Heilbrigðismál - 01.10.2005, Blaðsíða 10
Guðmundur Ó. Ingvarsson - Sigfús Austfjörð
VÖNDUÐ BÓK Á
VÆGU VERÐI
í TILEFNl AF 50 ÁRA afmæli Krabbameins-
skrár Krabbameinsfélags Islands á síðasta ári
hefur félagið gefið út vandaða og veglega bók
sem nefnist „Krabbamein á Islandi". Þetta er
140 síðna litprentuð bók og sú fyrsta sem fjallar
um krabbamein á fræðilegan hátt á íslensku.
Ritstjórar eru Jón Gunnlaugur Jónasson læknir
og Laufey Tryggvadóttir faraldsfræðingur.
I bókinni eru upplýsingar um mismunandi
tegundir krabbameins og þær breytingar sem
orðið hafa á tíðni þessa sjúkdóms síðustu
hálfa öld, um meðferð, einkenni og horfur,
auk upplýsinga um dreifingu krabbameins
eftir búsetu, aldri og kyni. Bókin á að nýtast
140 síðna litprentuð
bók og sú fyrsta sem
fjallar um krabbamein
á fræðilegan hátt
almenningi, fjölmiðlafólki, nemendum, kennur-
um, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru
heilbrigðisstarfsfólki.
Ýmsir aðilar studdu útgáfu bókarinnar, m.a.
ríkisstjórnin. Bókin „Krabbamein á fslandi" hefur
verið seld á 3.490 krónur en fæst á sérstöku
tilboði til áramóta, aðeins 1.990 krónur. Hægt
er að panta bókina hjá Krabbameinsfélaginu í
síma 540 1900 eða með þvl að senda tölvupóst
á netfangið krabb@krabb.is.
.Raufarhöfn
Húsavík
Vopnafjörður!
rammstangi
Egilsstaðir5
Reyðarfjörður
Ólafsvík
jupivogur
larnes
Reykjavík
Kirkjubæjan
klaustur^y'
Strandvegagangan
2006 Egilsstaðir-Reykjavík -
50 km
Strandvegagangan
2005 Reykjavik-Egilsstaðir
ÆTLAR AÐ GANGA
3.100 KÍLÓMETRA
Jón Eggert staddur framan við Lómagnúp í
júlí, en þá hafði hann lagt um fimm hundruð
kílómetra að baki.
ÞEGAR JÓN EGGERT GUÐMUNDSSON,
37 ára líffræðingur og kerfisfræðingur, kom til
Egilsstaða 23. júli i sumar hafði hann gengið
eftir strandvegum Suðvesturlands, Suðurlands
og Austfjarða í rúman mánuð, að meðaltali 25
kílómetra á dag. Hann lagði upp í gönguna
frá höfuðborgarsvæðinu og ætlar sér að
loka hringnum á næsta ári. Fyrri áfanginn
var 986 kílómetrar en sá seinni verður 2.114
kílómetrar, um Austurland, Norðausturland,
Norðurland, Vestfirði og Vesturland. Samtals
eru þetta 3.100 kílómetrar. Gangan, sem nefnd
er Strandvegagangan, er til styrktar Krabba-
meinsfélaginu.
Jón Eggert hefur lengi átt sér þann draum
að ganga sem stærstan hring í kringum landið
og undirbjó sig m.a. með því að ganga upp á
Esju nokkrum sinnum í viku. Aðspurður um
reynsluna af fyrri áfanganum í sumar sagði
hann að sér hefði gengið mjög vel, hann hefði
verið mjög heppinn með veður og aðeins einu
sinni hefði hann þurft að stytta dagleiðina.
Áreynslan hafði þau áhrif á Jón að hann léttist
um nær tuttugu kílógrömm. Fulltrúar frá
krabbameinsfélögunum á svæðinu sem hann
fór um tóku alls staðar á móti honum og margir
gengu stuttan spöl með honum. Ýmsir lögðu
þessu framtaki lið, m.a. Síminn sem gaf Krabba-
meinsfélaginu NMT-farsíma til afnota fyrir Jón.
Hann er þegar farinn að undirbúa síðari
áfangann og ætlar að leggja af stað snemma
í maí á næsta ári og Ijúka göngunni um miðjan
ágúst. JR
10