Heilbrigðismál - 01.12.1995, Page 27

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Page 27
Nýmakrabbamein eru algengari hér en í öðrum löndum Grein eftir Tómas Guðbjartsson, Guðmund Vikar Einarsson og Jónas Magnússon Síðastliðin ár hefur staðið yfir á handlækningadeild Landspítalans viðamikil rannsókn á krabbamein- um í nýrum. Athyglin hefur aðal- lega beinst að tíðni og hegðun sjúk- dómsins hér á landi og lífshorfum sjúklinga eftir greiningu. Litið var á öll nýrnakrabbamein sem greindust á árunum 1971-1990, samtals 550 til- felli. hrenns konar krabbamein. Krabbamein í nýrum eru yfirleitt svokölluð nýrnafrumukrabbamein eða í tæplega níu tilfellum af hverj- um tíu. Þau eru upprunnin frá hin- um eiginlegu nýrnafrumum og greinast oftast hjá fólki sem er milli sextugs og sjötugs. Heldur fleiri karlar greinast með sjúkdóminn en konur og hann er jafnt í hægra og vinstra nýra. Hjá fullorðnum eru einnig svokölluð nýrnaskjóðuæxli en nýrnaskjóðan er hluti af safnkerfi Nú greinast um 30 ný tilfelli á ári af nýrnakrabbameini hjá körlum og um 15 hjá konum, samkvæmt upplýsingum frá Krabbameins- skrá Krabbameinsfélags íslands. Krabbamein í nýrum Árlegt nýgengi af 100.000 nýrans. Einkenni beggja þessara krabbameinstegunda eru svipuð en vefjagerð nýrnaskjóðuæxlanna svipar til krabbameina í þvag- blöðru. Svokölluð Wilms-æxli grein- ast hjá börnum, oftast á aldrinum tveggja til fjögurra ára. Þessi æxli eru af allt öðrum toga en nýrna- frumu- og nýrnaskjóðukrabbamein og greinast yfirleitt vegna fyrirferð- ar í kviði. Algengt á heimsvísu. Krabba- mein í nýrum hafa ekki verið með- al algengustu krabbameina hér á landi. Til dæmis voru þau í 6. sæti hjá körlum og 10. sæti meðal kvenna yfir nýgreind krabbamein á íslandi á árunum 1990 til 1994. Rannsóknir hafa þó leitt í ljós að tíðni nýrnafrumukrabbameins hef- ur verið mjög há síðustu tvo ára- tugi. Þegar tekið er mið af mann- fjölda er nýrnafrumukrabbamein sennilega hvergi algengara í heim- inum. A hinn bóginn eru nýrna- skjóðuæxli í meðallagi algeng hér á landi og athyglisvert er að Wilms- æxli í börnum eru mun fátíðari hér en í nágrannalöndunum. Orsakir á huldu. Lítið er vitað um orsakir nýrnakrabbameina, minna en um mörg önnur krabba- mein. Þó er vitað að reykingar auka áhættuna og eru eini greinilegi áhættuþátturinn. Lúmsk einkenni. Algengustu einkenni krabbameina í nýrum eru verkir í kvið eða síðu og blóð í þvagi. Þyngdartap, hiti og einkenni blóðleysis eru einnig oft til staðar. Svipuð einkenni geta átt við fjölda annarra sjúkdóma. Oft eru ein- kenni væg í byrjun og sjúklingar draga því að leita læknis. Erfitt er að greina æxli í nýranu, t.d. við þreifingu á kvið, enda liggja nýrun djúpt í kviðarholi. Þetta getur vald- ið enn frekari töfum á greiningu. Rannsóknin, sem áður er nefnd, leiddi í ljós að helmingur sjúklinga hafði haft einkenni í þrjá mánuði eða lengur áður en rétt greining var gerð og oft varð enn meiri töf á greiningu. Skurðaðgerð helst beitt. Með- ferð er fyrst og fremst fólgin í skurðaðgerð þar sem nýrað er numið á brott. Ef krabbameinið hefur ekki dreift sér út fyrir nýrað má gera ráð fyrir að um lækningu sé að ræða. Arangur skurðaðgerða hefur verið mjög góður hér á landi, reyndar með því besta sem þekkist. Leitað nýrra leiða. Hjá sjúkling- um með útbreiddan sjúkdóm er stundum beitt lyfjameðferð, auk skurðaðgerðar, en gallinn er sá að nýrnafrumukrabbamein eru oft lít- ið næm fyrir hefðbundnum krabba- meinslyfjum. Síðasta áratug hafa verið gerðar tilraunir með lyf sem örva ónæmiskerfi sjúklinganna gegn krabbameininu. Árangurinn hefur stundum verið ágætur, en meðferðin getur haft ýmsar auka- Flest nýrnakabbamein eru svo- nefnd nýrnafrumukrabbamein en aðrar tegundir eru nýrnaskjóðu- æxli og Wilms-æxli. Einkenni eru oft lúmsk og greining erfið. HEILBRIGÐISMÁL 4/1995 27

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.