Heilbrigðismál - 01.10.2005, Síða 16

Heilbrigðismál - 01.10.2005, Síða 16
Auður Vésteinsdóttir kennari og veflistarmaður fékk brjóstakrabbamein tvisvar á tveimur árum Guðrún Þórðardóttir leikkona upplifði brjóstakrabbamein sem verkefni sem lífið færði henni „Skömmu áður en ég greindist með brjósta- krabbamein vorið 2000 dreymdi mig afar sérstakan draum. Þegar ég vaknaði streymdi um mig slík kærleikstilfinning að ekki er nokkur leið að lýsa henni. Þessi draumur, auk margra annarra, gerði það að verkum að ég gat sett allar mínar áhyggjur og ótta í hendur Guðs. Ég leit strax á þetta sem verkefni sem ég þyrfti að leysa og hafði alltaf þá trú að þetta yrði í lagi. Upp blossaði mikill viljastyrkur og ég var staðráðin í að breyta ýmsu í lífi mínu og láta þetta ekki buga mig." Guðrún Þórðardóttir leikkona segir að fyrst eftir greininguna hafi henni fundist þetta frekar óraunverulegt, hún fullfrísk manneskjan komin með krabbamein. „Ég var heppin að ekki þurfti að fjarlægja brjóstið, aðeins skera burt æxlið. Við tók lyfjameðferð og síðan geislar. I fyrstu ætlaði ég alls ekki í lyfjameðferð, heldur taka á þessu með óhefðbundnum leiðum. Sem betur fer skipti ég um skoðun og sé ekki eftir því. Tímabilið sem framundan var reyndist afar sérstakt og jafnframt spennandi. Ég ákvað að VERKIN ENDURSPEGLUÐU VEIKINDIN „Mesta áfallið (kjölfar sjúkdómsins var að missa hárið. Það var vitanlega ástæðulaust því hárið fékk ég aftur en ekki brjóstið." Svo segir Auður Vésteinsdóttir kennari og veflistarmaður sem starfar m.a. sem safnakennari í Hafnarborg. Auður greindist í tvígang með brjóstakrabba- mein í sama brjóstinu árin 1997 og 1998. „Ég áttaði mig ekki á því fyrr en eftir á að eflaust var ég að vinna mig frá sjúkdómnum með sýningunni Túnið í sveitinni, sem ég hélt meðan ég var í lyfjameðferðinni. Verkin fjölluðu öll um það þegar grasið vex að vori og fellur að hausti. Nöfnin á verkunum endurspegluðu ómeðvitað þá þrautagöngu sem ég háði í veikindunum. Þau hétu m.a. Skurður, Slegið, Hálmstrá og Hættu að slá. I kjölfar hármissisins vaknaði vitund mín og aðdáun á hári og gróskumiklum loðnum fyrirbærum. Á sýningunni Farvegir 2003 endurspegluðu verkin þessa aðdáun en þar uppgötvaði ég eiginleika hrosshársins." „Þar sem lyfjameðferðin fór illa í mig varð ég að gera hlé á myndmenntakennslunni. Það var alveg sama hvort ég lá, sat eða stóð, mér leið eins og ég væri sjóveik flesta daga. Stund kom þó á milli stríða og hún var vel nýtt til listsköpunar. Ekki skánaði líkamlegt ástand eftir meira en mánaðarlanga geislameðferð. Ég harkaði af mér og dvaldi sumarlangt í Þýskalandi í gestavinnustofu, í boði Hafnarfjarðarbæjar og Cuxhaven. Þar leið mér eins og ég væri stöðugt með flensu. Haustið eftir uppgötvaðist annað æxli í sama brjósti og var það fremur illvígt því að æxlið var hraðvaxandi. Ég gat ekki hugsað mér að ganga í gegnum aðra lyfjameðferð en um annað var ekki að ræða, lífið lá við. Seinni meðferðin fór mjög illa með mig, ég var nánast rúmliggjandi í lok hennar." Auði fannst hún eldast um tíu ár á þeim þrjátíu mánuðum sem veikindi herjuðu á hana. „Lfkamlegt og andlegt þrek var á þrotum en með þrotlausri endurhæfingu, góðu mataræði og góðri hreyfingu kom þrekið og mátturinn smátt og smátt aftur. Nú stend ég vörð um heilsuna og lofa hvern dag. Ég var mjög gjörn á að skipuleggja allt langt fram í tímann en í veikindunum var það ekki hægt. Áherslurnar hafa því breyst. Núna nýt ég betur hvers dags og samskipta við gott fólk. Jákvæð afstaða er það sem skiptir gríðarlegu máli til að öðlast góða heilsu, andlega og líkamlega." ÞÞ. EG UPPGOTVAÐI MINN INNRI STYRK setja sjálfa mig í forgang næstu mánuðina, lagði allt sem ég var að gera til hliðar og einbeitti mér að nýja verkefninu, jákvæð og bjartsýn. Ég gjörbreytti mataræðinu, tók út allar mjólkurvörur, kjöt, sykur og bara alla óhollustu. (staðinn borðaði ég meira lífrænt fæði, soyjavörur, mikið af ávöxtum, grænmeti, hnetum, fræjum og svo tók ég ýmis bætiefni. Ég lagði stund á Rayja-yoga, en þar er unnið með andlega þáttinn. Ég fór jöfnum höndum I nudd, heilun og höfuðbeina- og spjaldhryggjar- meðferð. Ég gerði eingöngu það sem var gefandi og skemmtilegt og var mjög næm á það sem gerðist í kringum mig. Ég skynjaði tilfinningar fólks vel og áttaði mig á hversu góða vini ég á. Og fjölskyldan stóð með mér sem klettur. Svona verkefni er fyrir alla fjölskylduna að takast á við." Guðrún segist hafa fengið svo margar guðsgjafir á tímabilinu að hún fór ( gegnum þetta allt af mikilli gleði. „Ég uppgötvaði minn innri styrk, lærði að elska sjálfa mig og skilja hismið frá kjarnanum. Ég er afar þakklát fyrir að vera heilbrigð og á lífi. Þetta var þroskandi og lærdómsríkt í tímabil í lífi mínu. Ráð min til kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein eru: Gerið allt strax, farið bæði í hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar, skoðið hugsanir og tilfinningar og breytið mataræðinu. Setjið ykkur sjálfar í forgang." 16

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.