Heilbrigðismál - 01.12.1995, Qupperneq 22

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Qupperneq 22
• Barnadeild Landakots var flutt á Borgarspítalann, en hún tók formlega til starfa þar í september. Á deildinni eru 26 rúm. • Skrifstofu jafnréttismála barst kvörtun vegna þess að karlar fá ekki styrk frá Tryggingastofnun til að kaupa hárkollur, eins og konur fá. • Heilbrigðisráðherra kynnti tillögur um flutning yfir- stjórnar heilbrigðismála til kjördæmanna. Fækka á sjúkrastofnunum og fjármagn á að flytjast með sjúkl- ingum ef þeir leita sér lækninga utan síns kjördæmis. Ágúst • Krabbameinssjúklingum var boðið til ókeypis viku- dvalar í Hlíðardalsskóla. • Miklar umræður urðu um forgangsröðun í heilbrigð- isþjónustu, niðurskurð og sparnað. • Tryggingastofnun og læknafélögin sömdu um sér- fræðiþjónustu lækna, en mikið hafði verið deilt um fyr- irkomulag hennar. Ungir læknar mótmæltu samningn- um sem þeir töldu koma í veg fyrir nýliðun. September • Tilsjónarmenn voru skipaðir með rekstri sjúkrahúsa á Akranesi, í Hafnarfirði, í Keflavík og á Neskaupstað. • Sagt var frá því að Taugagreining hf. hafi hannað nýtt mælitæki fyrir heilarit og var ætlunin að setja það á markað í Bandaríkjunum. • Fjörutíu ára afmælis Heilsustofnunar Náttúrulækn- ingafélags Islands í Hveragerði var minnst 20. septem- ber, þegar 125 ár voru liðin frá fæðingu Jónasar Krist- jánssonar læknis. • Fjölsótt ráðstefna um framtíð héraðssjúkrahúsa var haldin á Húsavík. Mikið var deilt á tillögur um fækkun sjúkrahúsa á landsbyggðinni. • Meðferðarheimilinu Tindum og vímuefnadeild Víf- ilsstaða var lokað. Dagdeild tók við hluta af starfsem- inni. Slysaár. Ársins 1995 verður lengi minnst sem eins mesta slysaárs á síðari áratugum. I janúar féll snjóflóð á byggðina á Súðavík við Álftafjörð og í október á byggðina á Flateyri við Önundar- fjörð. I þessum tveim snjóflóðum og öðrum smærri fórust 38 manns. Svo mannskæð snjóflóð höfðu ekki fallið síðan í byrjun aldarinnar. • í tengslum við gerð fjárlaga var ákveðið að fresta öll- um framkvæmdum við heilbrigðisstofnanir sem hægt væri. Október • Barnalæknar í Reykjavík tóku upp vaktþjónustu. Heimilislæknar töldu Læknavaktina geta annað þörf- inni. • Krabbameinsráðgjöfin, símaþjónusta fyrir þá sem vilja leita upplýsinga um krabbamein, tók til starfa. • Vinnudeila skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á Landsspítalanum og Borgarspítalanum leystist eftir þriggja daga verkfall. • Lögð var fram á Alþingi þingsályktunartillaga um umboðsmann sjúklinga til að bæta samskipti sjúklinga og aðstandenda við starfsfólk heilbrigðisstofnana. • Alþjóðadags geðheilbrigðis var minnst 10. október, í fyrsta sinn á íslandi. • Davíð Á. Gunnarsson forstjóri Ríkisspítala var skip- aður ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytinu í stað Páls Sigurðssonar sem hafði gegnt því starfi í aldarfjórðung eða frá stofnun ráðuneytisins. • Nýtt geislameðferðartæki, línuhraðall, var tekið í notkun á krabbameinslækningadeild Landspítalans. Hann kostaði um 80 milljónir króna og kom í stað kó- balttækis frá 1969, en fyrir var annar línuhraðall sem orðinn var sex ára. Hver kærir sig um sjúklinga? Þetta er sjúkt Rikissjóbw seilist 1 erfbafé fatlabra , r ákvörbun ríklsstjórnarinnar um BSRB f°9nar.. ,y„. innritunarg/oldin- Vara vtf) einUavæbmgu Tekjutenging í velf erðarkerfinu F°rmabur Rannsaka E 1 SefgfejH u virknilúp- TiS"™ f Suðum“A: Æssss, sPífa;anmJJ* vilja eftirlit '»#atliatn, m Tannlæknar 22 HEILBRIGÐISMÁL 4/1995

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.