Heilbrigðismál - 01.03.1996, Blaðsíða 9

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Blaðsíða 9
Erfiðið styrkir iíkamann og bætir heilsuna. Ekkiskapaður til iðjuleysis Með erfiði skaltu þig af jörðunni næra, var eitt af skaparans fyrstu boð- orðum til mannsins, hvern hann ekki skóp til iðjuleysis heldur til að rækta og yrkja jörðina, gera hana þar við blóm- lega, ávaxtarsama, sér og öðrum holla, varanlegu aðsetri og uppeldis- meðali, og erfiðið átti undireins að verða við- hald hans heilsu og lífs; því mannreynt er að ekk- ert styrkir eður viðréttir hvort tveggja framar en erfiði. Magnús Steplienscn konferensráð (f. 1762, d. 1833). Mannfundir, 1954. | Dýrmæt stund Tíminn er það dýr- " mætasta sem maður á, | og sá sem veit að hann * hefur varið honum vel, | getur verið ánægður. I Skúli Guðjónsson á Ljótunnar- stöðum (f. 1903, d. 1968). I Bréf úr myrkri, 1961. Sagt Heilsuskömmtun Skömmtun í heilbrigð- ismálum er raunveruleiki líðandi stundar, hvort sem fólki líkar betur eða verr. Vont er að hún verði áfram tilviljana- kennd og umdeilanleg eins og nú er. Betra er að hún hvíli á skilgreindri forgangsröðun sem eigi sér skilgreindar for- sendur. Jónas Kristjánsson ritstjóri DV, 18. janúar 1996. Verri þjónusta Niðurskurður á út- gjöldum til heilbrigðis- mála leiðir ekki sjálfkrafa til sparnaðar eða hagræð- ingar. Reynsla annarra þjóða er sú að niður- skurður dregur úr fram- leiðni, þjónustustigi og þjónustulund við al- menning. Jóhann Rúnar Björgvinsson hagfræðingur. DV, 13. febrúar 1996. Að hruni komin Það sem snýr að sjúkl- ingum, sem heyra og sjá í fjölmiðlum dag hvern að þjónustan sé komin að hruni, er ekki glæsileg mynd. Það er siðferðileg skylda allra heilbrigðis- stétta að forðast að grafa undan trausti sjúkling- anna á stofnunum eða starfsmönnum þeirra. Skúli G. johnsen héraðslæknir. DV, 16. febrúar 1996. Með ráðdeild Við verðum að treysta öruggan rekstrargrunn heilbrigðisþjónustunnar. Það verður ekki gert með aukinni skuldasöfnun. Það verður gert með ráð- deild. Sú ráðdeild mun áfram skila okkur bestu heilbrigðisþjónustu og þeirri öruggustu sem völ er á. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. Tíminn, 20. febrúar 1996. Dugnaðarfólk Glæsilegur meirihluti íslenskrar æsku er heil- brigt og reglusamt dugn- aðarfólk, bjartsýnt og lífs- glatt, albúið þess að tak- ast á við hverja þá raun sem örlaganornin lumar á. Hins vegar er sérhvert orð sem gefur í skyn víð- tæka spillingu æskulýðs- ins ekki aðeins fjarri öll- um veruleika heldur einnig háskaleg ginning. Helgi Hálfdanarson Ijóða- pýðandi og lyfjafræðingur. Morgunblaðið, 2. tnars 1996. Best í heimi Það eru ekki bara sér- vitringar sem borða grænmeti heldur er öll þjóðin að vakna til lífsins og sér að við ræktum Hvað er betra en nýtt ís- lenskt grænmeti? besta grænmeti í heimin- um. Við þurfum ekki að hræðast samkeppni er- lendis frá því við erum að framleiða betra græn- meti en nágrannaþjóðir okkar. Georg Ottósson garðyrkjubóndi. Bændablaðið, 13. ágúst 1996. Upp og niður Sjúkrahúskerfið hefur verið byggt svo rækilega upp að það er orðið aðal- viðfangsefni heilbrigðis- yfirvalda að rífa það niður. Guðmundur Helgi Þórðarson læknir. Vikublaðið, 8. mars 1996. Alltaf á vakt Sífelldar bakvaktir eru mannskemmandi. Fólk hefur aldrei fullkomna ró. Vitneskjan um að geta verið kallaður út hvenær sem er veldur kvíða, það er alveg sama hversu menn eru reyndir. Fólk fær hjartslátt ef síminn hringir. Að geta aldrei um frjálst höfuð strokið tekur á taugarnar. Hjalti Kristjánsson heilsugæslu- læknir. Fréttir, Vestmannaeyjum, 22. febrúar 1996. Fegurð lífsins Lífið er of stutt og dýr- mætt til að sóa því í rusl- menningu. Heimurinn er fullur af fegurð sem á er- indi við alla. Líf án feg- urðar er afar fátæklegt. Ingólfur Guðbrandsson ferðamálafrömuður. Morgutiblaðið, 23. tttars 1996. Á villigötum? Getur verið að hátækn- in sé að gera okkur ólæsa á sjúkdómseinkenni sem verða numin með næm- um höndum, vakandi augum og rökréttri hugs- un? Árni Björnsson læknir. Læknablaðið, niaí 1996. HEILBRIGÐISMÁL 1/1996 9

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.