Heilbrigðismál - 01.03.1996, Qupperneq 24

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Qupperneq 24
upplýsinganna á velferð eða líðan sjúkl- inga. Það er að mörgu leyti skiljanlegt að sjúklingar leggi allt sitt ráð í læknishendur, en það er ámælisvert af sjúklingi að firra sig allri ábyrgð af þeirri ákvörðun sem taka þarf um vanda hans. í mörgum tilvikum verða sjúklingar að vita sannleikann vegna þess að það er forsenda þess að hægt sé að taka á sjúkdómnum, t.d. sykursýkissjúkl- ingar. Það er líka almenn skylda sjúklings að takast á við vanda sinn og vera ábyrgur samverkamaður í meðferð og til þess þarf hann að vera upplýstur. Það er auk þess grundvallaratriði að sjúklingurinn er sá aðli sem samþykkir eða hafnar ráðleggingu fagmanns. Það er athyglisvert að læknar hafa séð ástæðu til þess að minna einmitt á þetta at- riði í siðareglum sínum (Codex ethicus 11,5.): „Læknir skal, eftir því sem tök eru á, útskýra fyrir sjúklingi eðli og tilgang rann- sókna eða aðgerða sem hann gerir eða ráð- leggur sjúklingnum. Þess skal ávallt gætt, og ef með þarf skal sjúklingi gert það ljóst, að læknir ráðleggur en skipar ekki." Frá sjónarhóli fagmannsins hlýtur mark- miðið með upplýsingum, útskýringum og ráðleggingum til sjúklings alltaf að vera að gefa honum kost á því að vera upplýstur og verða ábyrgur þátttakandi í eigin með- ferð. Það orkar ekki tvímælis að sjúklingur- inn á þann rétt. Hitt er annað mál og erfið- ara hvort fagfólki beri nokkurn tíma skylda til þess að krefjast þess af sjúklingi að hann taki upplýsta ákvörðun. Til að svara þess- ari spurningu, þarf að hyggja að því hvaða þættir það eru í fari sjúklingsins sem hindra að hann beri skynbragð á ástand sitt eða skilji þau úrræði sem honum standa til boða. Það er vel hægt að hugsa sér góðar ástæður fyrir því að krefjast ekki upplýsts samþykkis sjúklings sem þarf að gangast undir læknisaðgerð eða rannsókn sem tengist meðferð hans. Þar með er ekki sagt að ekki skuli veita sjúklingi upplýs- ingar, heldur að ákvörðun hans þurfi ekki endilega að vera byggð á fullnægjandi skilningi á þeim, þ.e. „upplýst". í slíkum tilvikum er aftur á móti brýnt að gera sér grein fyrir því af hverju skilningsleysið stafar. Mismunandi ástæður Til eru bæði réttmætar og óréttmætar ástæður sjúklinga fyrir því að taka ekki upplýsta ákvörðun um læknismeðferð. Dæmi um ástæður sem hljóta að teljast óréttmætar eru slæm framsetning upplýs- inga og ranghugmyndir. Hafi sjúklingur verið illa upplýstur og það sé meginástæð- an fyrir því að hann getur ekki tekið ákvörðun byggða á vitneskju er vitanlega brýnt að bæta úr því. Stundum kvarta sjúklingar til að mynda yfir því að til þeirra sé talað á flóknu „fagmáli" sem þeir skilji ekki. Samt sem áður kunna þeir ef til vill ekki við að angra önnum kafna fagmann- eskjuna með spurningum og látast því skilja það sem um er að ræða. í slíkum til- vikum er „sökin" beggja aðila og sýnir vel fram á mikilvægi þess að upplýsingamiðl- un fari fram í samræðum fagmanns og sjúklings þar sem þeir skiptast á spurning- um og svörum um þá ákvörðun sem taka þarf. Það er líka besta leiðin til þess að rek- ast á og leiðrétta ranghugmyndir sem sjúklingar kunna að vera haldnir. Þess eru dæmi að sjúklingar geri sér alrangar hug- myndir um sjúkdóma og þær standi í vegi fyrir því að sjúklingur geri sér raunhæfa grein fyrir ástandi sínu. Þegar svo er, koma almennar upplýsingar oft ekki að gagni því sjúklingurinn hvorki sér né heyrir nokkuð annað en það sem kemur heim og saman við hans eigin ranghugmyndir. Þess eru líka dæmi að fólk hreinlega afneiti vanda sínum, t.d. þegar sjúklingur hafnar geisla- meðferð vegna þess að hann trúir því ekki að hann sé með krabbamein. Þegar sjúkl- ingur hafnar meðferð á grundvelli slíkra ranghugmynda ber lækni og hjúkrunar- fólki skylda til þess að uppræta þær og knýja fram upplýsta ákvörðun. Sjúklingur á rétt á öllum þýðingarmikl- um upplýsing- um sem varða meðferð hans, en það er mats- atriði hve langt skal gengið. Það er almenn skylda sjúklings að takast á við vanda sinn og vera ábyrgur samverkamaður í meðferð og til þess þarf hann að vera upplýstur. 24 HEILBRIGÐISMÁL 1/1996

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.