Búnaðarrit - 01.01.1976, Blaðsíða 369
HRÚTASÝNINGAR
363
orðnir, sem vógu 94,3 kg, og 14 veturgamlir, sem vógu
77.3 kg að meðaltali. 1 báðum aldursflokkum voru þeir
nokkru fyrir ofan meðalþunga jafnaldra sinna í sýslunni,
sjá töflu 1. Fyrstu verðlaun lilaut 31 lirútur, 26 fullorðnir
og 5 veturgamlir. Af fullorðnu hrútunum voru beztir Iri
í Hraunbæ frá Seglbúðum og Roði Böðvars í Norðurhjá-
leigu, sem báðir eru ræktarlegar kindur, eu Roði liafði
þó áberandi gallaðan neðri skolt. Narfi í Hraunbæ frá
Seglbúðum stóð efstur af tvævetlingunum, en Hallur í
Þykkvabæjarklaustri og Lokkur í Norðurlijáleigu voru
skárstir af veturgömlu lirútunum.
Skaftártunguhreppur. Sýningin var vel sótt og alls
sýndir 117 lirútar, 88 tveggja vetra og eldri, sem vógu
92.4 kg, og 29 veturgamlir, sem vógu 72,8 kg að meðal-
tali. Fullorðnu hrútamir voru því svipaðir að þyngd og
1971, en þeir veturgömlu 2,1 kg léttari. Fyrstu verðlaun
hlutu 66 hrútar, 55 fullorðnir og 11 veturgamlir eða
56,4% sýndra lirúta, en 60% 1971. Af þriggja vetra lirút-
um og eldri, slóðu þessir efslir: Þráinn í Hlíð, Bátur í
Hvannni, Óðinn í Útblíð og Glanni og Depill í Austur-
hlíð. Glanni var fjórði bezti lirúturinn á héraðssýning-
unni. Allir ertt þessir lirútar vænir og kostamiklir. Beztu
tvævetlingarnir voru þeir Bangsi á Snæbýli og Magni í
Austurhlíð, sem báðir eru útlögugóðir og vænir. Dreki
og Logi í Austurhlíð stóðu efstir af veturgömlu hnitun-
um. Hrútastofninn er nokkuð misjafn, þó nóg sé til af
góðum kollóttum hrútum í hreppnum, en verulegur
skortur er á þéttbyggðum, bakholdagóðum, byrndum
lirútum.
Kirkjubœjarhreppur. Þar voru sýndir 80 lirútar, 64
fullorðnir, sem vógu 91,3 kg, og 16 veturgamlir, sem
vógu 75,1 kg að meðaltali. Eldri lirútamir eru ]»ví 6,4 kg
þyngri en fyrir fjórum árum, en Jicir veturgömlu héldu
sömu þyngd og áður. Fyrstu verðlaun lilaut 41 hrútur,
35 tveggja vetra og eldri og 6 veturgamlir, en 3 voru
dæmdir ónothæfir. Mikil breidd er í fjárræktinni í