Heilbrigðismál - 01.03.1996, Page 34

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Page 34
Tómas J< Ættum að efla rannsóknir á riðu og gæta áfram varúðar við innflutning á landbúnaðarafurðum segir Guðmundur Georgsson prófessor um fár í kindum, kúm og mönnum Vísindamenn á Tilraunastöð Háskóla íslands að Keldum eru þekktir víða um heim fyrir rannsóknir á riðu í sauðfé og á öðrum hæggengum veirusjúkdóm- um. Þeir hafa því fylgst vel með umræðum um kúafár- ið í Bretlandi í sumar og hugsanleg tengsl þess við sjúkdóm sem leggst á menn. „Riða í sauðfé og Creutzfeldt-Jakob sjúkdómur í mönnum eiga ýmislegt sameiginlegt," segir Guðmund- ur Georgsson læknir, en hann er prófessor við Háskóla Islands og forstöðumaður Tilraunastöðvarinnar að Keldum. „Þetta eru hvort tveggja heilasjúkdómar, meðgöngutíminn er langur og oft mældur í árum í bú- fé og áratugum í mönnum. Eftir að einkenni koma fram er gangur þessara sjúkdóma hraður, þeir leiða ávallt til dauða og megindrættir vefjaskemmda eru nánast eins. Síðast en ekki síst er smitefnið náskylt. Smitefnið, sem hefur verið nefnt príon, er sennilega eingöngu gert út prótíni, hefur enga kjarnsýru og er því fráþrugðið öllum þekktum örverum." Sjúkdómur- inn kuru, sem var bundinn við ættflokk í Nýju-Gíneu, hefur svipuð einkenni, en hann er að hverfa vegna ráð- stafana sem gerðar voru eftir að mönnum var ljóst hvernig smit barst. En er löngu vitað að riða geti borist úr kindum í kýr og valdið síðan sjúkdómum í mönnum? „Það var fyrir ríflega áratug að sýnt þótti að smitefni sauðfjárriðu hefðu hreiðrað um sig í heilabúi kúa og breytt þessum sauðmeinlausu skepnum í óð dýr. Sjúkdómurinn var nefndur mad cow discase, eða kúafár," segir Guðmund- ur. „Fljótlega vaknaði sú spurning hvort menn gætu smitast. Aldrei hefur fundist nein vísbending, hvorki hér á landi né erlendis, um að riða í sauðfé geti borist í fólk. Ef afurðir úr smituðu sauðfé eru notaðar sem fóð- ur fyrir nautgripi, eins og tíðkaðist til skamms tíma í Bretlandi, en ekki hér, eru yfirgnæfandi líkur á að smit geti borist í kýr og nú er talið hugsanlegt að þaðan geti þorist smit í menn." Guðmundur segir að þessi tengsl séu ekki sönnuð en grunsemdir hafi vaknað þegar tíu tilfelli af Creutzfeldt- Jakob sjúkdómi hafi greinst í Bretlandi á tíu mánuðum á árunum 1994-95. Margir sjúklinganna voru ungir, milli tvítugs og fertugs, en yfirleitt greinist sjúkdómur- inn í fólki sem er eldra en sextugt. „Á grundvelli rann- sókna sem gerðar voru í Edinborg orðaði breski heil- brigðisráðherrann hugsanleg tengsl kúariðu og þessa sjúkdóms á þingi í vor og fjölmiðlar gerðu mikið úr málinu með þeim afleiðingum sem flestum eru kunn- ar," segir Guðmundur. „Þetta sýnir hve upplýsingar er varða heilsufar fólks eru vandmeðfarnar og segja má að umræðan sé úr takti við það hve þetta er sjaldgæfur sjúkdómur." Guðmundur leggur áherslu á að þessi umræddu tilfelli séu sérstakt afbrigði sjúkdómsins með aðra hegðun en algengust er. Hve algengur er Creutzfeldt-Jakob sjúkdómur hér á landi? „Á tímabilinu frá 1960 til 1995 greindust aðeins þrjú tilfelli, en það svarar til að árleg tíðni sé um það bil 0,4 á hverja milljón íbúa, sem er í lægri mörkum þess sem víðast er í heiminum," segir Guðmundur. Bú- ast má við að læknar fylgist betur en áður með ein- kennum sjúkdómsins, en ólíklegt er að þeim hafi sést yfir mörg tilfelli hérlendis. „Öldum saman höfum við nýtt það sem ætt er af sauðkindinni án þess að verða meint af. Engin merki um riðu hafa fundist í íslenskum kúm. Kjötneysla ætti því ekki að vera áhættuþáttur hér." „Við verðum þó að fylgjast grannt með framvindu mála ytra og búfjársjúkdómum hérlendis," segir Guð- mundur Georgsson. Okkur hefur orðið vel ágengt í að berjast gegn riðu í sauðfé og á þessu ári hefur hún að- eins greinst í þrem hjörðum, samanborið við tæplega sjötíu hjarðir fyrir áratug. „Þetta ætti að verða okkur hvatning til að fylgja fast eftir áætlun sem hefur það að markmiði að útrýma riðu hérlendis. Það er raunhæft markmið," segir Guðmundur, „og gæti átt sinn þátt í að gera íslenskar landbúnaðarafurðir eftirsóttar." Hann telur mikilsvert að efla rannsóknir á riðu í sauðfé. Nú er verið að greina arfgerðir riðu og komið hefur í ljós að sumir stofnar eru með meiri mótstöðu en aðrir. „Við verðum að nýta okkur þá tækni sem til er og hugsan- lega getur komið til álita síðar meir að erfðabreyta fé. Einnig er rétt að gæta hér eftir sem hingað til mikillar varúðar við innflutning á landbúnaðarafurðum og bú- peningi á fæti," segir Guðmundur Georgsson að lok- um. -jr. 34 HEILBRIGÐISMÁL 1/1996

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.