Heilbrigðismál - 01.03.1996, Side 12

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Side 12
Er varasamt að vera í ljósum? Fræðsluefni frá Geislavömum ríkisins Útfjólublá geislun Sólin veitir okkur birtu og yl. í sólarljósi er útfjólublá geislun (UV-geislun, Ultra Violet Radiation) en bylgju- lengd hennar er utan þess sviðs sem mannsaugað greinir. Útfjólublá geislun myndar litarefni í húðinni og við verðum „brún". Geislunin er tvenns konar, annars vegar útfjólublá geislun með stuttri bylgjulengd, B- geislun (ÚV-B), sem er orkumikil og hefur mest áhrif á húðina, og hins vegar útfjólublá geislun með langri bylgjulengd, A-geislun (UV-A). Styrkur B-geislunar- innar er mjög háður sólarhæð, sem ræðst af hnattstöðu, tíma dags og árstíð. Útfjólublá B-geislun eykur framleiðslu á litarefni (melaníni) í húðinni og yfirhúðin þykknar. A-geislunin leysir síðan litarefnið úr litarfrumum húðarinnar þann- ig að það verður sýnilegra. Þessi viðbrögð húðarinnar eru eölileg vörn gegn sólarljósi. Við óhófleg sólböð, eða ljósböð sem stunduð eru á sólbaðsstofum, getur B- geislun valdið brunasárum. A-geislun getur einnig valdið bruna í húð en til þess þarf mun meiri geislun eða lengri geislunartíma. Báðar tegundir geislunar geta skaðað húðfrumur og aukið hættu á varanlegum húð- skemmdum og húðsjúkdómum. Varnir gegn geislun I lögum um geislavarnir frá 1985 segir: „Lög- um þessum er ætlað að tryggja nauðsynlegar ör- yggisráðstafanir gegn jónandi geislun frá geisla- virkum efnum og geislatækjum í því skyni að koma í veg fyrir skaðleg áhrif slíkrar geislunar. Með markvissum aðgerðum skal vinna að þessu, m.a. með nauðsynlegu eftirliti með inn- flutningi og allri meðferð geislavirkra efna og geislatækja, svo og með athugunum og rann- sóknum á sviði geislavarna." Geislavarnir ríkisins eru sjálfstæð stofnun undir yfirstjórn heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi hennar er „eftirlit og leyfisveitingar vegna inn- flutnings og notkunar röntgentækja, geisla- virkra efna og annarra geislatækja," eins og seg- ir á vefsfsíðum stofnunarinnar á Internetinu (http://www.geirik.is). Auk þess hefur hún eft- irlit með geislaálagi á starfsmenn sem vinna við jónandi geislun, annast vöktun vegna geisla- virkra efna í matvælum og umhverfi og veitir fræðslu, m.a. um ójónandi geislun, svo sem vegna sólarlampa, örbylgjuofna og farsíma. -r- Geislun í ljósabekkjum Perur í ljósabekkjum gefa aðallega frá sér útfjólubláa A-geislun en einnig lítils háttar B-geislun. Þó eru til ljósabekkir sem gefa jafn mikla B-geislun og sólin í Mið-Evrópulöndunum, eða mun meira en sumarsólin hér á landi. Útfjólublá A-geislun frá perum í ljósabekkj- um er oft þrisvar til fjórum sinnum meiri en í sumar- sólinni hér á landi. í nokkrum gerðum ljósabekkja get- ur útfjólublá geislun í heild verið álíka mikil og í sólar- ljósi hitabeltislandanna. Léleg vernd gegn sólbruna Brúnn húðlitur sem fenginn er með ljósböðum í ljósabekkjum er ekki eins og venjuleg „sólbrúnka" (vegna þess að A-geislunin er hlutfallslega mikil) og veitir því ekki eðlilega vörn gegn sólarljósi. Því er ráð- lagt að skýla sér fyrir sólskini þótt húðin sé dökk eftir ljósböð. Ljósböð valda ekki þykknun á hornlagi húðar- innar eins og sólböð gera. Þykknunin er einmitt ein vörn húðarinnar gegn miklu sólskini og seinkar sól- bruna. Ef húðin er brún eftir ljósböð verða menn síður varir við byrjunareinkenni sólbruna, til dæmis í löngu sólbaði á sólarströnd. Lítil vörn er því fólgin í „grunn- brúnku" sem fengin er í ljósabekk áður en farið er til sólarlanda. Best er að venja húðina smátt og smátt við sólarljósið með því að vera úti í byrjun sumars. Húðin eldist fyrr Ljósabekkir gefa frá sér meiri útfjólubláa A-geislun en sólin. Þessi geislun smýgur langt undir yfirborð húðarinnar. Ohófleg ljósböð og sólböð valda sliti á húðinni, teygjanleiki hennar minnkar og hún verður hrukkóttari en ella. Ekki eru til nein smyrsl sem græða slíkan húðskaða að fullu en þó eru til lyf í kremformi sem geta minnkað húðslitið. Rakakrem dugir sjaldnast til að bæta úr þornun í dýpri lögum húðarinnar. Ljósabekkir eru ekki hættulausir Hættan við notkun ljósabekkja er sennilega sú sama og af sólarljósi. Nokkuð algengt er að sólarofnæmi komi fram við ljósböð. Rannsóknir benda til þess að út- fjólublá A-geislun eigi þátt í myndun húðkrabbameins, en tíðni þess hefur aukist mikið síðustu ár, bæði hér á landi og erlendis, og er það rakið til aukinna sólbaða og ekki síður aukinnar notkunar ljósabekkja. Ár hvert eru greind hér á landi meira en fjörutíu ný tilfelli af krabbameini í húð. Á flestum ljósabekkjum er tímarofi sem slekkur ljós- in áður en hætta skapast á bruna. Ef rofanum er breytt þannig að baðtími lengist eða ljósböð eru endurtekin með of stuttu millibili er hætta á sólbruna þó til staðar. 12 HEILBRIGÐISMÁL 1/1996

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.