Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 20

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 20
Annáll íslenskra heilbrigðismála árið 1995: Tilvísanakerfi, töfrasveppur og tilsjónarmenn Janúar • Sagt var frá tilraun með lyfjagjöf gegn visnu í kind- um. Tilraunin var gerð hér á landi og þykir vekja vonir um að hægt sé að hafa áhrif á eyðniveiruna í mönnum. • Sérstök móttaka fyrir þá sem slasast við iðkun íþrótta var opnuð hjá forvarna- og endurhæfingarstöð- inni Mætti í Reykjavík. • Samtökin Lífsvog voru stofnuð til að styðja fólk sem telur sig hafa orðið fyrir læknamistökum. • Heilbrigðisþing var haldið í Reykjavík. Þar kom m.a. fram að dánartíðni kvenna úr lungnakrabbameini er einna hæst hérlendis. Febrúar • Minnst var 50 ára afmælis Reykjalundar, vinnuheim- ilis SÍBS. • Reglugerð var sett um gildistöku tilvísanakerfis frá 1. maí. í kjölfar þess sögðu flestir sérfræðilæknar upp samningum við Tryggingastofnun (sjá apríl og ágúst). • Megrunarplástarar komu á markað og seldust vel. • Tugir manna slösuðust í mikilli hálku á höfuðborgar- svæðinu 6. febrúar. Mars • Hæstiréttur sýknaði Pétur Pétursson lækni af ákæru vaxtarræktarmanna vegna ærumeiðandi ummæla. • Snjóflóð féll á heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Skemmdir urðu m.a. á tannlæknastofu. • Fullkomnasta skurðstofa landsins var tekin í notkun á Landspítalanum. • Lions-hreyfingin seldi rauða fjöður til styrktar gigt- arrannsóknum. • Sýningin „Heilsa og heilbrigði" var haldin í Perlunni í annað sinn. • Síðustu vikur fyrir kosningar skrifaði Sighvatur Björgvinsson undir samninga um byggingu þriggja heilsugæslustöðva og stækkun sjúkrahúsa. Kostnaður við þessar framkvæmdir var áætlaður meira en hálfur milljarður króna. Síðar á árinu var mörgum þessara framkvæmda frestað. Apríl • Ingibjörg Pálmadóttir tók við starfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra af Sighvati Björgvinssyni. Fyrsta verk hennar var að fresta gildistöku tilvísana- kerfisins. • Meingen arfgengs augnsjúkdóms var kortlagt á erfðafræðideild Blóðbankans. Genið er á efri hluta litn- ings nr. 11. • Reykjavíkurborg gekk til samstarfs við Reykjavíkur- deild Rauða krossins um byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Suður-Mjódd. Framkvæmdir hófust um haustið. \ve\V Un For^ngsröðm da? Sighvatur BJörgvinsson, fyrrverandi heilbrigöisráöherra: Sjúkrahúsin eiga að vera fyrir sjúklingana - ekkl fyrir fólklö sem þar vlnnur Takmarkið er að sinna gurTl sjíiklingum, ekki pappírsvinnu Snýst um sjúklinga en ekki töl- ur á blaði 20 heilbrigðismál 4/1995

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.