Heilbrigðismál - 01.12.1995, Qupperneq 8

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Qupperneq 8
Hallgrímur Einarsson (Minjasafnið á Akureyri) Gamalt Þjóðartekjur og heilsuvernd Auknar þjóðartekjur samfara þeim jöfnuði lífs- kjara er endist til að bægja á burt annars veg- ar skorti örbirgðar og hins vegar óhófi ofnægta er vafalaust hin algild- asta heilsuvernd. Vilmundur jónsson landlæknir (f. 1889, d. 1972). Heilbrigt llf, 1944. Ófrjálslegar konur Tíðateppa er mjög tíð- ur kvilli, einkum hjá ógiftu kvenfólki. Megin- orsök þessa kvilla virðast vera of miklar kyrrsetur. Það er ekki einungis að kvenfólk sækir engar skemmtanir eða nýtur annarrar tilbreytni í dag- legu lífi, en það veldur því að þær eru ófrjálsleg- ar í allri framkomu og umgengni, þögular og þunglyndar, heldur stuðlar einnig að þessu sama að þær sitja inni við ullarvinnu og önnur störf mestan hluta ársins nema stuttan tíma á sumrin. Hér við bætist það einnig að við vinnu sína sitja þær ekki á bekkjum eða stólum heldur á gæruskinni, sessu eða dýnu, sem breitt er á gólfið, á líkan hátt og skraddarar sitja. Vafalaust eru það fleiri orsakir sem valda vondu heilsufari kvenfólks, þótt enginn veiti þeim athygli né láti sig þær nokkru skipta. Eggert Ólafsson (f. 1726, d. 1768): Fcröabók Eggerts Ólafs- sonar og Bjarna Pálssonar um ferðir þeirra á íslandi árin 1752- 3757. Útg. 1943. Spillt loft Því er áreiðanlega of lítill gaumur gefinn hér á landi að loftið er fæða, engu síður nauðsynleg en matur og drykkur, þótt það kosti ekki neitt. Ég geri ráð fyrir að þetta sé samt aðalorsökin til þess að menn hirða svo lítið um að afla sér þess og halda því hreinu. Spillt loft er engu heil- næmara en úldinn og skemmdur matur. Það er í raun réttri jafn fráleitt að anda að sér aftur lofti sem hefur spillst af kolsýru og öðrum úr- gangi úr líkama vorum, lofti sem er margbúið að ganga gegnum lungun, eins og að neyta annara úrgangsefna líkamans. Gtiðmundur Magnússon prófessor (f 1863, d. 1924). Eir, apríl 1899. Hófleg gleði Rósamt líf útibyrgir engan veginn saklausa, skynsamlega og hóflega gleði og gaman. Gleði, fjör og hreyfing er æsku- mannsins hálfa líf og framan af að kalla hans heila líf. Allt þetta er honum og nauðsynlegt; en gleðin má ekki verða að ofkæti, fjörið ekki að galsa, hreyfingin ekki að svæsni, þegar því er stýrt með hófi, þegar það leið- ist af skynsemi og sið- semi, er það allt saman náttúrunnar meðal til að vekja andann, hvíla, hressa og örva lífs og sál- ar krafta; en andinn má ekki drukkna í gleðinni, og kraftarnir ekki sljóvg- ast og eyðast af fjörinu, heldur á hvort tveggja að endurhressast og styrkj- ast. Sveinbjörn Egilsson rektor (f. 1791, d. 1852). Úr ræöu viö vígslu húss Reykjavíkur- skóla, 1846. Mannfundir, 1954. Gamli spítalinti á Akur- eyri var í þessu húsi, Aðalstræti 14, sem enn stendur. í bók Steindórs Steindórssonar Akttr- cyri, Itöfuðborg Itins bjarta norðttrs, er sagt frá því að Eggert John- sen læknir hafi látið reisa húsið árið 1833 og er það talið fyrsta tví- lyfta íbúðarhúsið hér á landi. Friðrik C. M. Gudmann kaupmaður keypti húsið og gaf Ak- Líf og tími Sá sem fer gálauslega með tímann eða glatar honum glatar meira eða minna úr sínu eigin lífi og ef til vill allri lífsham- ingju sinni. Ágúst H. Bjarnason prófessor (f. 1875, d. 1952). Samtíð og saga, 1941. Með glöðu geði Þó að fátæktin banni íslendingum sömu risnu og forfeður þeirra höfðu þá vantar þá síst viljann. Þeir veita þann beina með glöðu geði sem þeir framast mega og fögnuð- ureyrarbæ það fyrir spít- ala sem var vígður í júlí 1874, að viðstöddum landshöfðingja, og hlaut nafnið J. Gudmanns Minde. Sjúkrastofur með átta rúmum voru á efri hæð en á þeirri neðri bjó læknir og síðar spítala- haldari. I spítalanum var einnig bað sem almenn- ingur átti kost á að nota einu sinni í viku. Nýr spítali leysti þennan af hólmi árið 1898. urinn ljómar úr augum þeirra þegar gesturinn gerir sér hann að góðu. Ef farið er að réttum landssiðum heilsar gest- urinn með kossi á munn- inn, körlum jafnt sem konum, mæðrum og dætrum. íslendingar eru greið- viknir og tryggir og frá- bærlega hlýðnir yfirboð- urum sínum. Trúaðir eru þeir og kirkjuræknir, en ekki lausir við hjátrú. Ættjarðarást þeirra verður ekki með orðum lýst og hvergi líður þeim jafnvel og á heimaslóðum. Uno von Troil biskup (f. 1746, d. 1803). Bréffrá íslandi. Útg. 1961. 8 HEILBRIGÐISMÁL 4/1995

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.