Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 5

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 5
Tómas Jónasson - Siguröur Stefán Jónsson Grænmetis- og ávaxta- neysla er of lítil að mati lækna og næringarfræð- inga. Minnst af hollustunni Kjöt vegur þyngst í vísitölu neysluverðs, sem Hagstofan reiknar út. Hlutur kjöts er 23%, mjólkurvörur eru 20% vísitölunnar, kornvörur 16%, grænmeti og ávextir 14% og fiskur 6%, svo að helstu flokkar séu nefnd- ir. Þetta kom fram á fundi sem Manneldisfé- lagið hélt í nóvember um verðlag á grænmeti. í samanburði við önnur lönd í Evrópu er grænmetisneysla hér á landi í lágmarki, kjötneysla í meðalagi en neysla mjólkurvara með því mesta sem þekkist. í rétta átt Síðustu tvö ár hefur dregið úr reykingum nemenda á fyrsta ári (í þriðja bekk) í Verzlunar- skóla Islands, samkvæmt könnunum sem Sveinn Magnússon skólalæknir hefur gert. Haustið 1993 reyktu um 16% nemend- anna, haustið 1994 um 14% og haustið 1995 um 9%. Sem fyrr er ástandið betra hjá piltum en stúlk- um, um 5% piltanna reykja en 12% stúlkn- anna. „Það deyr aldrei neinn á Kleppi" Tómas Helgason próf- essor og yfirlæknir á geð- deild Landspítalans segir í viðtali við tímaritið Geðhjálp að umfjöllun um geðheilbrigðismál hafi að ýmsu leyti breyst í jákvæða átt á síðustu árum. A hinn bóginn sé neikvæðnin enn til stað- ar. „Flestir óttast það helst að deyja eða missa vitið og þykir skömm að því síðara," segir Tómas. „Þess vegna eru geðsjúk- dómar enn feimnismál sem ekki er talað um. Það getur verið skrýtið að lesa minningargreinar um fólk sem hefur verið veikt af geðsjúkdómum í fjölmörg ár en sjá þess ekki getið einu orði. Fyrir langa löngu sagði kona sem var á Kleppi við mig: Ég verð eilíf, það deyr aldrei neinn á Kleppi." Geðsjúkdómar eru enn feimnismál, segir Tómas Helgason prófessor í geðlækningum. Spurt Herta fitan og heilsufarið Hvaða áhrif hafa svo- nefndar transfitusýrur í matvælum á heilsu fólks? Baldur Hjaltason efna- fræðingur og framkvæmda- stjóri Lýsis hf. svarar: I kjölfar greinar sem birtist í tímaritinu Lancet árið 1993 hefur umræða um áhrif transfitusýra á heilsuna aukist og eru nefndir til sögunnar kransæðasjúkdómar, krabbamein og fóstur- skaðar. Transfitusýrur komast í fæðu eftir tveim leiðum. Annars vegar myndast þær í vömb jórturdýra og eru þær því í mjólk, mjólkurafurðum og fitu í kjöti. Hins vegar mynd- ast þær við herslu á jurtaolíum og sjávar- dýraolíum til notkunar í matvælaiðnaði. Til- gangurinn er að fram- leiða afurð með eig- inleika sem henta til mat- vælaframleiðslu. Bræðslumarkið hækkar og þar sem fitan verður mettaðri þránar hún síð- ur. Ef leitast verður við að framleiða smjörlíki án transfitusýra er hætt við að auka þurfi magn mettaðrar fitu, en það er andstætt manneldis- markmiðum. Um 5% af heildar- fitusýrum í fitu jórtur- dýra eru transfitusýrur. Styrkur transfitusýra í smjörlíki er breytilegur eftir tegundum og lönd- um. Til dæmis kemur helmingur transfitusýra í fæðu í Danmörku úr smjörlíki. I áðurnefndri grein í Lancet var sýnt fram á að hjá þeim konum sem neyttu meira en 20 gramma af smjörlíki á dag jukust líkur á krans- æðastíflu um 50%. Aðrir hafa dregið þessar niður- stöður í efa. Margt bend- ir til þess að transfitusýr- ur keppi við fjölómettað- ar fitusýrur um ensímhvörf í líkamanum. Þá sýna rannsóknir á blóðfitu að neysla trans- fitusýra eykur styrk óæskilegra lípópróteina (LDL) en styrkur æski- legra lípópróteina (HDL) stendur í stað eða lækk- ar. Litlar upplýsingar liggja fyrir um samband transfitusýra og krabba- meins, faraldsfræðileg gögn eru takmörkuð og engar tilraunir styðja það að tengsl séu til staðar. Eins og gefur að skilja fá fóstur og brjóstabörn í sig transfitusýrur í sam- ræmi við það hvað móð- irin borðar. Enn hefur ekki verið sýnt fram á að transfitusýrur hafi áhrif á heilsu eða þroska á fyrstu mánuðum eða ár- um í lífi barna. Það veld- ur þó áhyggjum að trans- fitusýrur hafa áhrif á framleiðslu fjölómettaðra fitusýra í líkamanum, eins og áður sagði. Full ástæða er til að halda styrk transfitusýra í matvælum í lágmarki, án þess að auka hlut mettaðrar fitu. Besta ráð- ið er að draga úr fitu- neyslu í heild. HEILBRIGÐISMAL 4/1995 5

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.