Búnaðarrit - 01.01.1976, Blaðsíða 79
SKYRSLUK STARFSMANNA
73
kvæmarannsókn Jtessari er nú lokið', en liún stóð í 304
daga fyrir liverja kvígu. Hafði Guðmundur Steindórsson,
ráðunautur S. N. E., umsjón með rannsókninni.
Dætur Barða voru 10 að tölu. Yoru þær að meðaltali
810 daga gamlar, er ]>ær báru, og komust í 17,2 kg liæsta
dagsnyt að meðaltali. Þær mjólkuðu á mjólkurskeiðinu að
meðaltali 2930 kg með 4,25% mjólkurfitu, sem svarar
til 12453 fitueininga (fe). Þær mjólkuðust, 118 dögum
eftir burð, á 3,07 mín., Jiar af 80% á fyrstu tveiniur.
Leiðrétt fyrir 6 kg málnyt var mjaltatími 3,32 mín. Brjóst-
mál skömmu eftir burð var 167,6 cm. Ein Barðadóttirin
mjólkaði 5580 kg á fyrstu 304 dögunum eftir buið og
fékk 700 kg af kjarnfóðri.
Dætur Garðs, 8 að tölu, voru að meðaltali 835 daga
gamlar, er J)ær báru, og kojnust J)ær í 15,1 kg bæsta
dagsnyt að meðaltali. Meðalafurðir þeirra á mjólkur-
skeiðinu voni 2368 kg með 4,50% mjólkurfitu, sem eru
10656 fe. Þær mjólkuðust, 112 dögum eftir burð, að
meðaltali á 2,55 mín., þar af 95% á fyrstu tveimur. Leið-
rétt fyi-ir 6 kg málnyt var mjaltatími 2,98 mín. Brjóstmál
eftir burð var 172,9 cm að meðaltali.
Dætur Vals, einnig 8 talsins, voru 836 daga gamlar að
nieðaltali við burð. Þær komust í 15,8 kg bæsta dagsnyt
og mjólkuðu yfir mjólkurskeiðið að meðaltali 2696 kg
með 4,17% fitu eða 11242 fe. Þær mjólkuðust, 106 dög-
um eftir burð, á 2,64 mín., þar af 80,8% á fyrstu tveimur.
Leiðrétt fyrir 6 kg málnyt var mjaltatími 2,98 mín.
Brjóstmál eflir lnirð var 169,4 cm.
Dætur Laufa voru 9, og báru Jiær að meðaltali 795
daga gamlar. Þær komust í 15,5 kg bæsta dagsnyt og
mjólkuðu að meðaltali 3012 kg með 4,09% fitu eða 12319
fe á mjólkurskeiðinu. Mjaltatími, 132 dögum eftir burð,
var 2,71 mín., og mjólkuðust 83,6% á fyrstu tveimur
mínútunuin. Leiðrétt í 6 kg málnyt svarar það lil 3,01
mín. Brjóstmál var 165,4 cm, og er Jiessi liópur smá-
vaxnari en hinir, enda kvígurnar yngri, er J>ær báru.