um stjórn- arskrána frá 1814, og þeir dá mjög þá menn, sem hana sömdu. Að lokinni útihátíðinni bauð sveitarstjóm Akerhus konungi, krónprinsi, Stór- þinginu, ríkisstjórn og erlend- um gestum til matar, og við það tækifæri þakkaði konung- ur boðið fyrir hönd komu- manna, með skemmtilegri ræðu. Síðan var haldið til baka til Oslóar. Þar sátum við um kvöldið ágætt boð ríkis- stjómarinnar í Akershuskast- ala. Þar var kyrrlátt og gott að vera innan þykkra múra fornrar byggingar. Þaðan nutum við útsýnis út á Osló- arfjörð, lygnan og vinalegan í kvöldrökkrinu. Á þessum stað gátum við hæglega ímyndað okkur, að enn mætti heyra fótatak horf- inna kynslóða, — svo vel fundum við það fyrr um dag- inn, hversu náin tengsl em milli fortíðar og nútíðar hjá frændum okkar Norðmönn- um. ■ lllllllllllllilllllllllllllllllllllllll II111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 aupfélag Isfirðinga leggur áherzlu á, að 1 í jólamánuðinum, ekki síður en á öðrum 1 tíma árs, fái viðskiptamenn þess sem allra | mest af vörum fyrir hverja krónu. | Við senchim starfsfólki okkar og viðskipta- mönnum beztu óskir um gleðileg jól og i ánægjulegt ngtt ár. | /CaupfjéUý

x

Skutull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.