Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 18

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 18
Ragnar Páll Einai Landlæknaþættir / Sveinn Pálsson 1803-1804 Mikils metinn náttúrufræðingur Grein eftir Jónas Ragnarsson Sveins Pálssonar er helst minnst fyrir ferðabók sem við hann er kennd. Þar er líkt á komið með honum og tengdaföður hans, Bjarna Pálssyni. Þeir voru þó fyrst og fremst læknar að atvinnu og gegndu báðir stöðu landlæknis, Bjarni frá 1760 til 1779 og Sveinn frá 1803 til 1804. Sveinn brúaði bilið frá því að Jón Sveinsson lést og þar til Tómas Klog tók við. Sjálfur segist Sveinn hafa verið „skikkaður til að gegna landphysicus embætti þar til annar kæmi." Sveinn var Skagfirðingur, fædd- ur á Steinsstöðum í Tungusveit 25. apríl 1762. Faðir hans var prestur og silfursmiður og móðir hans yfir- setukona. Fimmtán ára gamall fór Sveinn í Hólaskóla og lauk stúd- entsprófi 1782. Síðan hóf Sveinn Aðstæður þær sem læknar þurftu að búa við fyrir tveim öldum voru erfiðar, héruðin stór og samgöngur lélegar. Sveinn Pálsson þurfti oft að fara yfir stórfljót á ferðum sín- um, meðal annars í nágrenni Vatnajökuls, en hann var einnig brautryðjandi í jöklarannsóknum. nám í læknisfræði hjá frænda sín- um Jóni Sveinssyni landlækni að Nesi við Seltjörn. Að fjórum árum liðnum sigldi hann til Kaupmannahafnar til framhaldsnáms. I háskólanum þar lagði Sveinn jöfnum höndum stund á læknisfræði og náttúrufræði, lauk prófi í náttúrufræði sumarið 1791 en varð að hætta við próf í læknis- fræði vegna féleysis. Sveinn hélt heim frá Höfn í júlí, en skömmu áð- ur hafði hann lagst í mislinga og „var talinn af, komst þó á fætur aft- ur því margt var eftir ólifað," að eigin sögn. I fjögur sumur ferðaðist hann um ísland á vegum náttúrufræðifélags- ins í Kaupmannahöfn. Mesta áherslu lagði hann á rannsóknir á sunnanverðu landinu. A ferðum sínum sinnti Sveinn jafnframt lækningum því að margir leituðu til hans. Hann gekk á Öræfajökul fyrstur manna, 11. ágúst 1794. I þeirri göngu áttaði hann sig á eðli skriðjökla og lýsti því. Ef kenning hans „hefði þá komist á framfæri hefði það nægt til að gera nafn Sveins ódauðlegt í sögu jarð- fræðinnar," segir Steindór Stein- dórsson. Hann segir einnig að á sviði vísindanna hafi Sveinn séð og skynjað skarpar og betur en öðrum var gefið. Þorkell Jóhannesson segir í Sögu Islendinga: „Leikur ekki á tveim tungum, að Sveinn Pálsson hafi að upplagi verið einn hinn snjallasti náttúruskoðari, sem þjóð vor hefir alið." Haustið 1795 (fyrir réttum tvö hundruð árum) festi Sveinn ráð sitt og kvæntist Þórunni, dóttur Bjarna Pálssonar. Sveinn vann fyrir sér við búskap og sjóróðra- þar til hann var skipaður héraðslæknir í austur- hluta suðuramtsins, haustið 1799. Því starfi gegndi Sveinn til hausts 1833 „í sínu óhæga og illa liggjandi distrikti," eins og hann orðar það sjálfur. Hann lést vorið 1840, tæp- lega 78 ára að aldri. Þau Sveinn og Þórunn bjuggu lengst að Kotmúla í Fljótshlíð og Syðri-Vík í Mýrdal. Af fimmtán börnum komust sjö til fullorðinsára. Arum saman réri Sveinn til fiskj- ar frá hafnlausri ströndinni, til framfærslu sér og sínum. Þar komst hann oft í hann krappann, en ekki síður í erfiðum lækningaferðum. Oft þurfti að fara yfir stórfljót og er fræg sagan um ferðir hans á hestin- um Kóp. Mikið orð fór af lækning- um Sveins og var hans vitjað allt frá Reykjavík til Djúpavogs. Nokkrar ritgerðir Sveins um heilsufræði og læknisfræði hafa verið gefnar út, meðal annars: Hverjir eru helstu einfaldir sjúkdómar sem hér í landi leggja grundvöll til varandi heilsideysis, Registur yfir ís- lensk sjúkdómanöfn (sjá Heilbrigðis- mál 1/1989) og Tilraun að upptelja sjúkdóma þá er að bana verða og orðið geta fólki á íslandi. Auk þess þýddi hann nokkur læknisfræðirit. Eftir Svein liggja þó einkum rit um náttúrufræði, bæði ferðabókin (sem kom fyrst út á íslensku heilli öld eftir að Sveinn lést) og önnur rit, meðal annars um jökla og eld- gos. Hann fylgdist vel með gosinu í Eyjafjallajökli 1821-23 og Kötlugos- 18 HEILBRIGÐISMAL 4/1995

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.