Heilbrigðismál - 01.12.1995, Side 14

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Side 14
dóms. Einnig geta áhrifin verið háð því hvort gallaða genið erfist frá föður eða móður. Dæmi um galla Nefna má nokkur dæmi um erfðagalla sem rekja má til galla í einu geni. Huntington sjúkdómur erfist ríkj- andi. Þetta er mjög alvarlegur sjúk- dómur sem einkennist af vaxandi andlegri hrörnun og truflun á stjórn og hreyfingum. Sjúkdóms- einkenni koma nær alltaf fram í einstaklingum sem erfa gallaða genið og einkenni koma fram seint á ævinni (oftast milli 30 og 50 ára aldurs, jafnvel síðar). Genið, sem auðkennt er IT15, er á litningi 4. Sjúkdómur sem nefnist Cystic fi- brosis og veldur truflun á starfsemi lungna og meltingarfæra, erfist víkjandi og kemur fram snemma á ævinni. Þetta er algengasti erfða- galli á Vesturlöndum (tíðni um einn af hverjum 2000). Genið, CFTR, er á litningi 7. Þegar hafa greinst 350 mismunandi stökk- breytingar í þessu geni, en sex þeirra eru lang algengastar. Þessi sjúkdómur hefur verið nefndur í sambandi við kembileit vegna þess hve hann er algengur en fjöldi breytinga í geninu gerir slíka leit erfiða. Vöövavisnun, bæði Duchenne vöðvavisnun, sem er mjög alvarleg- ur sjúkdómur og Becker vöðva- visnun, sem er miklu vægari sjúk- dómur, erfast kyntengt og má rekja báða sjúkdómana til galla í sama geni á X-litningi. Báðir sjúkdóm- arnir eru erfðafræðilega fjölbreyttir og stafa af mismunandi úrfelling- um í svonefndu dystrophin geni. Þetta er því dæmi um að breytingar í einu og sama geninu geta leitt til mismunandi sjúkdóma. Flókið mál Þessi dæmi sýna að jafnvel ein- gena erfðagallar geta verið flóknir. Olík vandamál tengjast greiningu, meðferð og erfðaráðgjöf vegna þessara sjúkdóma. Málið vandast enn þegar um er að ræða einkenni sem rekja má til breytinga í fleiri en einu geni. Oft er um að ræða sam- spil milli mismunandi breytinga eða samspil við einhverja umhverf- isþætti. Dæmi um flóknari einkenni eru hjarta- og æðasjúkdómar, syk- ursýki, mörg krabbamein, geðsjúk- dómar og öldrunarsjúkdómar. Reyndar á þetta við um flesta þá sjúkdóma sem liggja í ættum og nútíma heilbrigðiskerfi þarf að glíma við. Staðsetning og einangrun sjúk- dómsgena auðveldar greiningu erfðagalla meðal þeirra sem enn eru heilbrigðir. Slík greining getur verið mjög gagnleg ef hægt er að koma í veg fyrir eða að minnsta kosti að draga úr áhrifum sjúk- dóms, til dæmis með breyttum lífs- háttum eða mataræði. Einnig getur aukinn skilningur á erfðagalla leitt til bættrar meðferðar. Ffins vegar má gera ráð fyrir að áhrifin yrðu mjög neikvæð ef ekki væri hægt að bjóða upp á neinar fyrirbyggjandi aðgerðir eða meðferð. Hér erum við einmitt komin að einu erfiðasta vandamáli sem teng- ist erfðagreiningu. Erfðaupplýsing- ar eru mjög viðkvæmar. Þess eru mörg dæmi, jafnvel nú þegar, að vitneskja um arfgengan sjúkdóm hafi neikvæð áhrif á líf fólks. Tryggingafélög og vinnuveitendur telja sig hafa hagsmuna að gæta. Hver er réttur fólks í slíkum tilfell- um? Enda þótt þú sért fullkomlega heilbrigður getur þú verið í áhættu- hóp, haft genabreytingu sem getur, ef til vill, leitt til alvarlegs sjúk- dóms einhvern tímann í framtíð- inni. Er það okkur í hag að vita þetta? Verðum við ekki að geta ráð- ið því hvort erfðaefni okkar er rannsakað - og ef við tökum þátt í slíkum rannsóknum, hvernig slíkar upplýsingar verða meðhöndlaðar? Greiningaraðferð framtíðar Erfðagreining verður mikilvægur hluti af sjúkdómsgreiningum fram- tíðarinnar. Þetta verður til dæmis mikilvægt hvað snertir ýmsar teg- undir krabbameins. Breytingar í ákveðnum genum, svokölluðum æxlisgenum og æxlis-bæligenum, eiga þátt í myndun krabbameins. Athugun á breytingamynstri í slík- um genum í æxlisfrumum getur gefið mikilvægar upplýsingar um eðli sjúkdómsins og horfur sjúkl- ings. Mismunandi genabreytingar tengjast til dæmis mismunandi teg- undum ristilkrabbameins. Fjölgun eintaka (genamögnun) ákveðinna æxlisgena tengist mjög illkynja lungnakrabbameini og stökkbreyt- ingar í æxlisbæligeni spá fyrir um horfur sjúklings. Erfðagreining verður einnig mik- ilvæg við val á meðferð. Greining genabreytinga í æxlisfrumum getur til dæmis gefið mikilvægar vís- bendingar um það hvort æxlið muni svara ákveðinni lyfjameðferð eða geislun. Meðferð með ákveðn- um lyfjum og geislun beinist að því að virkja eins konar sjálfsmorðs- ferla í frumum. Genabreytingar sem gera þessa ferla óvirka eru þekktar í æxlum, en slíkar breyt- ingar geta gert æxlisfrumur ónæm- ar fyrir meðferð eða jafnvel flýtt fyrir vexti þeirra. Erfðagreiningu má svo einnig nota til að fylgjast með hvort meðferð hafi tekist. Hápróuð meðferð Genalækningar beinast að lík- amsfrumum og eru því aðeins háþróuð læknisaðgerð. Markmið þeirra er að lagfæra eða bæta áhrif erfðagalla. Slíkar aðgerðir hafa því ekkert með gerð skrímsla eða ofur- Horft innávið í kjarna hverrar frumu er erfða- efni sem geymir allar upplýsingar um eiginleika lífverunnar. Erfða- efnið er kjarnsýra (DNA) sem gerð er úr fjórum mismunandi gerðum basa (GATC), sem raðast upp í langa basaröð. Sérhver lífvera hef- ur einstaka samsetningu erfðaefnis og kallast það erfðamengi hennar. Erfðamengi mannsins er í 46 litn- ingum og á þeim eru 50-100.000 gen, auk svæða með óþekkt hlutverk. Gen eru einingar af erfðaefni sem hvert um sig ákvarðar sérstaka eig- inleika. Stökkbreytt (gölluð) gen geta valdið sjúkdómum og kallast þá sjúkdómsgen. Sérhvert gen er á ákveðnum stað á ákveðnum litn- ingi sem er þá set gensins. Einungis eineggja tvíburar hafa nákvæmlega eins erfðaefni en hægt er að greina alla aðra einstaklinga í sundur með því að skoða hjá þeim erfðaefnið. 14 HEILBRIGÐISMÁL 4/1995

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.