Heilbrigðismál - 01.03.1996, Síða 30
Þessar rarursóknir hafa því sann-
að að kólesteróllækkandi meðferð,
mataræði og lyfjameðferð, geta
dregið verulega úr áhættu á krans-
æðasjúkdómi og afleiðingum hans.
Þessi lyf eru hins vegar dýr en séu
þau gefin einstaklingum sem þeirra
þurfa með hefur verið reiknað út
að þau svara mjög vel kostnaði og
bæta horfur þessara sjúklinga veru-
lega. Lyf þessi hafa reynst örugg og
án mikilla fylgikvilla.
Þrátt fyrir þessi virku kólesteról-
lækkandi lyf er mataræði horn-
steinn í meðferð við hárri blóðfitu.
Sýnt hefur verið fram á að mestu
máli skiptir að takmarka neyslu á
feitum dýraafurðum, svokallaðri
mettaðri dýrafitu, t.d. úr feitum
mjólkur- og kjötafurðum. í staðinn
geta menn leyft sér að borða meira
af mörgum landbúnaðarafurðum.
Fiskafurðir innihalda hins vegar
fjölómettaðar fitusýru sem lækka
fremur kólesteról í blóði og eru
því ákjósanlegar. Megrun hefur
einnig sfn áhrif til lækkunar kólest-
eróls.
Breytingar á íslensku mataræði
síðustu tuttugu árin hafa leitt til
þess að meðalgildi kólesteróls hér á
landi hefur lækkað um 7-10%. Þetta
hefur átt sinn þátt í því að krans-
æðasjúkdómar eru á undanhaldi.
Þrátt fyrir það er fituneysla Islend-
inga enn mikil og kólesterólgildi
hérlendis er ennþá of hátt og krans-
æðasjúkdómar og aðrir æðasjúk-
dómar eru vissulega ennþá stórt
vandamál.
Kólesterólgildi einstaklingsins
hækkar oft verulega eftir þrítugs-
aldur, væntanlega tengt þyngdar-
aukingu á þessu aldursskeiði. Því
er margt sem bendir til að æskilegt
sé að mæla kólesterólgildið um þrí-
tugt þannig að unnt sé að gefa ráð-
leggingar verðandi mataræði o.fl.
Ef sterk ættarsaga er um háa blóð-
fitu eða kransæðasjúkdóma getur
vissulega verið ástæða til að mæla
það fyrr.
Gunnar Sigurðsson, dr. med., er yf-
irlæknir lyflækningadeildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur í Fossvogi og prófessor við
læknadeild Háskóla íslands. Aður hafa
birst greinar eftir Gunnar í Heilbrigð-
ismálum (1/1984 bls. 29-33, 4/1985 bls.
13 og 2/1995 bls. 8).
Kvíðaköst
Hvað er að gerast?
Þú ert að stíga inn í lyftu og allt í
einu fer hjartað að slá með ógnar-
hraða, þig verkjar í brjóstið, það
slær út köldum svita og þér finnst
eins og lyftan sé að hrapa. Hvað er
að gerast?
Þú ert að aka heim frá matvöru-
versluninni. Allt í einu er eins og
þú sért að missa stjórn á öllu. Heit-
ur straumur fer um þig, allt er í
þoku, þú veist varla hvar þú ert og
þér finnst eins og þú sér að deyja.
Hvað er að gerast?
Það sem er að gerast er að þú
hefur fengið kvíðakast, stjórnlaus-
an kvíða við venjulegar, hættulaus-
ar kringumstæður. Slíkt kvíðakast
getur verið merki um kvíðasjúk-
dóm sem stundum er kallaður
felmtursröskun.
Hvað er felmtursröskun ?
Felmtursröskun er að fá endur-
tekin kvíðaköst og vera með við-
Kvíðaköst
varandi ótta við að fá slíkt kast.
Reynt er að útiloka aðrar sjúk-
dómsgreiningar áður en felmturs-
röskun er greind. í kvíðakasti koma
fram að minnsta kosti fjögur eftir-
farandi einkenna:
• Þungur eða hraður hjartsláttur.
• Sviti, yfirliðakennd.
• Skjálfti.
• Mæði eða köfnunartilfinning.
• Kökkur í hálsi.
• Verkur eða óþægindi i brjósti.
• Ógleði eða óþægindi í kviði.
• Svimi eða óstöðugleiki.
• Óraunveruleikakennd.
• Hræðsla við að missa stjórn á sér
eða brjálast.
• Ótti við að deyja.
• Dofi.
• Hita- eða kuldahrollur.
Allir geta fengið kvíðakast.
Stundum má rekja orsakir þeirra til
truflana í efnaskiptum eða horm-
ónastarfsemi, til áfengis- eða lyfja-
notkunar eða til álags og sérstakra
Einkenni fólks með góða geðheilsu
1. Það hefur jákvæðar tilfinn-
ingar gagnvart sjálfu sér. Það er
ekki ofurliði borið af tilfinning-
um sínum, svo sem kvíða, reiði,
ást, afbrýðisemi, sektarkennd
eða áhyggjum. Það getur tekið
vonbrigðum lífsins. Viðhorf
þess einkennast af umburðar-
lyndi, ákveðnu léttlyndi og eig-
inleika tii að gera grín að sjálf-
um sér. Það vanmetur hvorki né
ofmetur færni sína, viðurkennir
eigin ófullkomleika og hefur
sjálfsvirðingu. Því finnst flestar
aðstæður viðráðanlegar og það
hefur ánægju af daglegum at-
höfnum.
2. Því líður vel innan um
annað fólk. Það getur veitt ást-
úð og tekið tillit til annarra. Það
bindur varanleg sambönd, því
líkar vel við aðra, það treystir
þeim og býst við því sama af
þeim. Það virðir margbreyti-
leika mannlífsins, misnotar ekki
aðra né lætur aðra misnota sig,
hefur tilfinningu fyrir því að til-
heyra ákveðnum hópi og finnur
til ábyrgðar gagnvart með-
bræðrum sínum.
3. Það getur tekist á við kröf-
ur lífsins. Það bregst strax við
vandamálum sínum, viður-
kennir ábyrgð sína, mótar um-
hverfi sitt ef það er mögulegt en
lagar sig að því ef það er nauð-
synlegt. Það getur skipulagt
framtíðina og hræðist hana
ekki. Það fagnar nýjum hug-
myndum og nýrri reynslu. Það
notar hæfileika sína, setur sér
raunhæf markmið, getur tekið
eigin ákvarðanir og er ánægt
með að gera sitt besta.
Ur fræðsluriti sem Rauði kross
íslands gafút í samvinnu við Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
30 HEILBRIGÐISMÁL 1/1996