Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 24

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 24
SSJ ljósmyndun (Sigurður Stefán Jónsson) Sálrænar hliðar síþreytu Grein eftir Eirík Líndal Þreyta er hvorki óalgeng né óþekkt meðal íslendinga. Þreyta og afleiðingar hennar eru með algeng- ustu kvörtunum þeirra sem leita til heimilislækna. A undanförnum ár- um hefur orðið æ algengar að fólk kvarti yfir þreytu sem virðist ekki eiga sér neinar sérstakar orsakir. Sú þreyta sem nefnd hefur verið síþreyta, er töluvert frábrugðin venjulegri þreytu. Hún er bæði al- varlegri og varanlegri en venjuleg þreyta, sem stafar af mikilli vinnu og miklu álagi. Síþreyta er líkam- legt ástand sem getur herjað á fólk á öllum aldri, af báðum kynjum. Hún er þó algengust meðal yngri kvenna. Umfang hennar getur ver- ið allt frá mikilli þreytu en rólfærni upp í það að hinn þreytti neyðist til að vera rúmfastur. Það er óvenjulegt við þennan sjúkdóm að hann er afleiðing óskil- greinds ástands sem ekki er vitað hvort einn eða fleiri þættir valda. Ekki er heldur vitað hvort um er að ræða veirusmit eða afleiðingar ann- arra sjúkdóma. Það mætti einnig hugsa sér að síþreyta sé afleiðing einstakra og/eða samverkandi þátta. Hvað svo sem orsökunum líður þá eru afleiðingarnar býsna raunverulegar fyrir þolandann. Sífellt fjölgar síþreyttum. Nýjasti hópurinn eru hermenn sem tóku þátt í Persaflóastríðinu. Þeir telja sig annað hvort hafa orðið fyrir eit- urvopnaárás eða að þetta séu af- leiðingar lyfja sem þeir urðu að taka inn til að koma í veg fyrir skaðvænleg áhrif efna- eða sýkla- vopna. Þreyta án skýringa A undanförnum árum hafa verið haldnar fjölþjóðlegar vísindaráð- stefnur um síþreytu þar sem meðal annars hefur verið rætt um hvernig eigi að skilgreina sjúkdóminn, um afleiðingar hans, þróun og rann- sóknir. Rannsóknir á faröldrum sem hafa leitt af sér síþreytuástand, svo sem Akureyraveikin, hafa einn- ig aukið þekkingu á afleiðingum og þróun sjúkdómsins. En þreytan sjálf er það sem sam- einar ótvírætt alla þá síþreyttu: Þeir þreytast við litla áreynslu og skiptir þá engu hvort áreynslan er líkam- leg eða andleg. Ástandið getur breyst frá degi til dags. Margs konar truflanir á eðlilegri líkams- starfsemi virðast einnig auka ein- kennin. Eftirfarandi einkenni hafa verið talin algeng: Hægari hugsun, lé- legra minni, skortur á einbeitingu, fælni, kvíði, þunglyndi, of lítil eða of mikil svefnþörf, vöðva- og lið- verkir, hitaslæðingur, hálsbólga, meiri viðkvæmni fyrir hita og kulda, óvenjulegir höfuðverkir, ljósfælni, óregla á hægðum og munn- og augnþurrkur. Það hefur einnig komið fram að þol fyrir áfengi minnkar. Fleiri einkenni hafa verið nefnd, en þessi upptalning sýnir þó að margt getur fárið úr- skeiðis. Margvísleg áhrif Þótt einkennin komi á tiltölulega skömmum tíma verður þeirra ekki endilega vart samtímis. Áhrifin eru margvísleg. Oft reynist erfitt að stunda fulla vinnu, hvort sem er innan eða utan heimilis. Ekki hefur heldur verið hægt að stunda form- legt nám af sama krafti og áður. Sambúð fólks er mjög viðkvæm fyrir álagi og veikindum. Sjúkdóm- urinn getur mjög auðveldlega leitt til hjónabandsvandamála ef grein- ing dregst á langinn og ef ekki er brugðist við breyttum aðstæðum tímanlega. Helstu félagsleg áhrif sjúkdóms- ins eru að tjáskipti verða stirðari, frumkvæði verður sjaldgæfara, hreyfingar hægari og kynlífsvanda- mál geta orðið algengari. Til að auðvelda hinum síþreytta lífið er gott að skipuleggja ekki fram í tímann á þann veg að það eigi að framkvæma eitthvað á ein- hverjum sérstökum tíma, heldur að stefna að því að framkvæma hlut- inn einhvern tímann á ákveðnu tímabili, einmitt á þeim tíma sem Síþreyta er án sýnilegra skýringa og kemur oft fram við litla áreynslu. Lítið er vitað um orsakir sjúkdómsins en margir læra smám saman hvaða þættir hafa áhrif á sjúkdóminn. Sumir hafa til dæmis ofnæmi fyrir ákveðnum fæðuteg- undum. Síþreyta er líkamlegt ástand sem getur herjað á fólk á öllum aldri. 24 heilbrigðismAl 4/1995

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.