Heilbrigðismál - 01.03.1996, Síða 25

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Síða 25
Sjúklingur getur líka haft fyllilega rétt- mætar ástæður fyrir því að taka ekki upp- lýsta ákvörðun um læknismeðferð. Hér á ég meðal annars við tilvik þar sem sjúkl- ingur einfaldlega kýs að leggja ráð sitt í hendur læknis og hafnar því að taka upp- lýsta ákvörðun sjálfur. Þetta er stundum nefnt faglegt forræði, byggt á trúnaðar- trausti. Það er ljóst að sjúkrahúsaðstæður bjóða föðurlegri leiðsögn heim og erfitt getur verið að hafna því sé um hana beðið. Sé það ótvíræður vilji sjúklingsins að hafna upplýsingum og sé hann ekki haldinn skaðlegum ranghugmyndum um eðli sjúk- dómsins eða aðgerðarinnar, er engin ástæða til þess að halda að honum vitn- eskju sem hann vill ekki fá og er ekki nauð- synleg forsenda þess að hann geti tekið ábyrgð á sjúkdómi sínum og bata. Tvíeggjuð vitneskja En það er önnur og erfiðari spurning hvort fagmaður megi ákveða sjálfur að upplýsa ekki vegna þess að það geti strítt gegn hagsmunum sjúklingsins. Hér verður að fara afar varlega því þetta eru hin hefð- bundnu rök fyrir hinni þöglu forræðis- hyggju. Eg held að það geti verið réttlætan- legt að segja sjúklingi ekki satt um ástand sitt ef sýnt er að það yrði til þess eins að honum versnaði verulega og lífi hans væri stefnt í hættu. Þetta eru þó afar sérstök til- vik þar sem sannleikurinn víkur fyrir því að sjúklingurinn eigi sér framtíð og þetta væri því metið alfarið á forsendum sjúkl- ingsins sjálfs. Einnig eru tilvik þar sem fara verður með sérstakri gát þegar niðurstöður sjúk- dómsgreiningar eru kynntar. Sérstaklega á þetta við þegar umdeilanlegt er hvernig flokka ber tiltekin sjúkdómseinkenni. Það er þungur „dómur" sem í því getur falist að fá tiltekna sjúkdómsgreiningu, svo sem „Alzheimer" sem engin lækning er við. Læknar verða því að vera mjög á varðbergi gagnvart því að fullyrða ekki meira en það sem þeir vita. Þetta er því fremur spurning um aðgæslu en sannsögli, því hið sanna í málinu hefur ekki komið fram. Vart þarf að taka fram að sé sjúklingur of veikur til þess að meðtaka upplýsingar, til dæmis í bráðatilvikum, eða vanhæfur af einhverjum öðrum ástæðum til þess að skilja þær, á krafan um upplýst samþykki sjúkiings ekki við. í þeim tilvikum getur þó þurft að gera slíka kröfu til aðstandenda sjúklingsins og vekur það upp sérstakar spurningar sem ekki er tök á að ræða hér. Sjúklingurinn sem manneskja I þessari grein hef ég fært rök fyrir því að upplýsa sjúklinga sem best um sjúkdóms- ástand, meðferðarúrræði og batahorfur. Með því móti virða heilbrigðisstéttir sjúkl- inginn sem manneskju og gera honum kleift að taka ábyrgan þátt í eigin meðferð. Til að tryggja að sjúklingar skilji þær upp- lýsingar sem þeim eru veittar verður fag- fólk að ræða við þá. Slíkar samræður byggja líka upp gagnkvæmt traust sem skiptir sköpum fyrir meðferðarsambandið. Þótt það ætti að vera regla að upplýsa sjúklinga hef ég bent á eftirfarandi undan- tekningar: 1. í bráðatilvikum þegar engin tök eru á að ræða við sjúklinga. 2. Þegar sjúklingur er óhæfur um að taka ákvörðun. 3. Þegar sjúklingur hefur réttmæta ástæðu til að hafna upplýsingum. 4. í sérstökum tilvikum þegar upplýsingar gætu ógnað lífshagsmunum sjúklings. Dr. Vilhjálmur Arnason er dósent í heim- speki við heimspekideild Háskóla íslands. Grein þessi var áður birt í Curator, blaði hjúkrunar- fræðinema við Háskóla íslands. Þar er heim- Udaskrá. Áður hafa birst greinar eftir Vilhjálm í Heil- brigðismálum um kostnað við heilbrigðisþjón- ustu (1/1993), frelsi einstaklinga (2/1993) og hamingjuna (2/1995). Þess eru dæmi að sjúklingar geri sér alrang- ar hugmyndir um sjúkdóma. Þegar svo er, koma almennar upplýsingar oft ekki að gagni því sjúklingur- inn hvorki sér né heyrir nokk- uð annað en það sem kemur heim og saman við hans eigin ranghugmyndir. HEILBRIGÐISMÁL 1/1996 25

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.