Heilbrigðismál - 01.03.1996, Page 31

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Page 31
Kvíðaköst I I Kvíðaköst aðstæðna. Greina þarf á milli kvíðakasts og einkenna hjarta- eða lungnasjúkdóms sem geta lýst sér á svipaðan hátt. Hvað er fælni? Fælni er ótti við aðstæður eða hluti sem viðkomandi gerir sér grein fyrir að er að meira eða minna leyti óraunhæfur og óviðeig- andi. Þeir sem eru fælnir fá oft kvíðaköst þegar þeir komast ekki hjá því sem þeir fælast. Fælni má skipta í þrjá flokka: Einfóld fælni. Óttinn er þá bundinn við afmarkaðar aðstæður eða hlut, svo sem að lenda í umferðarhnút, fara í lyftu, mýs, o.s.frv. Félagsfælni. Óttinn er við að vekja athygli, verða fyrir gagnrýni eða verða sér til minnkunar. Víöáttufælni (á grísku agoraphobia eða ótti við markaðstorg). Óttinn er við að komast ekki í burtu úr ein- hverjum kringumstæðum, sérstak- lega þar sem maður er innan um annað fólk, t.d. í strætisvagni eða í stórmarkaði. Oft er jafnframt ótti við að fá kvíðakast við þessar að- stæður. Fælni er oft langvarandi og getur valdið verulegri vanlíðan og fötlun. Þunglyndi er algengt hjá þeim sem eru fælnir og þeim er hættara en öðrum að misnota áfengi. Sumir eru svo illa haldnir af fælni að þeir geta ekki farið neitt nema með hjálp eða í fylgd einhverra sem þeir treysta. Að vera hræddnr við óttann! Flestir þeirra sem eru með fælni eða kvíðaköst óttast að fá slæman kvíða eða kvíðakast og hafa áhyggjur af hvenær slíkt geti gerst. Oft fara þeir að varast þær aðstæð- ur sem þeim finnst að tengist kvíðaköstum. Þetta getur leitt til mikillar takmörkunar á lífsháttum þeirra. Hve margir? Það eru margir sem þjást af kvíða, fælni eða kvíðaköstum. Um sex af hverju hundraði hafa haft víðáttufælni, um þrír af hundraði verið félagsfælnir og um tveir af hundraði með felmtursröskun. Þessir og aðrir kvíðasjúkdómar eru algengari meðal kvenna en karla. Þeir byrja í mörgum tilvikum um tvítugsaldur og verða oft langvinn- ir og til mikilla vandræða sé ekki að gert. Hverjar eru orsakir kvíðakasta? Enginn veit með neinni vissu hverjar orsakir kvíðakasta, felmt- ursröskunar eða annarra kvíðasjúk- dóma eru. Tilhneiging til þeirra er líklega meðfædd og arfgeng en áföll og kringumstæður ráða hvort kvíðasjúkdómur kemur fram og þá hvenær. Er hægt að lækna felmtursröskun og fælni? Já, það er alltaf hægt að gera mikið til bóta. Nota má lyf og sál- fræðilega meðferð til að draga úr kvíða og koma í veg fyrir kvíðaköst. I sálfræðilegri meðferð er hjálpað til að nálgast og horfast í augu við það sem veldur ótta, hugsa um það af skynsemi, forðast það ekki að nauðsynjalausu og gera það sem hægt er til að venjast því. Þetta þarf að gera í smáum skrefum og með góðri aðstoð og tekst þá oft vel. Með lyfjum má draga úr kvíða og koma í veg fyrir kvíðaköst með góðum árangri. Svokölluð kvíða- stillandi lyf eru oftast notuð, en þunglyndislyf og fleiri lyf geta einnig komið að góðu gagni í vissum tilvikum. Með meðferð, sál- fræðilegri og líffræðilegri, tekst allt- af að bæta líðan mikið og oft að draga mjög mikið úr þeirri hömlun er sjúkdómurinn hefur valdið. Ur nýju fræðsluriti frá Geðverndar- félagi íslands. Birt með leyfi frá félag- inu. HEILBRIGÐISMÁL 1/1996 31

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.