Heilbrigðismál - 01.10.2005, Qupperneq 5
Halldór Ásgrímsson var einn af þeim fyrstu sem
gerðust velunnarar Krabbameinsfélagsins þegar
samstarf félagsins og KB banka um slíka söfnun
hófst vorið 2004.
MARGIR VIUA LEGGJA
KRABBAMEINSFÉLAGINU UÐ
Alltfrá stofnun fyrstu Krabbameinsfélaganna hér á
landi fyrir meira en hálfri öld hefur einhvers konar
fjáröflun verið snar þáttur í starfi þeirra. Fyrstu árin
var meðal annars safnað fyrir lækningatækjum en í
seinni tíð hefur megináhersla verið lögð á fjáraflanir til
þess að Krabbameinsfélagið geti tekist á við vaxandi
verkefni. Hér eru nefnd nokkur dæmi.
HAPPDRÆTTI Krabbameinsfélagsins hefur síðustu fimmtíu árin verið
ein veigamesta tekjulind krabbameinssamtakanna og stuðlað mjög
að uppbyggingu þeirra og þróun. Dregið er tvisvar á ári, 17. júní og
24. desember. I sumarhappdrættinu eru miðar sendir til karla en I
jólahappdrættinu til kvenna.
Krabbameinsfélag Islands og KB banki hafa í hálft annað ár haft
samstarf um söfnun velunnara fyrir félagið undir heitinu „Þitt framlag
skiptir máli". Viðskiptavinum KB banka og öðrum býðst að bætast í hóp
þeirra sem nú þegar styrkja félagið með reglulegu framlagi og leggur KB
banki fram 500 krónur fyrir hvern þann sem bætist við. Velunnararnir
eru nú orðnir rúmlega þrjú þúsund. Bankinn hefur verið aðalstyrktaraðili
Krabbameinsfélagsins síðan 1998 og lagt félaginu lið með margvíslegum
hætti.
I rúm tvö ár hefur Friendtex á Islandi stutt baráttuna gegn krabbameini
á þann hátt að um fimmtfu sölufulltrúar Friendtex hafa boðið viðskipta-
vinum sínum að styrkja Krabbameinsfélagið með því að kaupa litla
bangsa, en allur ágóðinn hefur runnið til félagsins. Viðtökur hafa
verið mjög góðar hér á landi, eins og á öðrum sölusvæðum Friendtex
' Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Belgíu, Þýskalandi og Hollandi.
Um síðustu áramót höfðu um 75 þúsund bangsar verið seldir í þessum
löndum. Friendtex á Islandi hefur þegar styrkt Krabbameinsfélagið um
meira en eina milljón króna.
Krabbameinsfélag (slands og Olíufélagið ehf. tóku í sumar upp
samstarf um að bjóða tryggðarbönd merkt Krabbameinsfélaginu með
áletruninni www.krabbameinsfelagid.is til sölu á öllum benslnstöðvum
Esso. Allur ágóði rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins. Upphafsmaður
armbandanna er Lance Armstrong, sem hefur sigrað sjö sinnum í röð í
frönsku hjólreiðakeppninni Tour de France eftir að hann sigraðist sjálfur
á krabbameini. Tryggðarbönd Krabbameinsfélagsins hafa verið fáanleg I
sex litum, gulum, rauðum, grænum, bláum, svörtum, og hvítum og kosta
500 krónur. I október bætast bleik bönd við, í tilefni af árveknisátaki um
brjóstakrabbamein. Markmiðið er að selja alls sex þúsund bönd.
Hin árlega „merkjasala" Krabbameinsfélagsins var fyrstu dagana í
september. Að þessu sinni voru seldir pennar og lyklakippur til styrktar
starfi aðildarfélaga Krabbameinsfélags Islands, en slík sala er orðin árviss.
Selt var við verslanir og gengið í hús þar sem því var við komið. Allur
ágóði rennur til aðildarfélaga Krabbameinsfélags Islands en það eru
svæðisbundin krabbameinsfélög og stuðningshópar sem stofnaðir hafa
verið til að sinna fræðslu og félagslegri þjónustu við þá sem hafa fengið
krabbamein.
Síðast en ekki síst má nefna að ár hvert berast félaginu ein eða fleiri
erfðagjafir og verður sagt frá nokkrum nýjum gjöfum á næstunni. JR.
5