Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 34

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Síða 34
Tómas Jónasson Eitthvað bogið Vorið 1989 samþykkti Alþingi þingsályktun um manneldis- og neyslustefnu. Samkvæmt henni er stefnt að því að auka neyslu kol- vetna (einkum úr grófu korni, kart- öflum og grænmeti), að prótein verði áfram ríflegt í fæðu lands- manna og að dregið verði úr neyslu á fitu, einkum mettuðum fituefn- um. Könnun sem gerð var árið 1990 sýndi að fita gaf að jafnaði 41% af orku fæðunnar en markmiðið er að hlutfallið fari niður fyrir 35%. Með því móti má vinna gegn hjarta- og æðasjúkdómum og öðrum sjúk- dómum. Manneldisráð birti endur- skoðuð manneldismarkmið árið 1994 og hníga þau í sömu átt. En hvernig miðar? Mjólkurframleiðendur hafa verið iðnir við að setja nýjar vörur á markað. Fjörmjólk er dæmi um fitusnauða vöru sem fellur vel að manneldismarkmiðum, en það virðist undantekning því að margar nýjar mjólkurafurðir eru feitar, jafn- vel þótt þær séu settar á markað undir nöfnum sem benda til holl- ustu. Skyr hefur hingað til verið talið mjög hollt, enda er fitan að- eins 0,2 grömm í hverjum 100 grömmum. Nýlega kom á markað svonefnt Skólaskyr, sem greinilega er ætlað ungu fólki. Þegar að er gáð sést að fitan í því er 4-5 grömm, sem er svipað og í rjómaskyri sem, eins og nafnið bendir til, er ekki fitulítil afurð. Samt er Skólaskyrið auglýst sem „svakalega hollt". Hamborgarar eru vinsæl fæða. Á umbúðum margra tegunda eru engar upplýsingar um næringar- gildi, en sumir framleiðendur vilja fræða neytendur og leyfa þeim að velja milli hamborgara með mis- munandi mikilli fitu. Þá bregður svo við að hamborgarar með 8-12 grömmum af fitu í hverjum 100 grömmum eru um fjórðungi dýrari en þeir sem eru með 12-16 grömm- um af fitu. Þetta er ekki beint hvatning til heilsusamlegra lífs- hátta. Enn eru á markaði bjúgu sem eru svo feit að af hverjum 100 grömm- um er fitan 42 grömm (í rjóma er fitan „aðeins" 36 grömm). Þetta þýðir að 89% af orku í bjúgunum koma úr fitu. Næringarefnamæl- ingar fæðudeildar Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins sýna að í kindabjúgum sé fita að meðaltali 24 grömm af hverjum 100 grömmum, í hrossabjúgum 20 grömm og kálfa- bjúgum 18 grömm. I algengustu vínarpylsunum eru 16 grömm og hægt er að fá léttpylsur með aðeins 7 grömmum af fitu. Nýjustu afurð- irnar í þessu formi, sem taka meðal annars mið af neysluvenjum Dana, eru þó enn feitari eða um 25 grömm. Var á bætandi? I þessu sambandi má minna á að þegar leitað var skýringa á heims- meti í hjartasjúkdómum í Kirjála- héraði í Finnlandi fyrir nokkrum árum var talið að feitur matur ætti þar stóran hlut að máli. Eitt af þvf sem þar var til nefnt voru feitar pylsur og feit bjúgu sem voru ein- hvers konar þjóðarréttur. Með reyk- ingavörnum, breyttum áherslum í mataræði og fleiri aðgerðum tókst að draga verulega úr hjartasjúk- dómum í héraðinu. Manneldisráð hefur á síðustu ár- um unnið vel og skynsamlega að því að leiðbeina fólki um fæðuval og gefið út vönduð fræðslurit. Ein lítil stofnun getur haft nokkur áhrif en betur má ef duga skal. Mikil- vægast er að ala upp kynslóð sem er það vel að sér um hollustu og næringu að hún geti sjálf tamið sér heilnæmar neysluvenjur. Eru áherslur í skólakerfinu réttar? Skiptir ekki meira máli fyrir fram- tíð æskufólksins að það geti gert sér grein fyrir því hvað það lætur ofan í sig heldur en að vita hvað grísku guðirnir hétu eða hverjir réðu ríkjum í Evrópu fyrir nokkr- um öldum? Stjórnvöld, sem segja að þjóðin sé að kikna undan kostnaði við lækningar sjúkdóma sem að hluta til stafa af röngum lífsháttum, geta gert meiri kröfur til framleiðenda um að upplýsa neytendur um hvað er í þeim neysluvörum sem hér eru á boðstólum. Framleiðendur, sem nú leggja áherslu á það hve íslensk framleiðsla sé hrein, ættu einnig að sjá sóma sinn í því að bjóða fitu- snauðari vörur. Við þurfum ekki á allri þessari orku að halda - hún sest utan á okkur, ef ekkert er að gert. Jónas Ragnarsson, ritstjóri. 34 HEILBRIGÐISMÁL 4/1995

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.