Vesturland - 24.12.1981, Side 14
árið 1976 var hafður í
frammi mikill áróður fyrir
þetta málefni. Á milli þrett-
án- og fjórtán hundruð
manns skráðu sig inn í sam-
tökin í byrjun. Og enn er
það svo að við innheimtum
félagsgjöld frá um það bil
eitt þúsund manns í þessum
félagsskap.
Strax í upphafi settu sam-
tökin sér það markmið að
brjótast í að reisa heimili
fyrir þroskahefta. f því skyni
var kosin byggingarnefnd
sem átti að sjá um það mál.
Þegar frá byrjun nutum við
mikillar velvildar, hjá for-
ráðamönnum ísafjarðar-
kaupstaðar. Og á árinu 1978
var okkur úthlutað lóð fyrir
bygginguna. Sú lóð reyndist
þó ekki heppileg þegar til
kom. En í fyrra var okkur
úthlutað annari lóð í stað-
inn. Þetta sýnir vinarhug
bæjaryfirvalda í okkar garð.
En sama skilningnum höf-
um við víðar mætt. Hluti af
því svæði sem okkur var
afhent, til byggingar, var í
eigu Tungubræðra. Ekki er
vafi á að þeir hefðu getað
seit landið fyrir drjúgan
skilding, því þetta var rækt-
að svæði, á ákjósanlegum
stað. En í stað þess, afhentu
þeir félaginu landið með
gjafabréfi. Þessari hugul-
semi, erum við sem að þessu
stöndum, afskaplega þakk-
lát.
HÚSNÆÐI FYRIR
SEXTÁN MANNS
Frá því að við hófumst
handa árið 1976, varð á
nokkur breyting. Alþingi
samþykkti ný lög um styrkt-
arfélög vangefinna. Sam-
kvæmt þeim á að mynda
svæðisstjórnir, sem hafi yfir-
umsjón þessara mála með
höndum. Lög og reglugerð
um þetta tóku gildi 1. janú-
ar árið 1980 og samkvæmt
þeim var mynduð svæðis-
stjórn fyrir Vestfirði. Sam-
kvæmt lögunum eiga eftir-
taldir aðilar að skipa svæðis-
stjórnina: Héraðslæknir,
fræðslustjóri, tveir fulltrúar
Fjórðungssambands Vest-
fjarða og einn frá Þroska-
hjálp hér á Vestfjörðum.
Þegar svæðisstjórnin tók
við, lá það fyrir að við vor-
um búin að fá lóð og láta
teikna húsnæði. Svæðis-
stjórnin tók við þessu og hélt
framkvæmdum áfram. Ernú
stefnt að því að ljúka við
byggingaframkvæmdir á ár-
inu 1983. Þegar þar að kem-
r
i
i
i
i
i
i
I
h
0\ Viö óskum starfsfólki okkar,
viöskiptavinum, svo og öllum
Vestfiröingum gleöilegra jóla
og farsæls komandi árs
og þökkum viðskiptin
á árinu sem er aö líöa.
VÉL VIRKINN SF. BOLUNGAR VÍK
I
i
i
i
i
i
i
i
i
j
Verð I. 12. ’8i:
2.8 hö. kr. 4.965,00
8,0 hö. kr. 13.743.00
10,9 hö. kr. 16.945.00
SNJðBLASARAR
pnKRISTJÁN Ó.
JJSKAGFJÖRD HE
Hóímsgoía 4 i>mi 24120 121 Reykjavjk
ww * #
nan
í jötunmób”
2,8 hestöfl
Sem svar við fannfergi
eieum við fyririiggjandi
SIMPUCJtY snjóblásara
í þremur gerðum.
Hentugir fyrir húsfélög,
fyrírtæki og bæjarfélög.
8 hestöfl
ur, verða risin af grunni tvö
hús, sem rúma 16 vistmenn.
Tengibyggingar verða þjón-
ustumiðstöðvar. Hugmynd-
in er að starfrækja þetta á
svipaðan hátt og að Vonar-
landi á Egilstöðum. Ekki
verði einvörðungu um vist-
fólk að ræða, heldur geti
verið á þessu annað form
svo sem dagvistun, eða að
fólk dveljist þar um stundar-
sakir.
MIKIL ÞÖRF
Það hafa verið gerðar
kannanir á þörfinni á slíkri
aðstöðu og þeirri sem nú er
unnið að. Þær hafa leitt ó-
tvírætt í ljós að mun meiri
þörf er á henni, en búist
hafði verið við, hér á Vest-
fjörðum.
Ég tel það meginatriði að
þessa þjónustu megi starf-
rækja heima í héraði. Að
mínum dómi er engin önnur
raunveruleg lausn til en að
hafa þessa þjónustu hér. Á-
standið er þegar þannig að
allar stofnanir, sem hýsa lík-
amlega og andlega fatlað
fólk, eru fyrir löngu yfirfull-
ar.
Eitt af þeim vandamálum
sem við stöndum þó frammi
fyrir er að manna þessa nýju
stofnun með hæfu hjúkrun-
arfólki. Þessi mál hafa verið
mikið rædd. Til dæmis á
vettvangi landssamtakanna.
Við höfum gertályktanirum
þessi efni. En það þýðir ekk-
ert að láta þetta draga úr sér
kjark. Aðalatriðið er að hér
verði starfrækt myndarlegt
heimili fyrir þroskahefta og
við verðum einfaldlega að
leita lausna á því að manna
þau, með góðu starfsfólki,“
sagði Kristján J. Jónsson að
lokum. E.K.G.
Blikksmiðja Erlendar
ísafirði Símar: 4091-4191
Óskar öllum
Vestfiröingum
gleðilegra jóla
og farsældar á
komandi ári, og
þakkar við-
skiptin á því,
sem er að líða.
Blikksmiðja Erlendar
BQ0
BRflun
Cjtuidif/
Finlux
ISFISHER
JÓLAGJAFIRNAR
FÁSTí STRAUM
Djúpstelklpottar - Kalflvélar - Vöfflujárn
★
Hárblásarar - Krullujárn - Rakvélar
Hln vinsœla Moullnette með fyglhlutum
★
Mlklð úrval loftljósa
★
Rafmagnsverkfærl AEG - SKIL
★
Hrærlvélar - Brauðristar - Hraðgrlll
★
Jólaseríur - Útl og Innl
★
Lftlð inn
★
TQSHIBA
/////
straumur hf