Heilbrigðismál - 01.12.1995, Page 9

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Page 9
Hársbreidd milli gleði og sorgar I kvöld er veðrið svo vont, og svo kalt og svo dimmt. En það er hlýtt og bjart í kvöld inni í stofu minni. Ég gleymdi að loka hlerunum mín- um, svo það er ekki nema örþunnt gagnsætt rúðugler á milli hitans inni og kuldans úti, á milli birtunnar inni og náttmyrkursins úti. Þann- ig er líka oft í lífinu ekki nema hársbreidd á milli hins góða og hins mis- jafna, milli gleðinnar og sorgarinnar; ekki nema gagnsæ, brothætt gler- girðing á milli þess að eiga og þess að missa, á milli birtunnar og hitans í hjartanu og hins gagn- stæða. Úr bréfi frá séra Bjarna Þor- steinssyni á Siglufirði (f. 7861, d. 1938) til séra Matthíasar Jochumssonar á Akureyri, vetur- inn 1890. Birt í bókinni Ómar frá tónskáldsævi, 1961. Læknislyf úr ríkjum náttúrunnar Náttúrusagan kennir mönnum að þekkja alla þá hluti í ríkjum náttúr- unnar sem í landinu finnast og til hvers þá megi nota til fæðu og lækninga, jafnt mönnum sem dýrum. í landinu er nægilega mikið af lækn- ingaplöntum og öðrum læknisdómum sem nota má gegn flestum sjúk- dómum með miklu betri árangri en erlend læknis- lyf. Landsmenn yrðu áreiðanlega fúsir til að lesa um þessi lyf og nota þau ef þeir væru fræddir um þau. Jón Eiríksson konferensráð (f 1728, d. 1787). Um viðreisn íslands, útgefið 1768, endur- útgefið 1985. Skáldið segir konur hafa haldið lífi í þjóðinni. Óbugandi kjarkur íslenskar konur hafa aldrei látið sinn hlut eftir liggja. Frá þeim fengu börn þeirra hreysti og áræði, ekki síður en feðr- um sínum. Þær eggjuðu aðra, ekki aðeins með orðum heldur einnig með gerðum, og létu gott af sér leiða hvar sem því varð við komið. Fórnfýsi þeirra, hjálpsemi og óbugandi kjarkur hafa frá öndverðu að því stuðlað að þjóðin hélt vöku sinni og lífi til þessa dags. Davíð Stefánsson skáld (f. 1895, d. 1964). Því gleymi ég aldrei, 1962. íhugunarefni Mér hefur virst það eitt af hinum frjósömustu íhugunarefnum, sem mannar manninn, að skoða lífið frá sjónarmiði dauðans og dauðann frá sjónarmiði lífsins. Sigurður Nordal prófessor (f. 1886, d. 1974). Líf og dauði, 1940. Sagt Sparað með heilbrigði Er ekki löngu kominn tími til að hætta þessari neikvæðu umræðu um heilbrigðiskerfið, þar sem einblínt er á kostnað þess, og ræða heldur um hve mikið við spörum okkur sjálfum - og þjóð- félaginu í heild - þegar við erum heilbrigð. Og hvers virði er sá fjöldi sjúklinga sem fær bata fyrir ágæta umönnun vel menntaðs starfsliðs á vel- búnum sjúkrahúsum? Jónas Gíslason vígslubiskup. Morgunblaðið, 3. desember 1995. Óskakerfið Við þurum að gæta okkar mjög vel á því að sigla ekki í kjölfar banda- ríska heilbrigðiskerfisins. Það væri slys. I draum- um okkar sem stýrum ís- lenska heilbrigðiskerfinu samanstendur óskakerfið sennilega af jafnrétti ís- lendinga, tækni og gæð- um Bandaríkjamanna og kostnaði Bretanna. Davíð Á. Gunnarsson forstjóri Ríkisspítalanna. Helgarpóstur- inn, 26. október 1995. Mannréttindi Tilveran á ekki að þurfa að hrynja þegar einstaklingur veikist. Ekki heldur tilvera að- standenda. Fólk á ekki að missa mannréttindi sín eða virðingu við veik- indi. Það eru mannrétt- indi að geta beðið um nauðsynlega þjónustu í veikindum. Það eru mannréttindi að hlustað sé á orð manns. Magnús Þorgrímsson sálfræð- ingur. Morgunblaðið, 7. október 1995. Má ekki berjast betur gegn vímuefnum? Alvarlegt vandamál Varla leikur nokkur vafi á því að ofneysla vímuefna, áfengis og fíkniefna, er að verða eða er þegar orðin eitt alvar- legasta vandamál þjóðar- innar. Samt er ekki að sjá að neitt ofurkapp sé á það lagt að snúast gegn þessum vanda. Enginn vafi er þó á því að unnt væri að ná umtalsverð- um árangri ef menn sneru sér að því af alefli. Njörður P. Njarðvik prófessor. Morgunblaðið, 25. október 1995. Sigrar og ósigrar Það má aldrei missa vonina um að sjúklingur fái betri heilsu. Það þarf að taka ósigrum og fagna litlum sigrum. Maður þarf að vera raunhæfur en þetta er mikill jafn- vægisgangur því svartsýni smitar sjúkling- inn. Sigmundur Sigfússon geðlæknir. Dagur, 14. október 1995. HEILBRIGÐISMÁL 4/1995 9

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.