Heilbrigðismál - 01.12.1995, Page 6
Erlent
Sígilt og
seðjandi
Það er ekki sama
hvaða tónlist er leikin á
veitingastöðum og í mat-
sölum. Þeir sem hlusta á
rólega og sígilda tónlist
fá sér þrjá bita á mínútu
en fimm bita ef þeir
hlusta á hraða og takt-
fasta tónlist, samkvæmt
niðurstöðum nýrrar
rannsóknar. Rólega tón-
listin hefur þau áhrif að
fólk nýtur matarins betur
og fær fylli sína af orku-
minni fæðu en annars
væri.
Health, nóvember-desember 1995.
Sól og fita
vinna saman
Mikil sólböð eru helsti
áhættuþáttur húðkrabba-
meins en nú hefur verið
bent á annan þátt sem
hefur einnig áhrif: Þeir
sem borða fituríka fæðu
eru í meiri hættu en þeir
sem reyna að takmarka
fituneyslu. Þetta kom
fram í rannsókn sem
gerð var við háskóla í
Houston. Fituneysla var
einnig tengd aukinni
tíðni forstiga húðkrabba-
meins.
Eftir sem áður eru það
útfjólubláir geislar sem
mestu skipta, en mót-
stöðuafl líkamans virðist
ráðast að einhverju leyti
af neysluvenjum.
Harvard Health Letter,
nóvember 1995.
Meiri ánægja
að morgni
Ef þú vilt vakna hress
er ráðið að fara snemma
að sofa. Þetta eru gömul
sannindi - og ný, sam-
kvæmt bandarískri rann-
sókn. Fylgst var með því
hvenær fólk fór að sofa
og hve lengi það svaf.
Jafnframt var athugað
hvort fólkið taldi sig vel
eða illa upplagt að
morgni. Niðurstaðan var
sú að þegar farið var
snemma að sofa var
morgunstundin ánægju-
legri en annars, jafnvel
þótt svefntíminn væri
ekki lengri en venjulega.
Prevention, nóvember 1995.
Ljós allan
sólarhringinn
Notkun ökuljósa jafnt
að degi sem nóttu eykst
stöðugt, enda hefur verið
sýnt fram á að með því
móti sé hægt að fækka
umferðarslysum. Sænskir
bílar hafa í nokkur ár
verið þannig búnir að
ljós kvikna alltaf þegar
bílvélin er gangsett. Nú
er stefnt að því að allir
bandarískir bílar verði
eins búnir.
Health, nóvember-desember 1995.
Ökuljós gera gagn jafnt
að degi sem nóttu.
Mokið með gát
Læknar í Michigan í
Bandaríkjunum hafa
kannað hvaða áhrif það
hefur á hrausta menn að
moka blautum snjó.
Tveggja mínútna mokst-
ur þeirra sem þátt tóku í
rannsókninni jók hjart-
sláttinn meira en mælt er
með í þolfimi og tíu mín-
útna mokstur sló út erf-
iðustu líkamsræktaræf-
ingar. Að meðaltali mok-
uðu mennirnir burt
hundrað kílógrömmum
af snjó á mínútu, eða
einu tonni á tíu mínút-
um. Þar við bætist að við
snjómokstur andar fólk
að sér köldu lofti, sem
hefur ekki góð áhrif á
hjartslátt og blóðþrýsting.
Þeir sem eru veilir fyr-
ir ættu að fara varlega í
að moka gangstéttina eða
innkeyrsluna ef þeir vilja
komast hjá brjóstverk,
óreglulegum hjartslætti
eða jafnvel hjartaáfalli.
Health, nóvember-desember 1995.
Hægt að
gera betur
Aðeins annar hver
bandarískur unglingur
sem reykir segir að lækn-
ir hafi varað sig við hætt-
unni sem fylgir reyking-
um. Rannsóknir sýna að
líkur á að fólki takist að
hætta tvöfaldist ef læknir
segir reykingamanninum
að gera það.
American Medical News,
desember 1995.
Hvenær er
rétti tíminn?
Þegar karlmenn eru á
þrítugsaldri telja þeir sig
vera svo hrausta að þeir
þurfi ekki að leita læknis,
á fertugsaldri eru þeir of
uppteknir og á fimm-
tugsaldri of hræddir.
Health, nóvember-desembcr 1995.
Eru þessar baunir enn
eitt lóð á vogarskálarnar
í baráttunni gegn sjúk-
dómum? Nokkrar rann-
sóknir sýna það. Neysla
sojabauna eða afurða úr
þeim virðist draga úr
kólesteróli í blóði og
þannig geta minnkað
hættu á hjarta- og æða-
sjúkdómum. Jafnframt
telja sumir að með
neyslu þeirra megi
lækka tíðni brjósta-
krabbameins.
Hreinna loft
í höllinni
Haraldur Noregskon-
ungur og Sonja drottning
hafa ákveðið að hætta að
hafa sígarettur á borðum
í opinberum móttökum í
höllinni. Jafnframt verða
reykingar bannaðar í að
minnsta kosti einum sal í
matarveislum.
Roykfritt, desember 1995.
Hætt að aukast
Dánartíðni úr brjósta-
krabbameini í Englandi
og Wales lækkaði um
meira en tíu af hundraði
frá 1989 til 1993, ef miðað
er við aldurshópinn 20-
79 ára. Þetta er mikil
breyting frá því sem áður
var því að tíðnin hafði
aukist jafnt og þétt frá
því um 1960. Líklegt er
að lykillinn að þessu sé
að sjúkdómurinn greinist
fyrr en áður og að með-
ferð hafi batnað.
Lancet, desember 1995.
6 HEILBRIGÐISMÁL 4/1995