Heilbrigðismál - 01.12.1995, Page 23

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Page 23
Sigmund Jóh • Gildistöku nýrra lyfsölulaga var frestað fram í mars, en þau höfðu átt að taka gildi 1. nóvember. Nóvember • Landlæknisembættið varaði við gerilsveppi, Man- sjúríusveppinum svokallaða, sem hafði verið vinsæll meðal almennings síðan um vorið. • Tvær nýjar öldrunarlækningadeildir voru formlega teknar í notkun á Landakotsspítala í Reykjavík. • Minnst var sextíu ára afmælis St. Fransiskusjúkra- hússins í Stykkishólmi. • Röntgentæknar á Landspítalanum lögðu niður vinnu vegna deilu um aukagreiðslur. • Sagt var frá því á Alþingi að mun færri reykvísk börn hafi farið til skólatannlækna eftir að þátttaka for- eldra í kostnaði var aukin. Desember • Breytt áfengislög tóku gildi. Einkasala ríkisins var af- numin en jafnframt hert ákvæði um bann við áfengis- auglýsingum. • Hæstiréttur dæmdi í máli tannlækna og tannsmiða og úrskurðaði að tannsmiðir megi ekki „vinna í munn- holi". Héraðsdómur hafði komist að gagnstæðri niður- stöðu. • Fallið var frá hugmyndum um innritunargjöld fyrir þá sem leggjast inn á sjúkrahús. • Kínverski læknirinn Shaocheng gerði aðgerðir á tveim Islendingum á Landspítalanum. • Guðjóni Magnússyni lækni og skrifstofustjóra í heil- brigðisráðuneytinu var boðið rektorsembætti við Nor- ræna heilbrigðisháskólann í Gautaborg í Svíþjóð. • Samið var við íslandsflug um að annast sjúkraflug á Vestfjörðum. • Miklar umræður urðu á Alþingi um fíkniefnaneyslu, sem þingmenn og ráðherrar sögðu eitt helsta heilbrigð- isvandamálið. „Óþarft er að líta áfæðingu sem sjúklegtfyr- irbrigði þar sem konur þurfi að Uggja sólar- hringum saman inni á stofnun." Kristján Sigurðsson yfirlæknir á kvennadeild Landspítalans í viðtali um stytta sængurlegu við eðlilegar aðstæður. Tíminn, 4. ágúst. „Ekkert samfélag í heiminum getur veitt allt það sem boðið er upp á í heilbrigðisþjón- ustu." Guðjón Magnússon skrifstofustjóri í heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í við- tali um niðurskurð og forgangsröðun. Póstur- inn, 10. ágúst 1995. „Sparnaðurfyrir almenning verður sparnað- ur gegn almenningi." Birgir Sigurðsson rithöfundur í grein um sparnað í heilbrigðisþjónustu. DV, 11. septern- ber 1995. „Það er nokkurt ónæði vegna lífsstíls íbú- anna." Pétur Pétursson læknir á Akureyri, nýkominn úr afleysingum á Grænlandi. Dagur, 27. sept- ember 1995. „Afstaða samfélagsins til hinna veikustu og verst settu er einn traustasti mælikvarði á menningarstig þess og gildismat." Magnús Skúlason geðlæknir í grein um geð- heilsu og menningu. Morgunblaðið, 21. októ- ber 1995. „Aðgerðin er hennar eina lífsvon." Móðir sex mánaða stúlku sem var á leið í að- gerð erlendis vegna hjartagalla. Morgunblað- ið 3. nóvember 1995. „Það er of mikill asi á öllum núna. Mér finnst fólkið hafa verið rólegra áður fyrr." Kristín Hallgrímsdóttir í viðtali í tilefni af 103 ára afmæli hennar. Morgunblaðið 18. október 1995. „Almenningur er nægilega skattpíndur. Það er skylda okkar að nota betur þá fjármuni sem núfara í kerfið." Jónas Magnússon prófessor og yfirlæknir á handlækningadeild Landspítalans í grein um rekstur heilbrigðisstofnana. Morgunblaðið, 25. nóvember 1995. HEILBRIGÐISMÁL 4/1995 23

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.