Heilbrigðismál - 01.10.2005, Síða 17

Heilbrigðismál - 01.10.2005, Síða 17
Iðunn Geirsdóttir greindist með brjóstakrabbamein nokkrum mánuðum á eftir systur sinni O- 3 CD HEF EINSETT MER AÐ LIFA LÍFINU LIFANDI „Ég var í hlutverki aðstandanda þegar systir mín, sem býr í Svíþjóð, greindist með krabbamein i árslok 2002, 35 ára gömul. Óneitanlega kom dauðinn fyrst upp í hugann þvi hann er oft fylgifiskur þessa sjúkdóms." Iðunn Geirsdóttir, sem er 34 ára matvæla- fræðingur, segir að það hefði verið erfitt að vera aðstandandi í öðru landi. „1 kjölfar veikinda systur minnar dreif ég mig í myndatöku, jafnvel þótt ég væri þess fullviss að ekkert amaði að mér. Ómskoðun sýndi hins vegar hnút í brjóstinu og vefjasýni leiddu í Ijós að meinið var illkynja. Þá kom áfallið. Fótunum var kippt undan mér í einu vetfangi. Ég hafði val um að láta fjarlægja brjóstið eða fara í fleygskurð, sem ég og gerði. Allt gekk eins og í sögu, fólkið á Landspítalnum reyndist mér einstaklega vel svo ekki sé talað um fjölskylduna mína." „Nokkru síðar kom bakslagið því meinið reyndist útbreiddara í brjóstinu en áður var talið og læknarnir mæltu með að brjóstið yrði fjarlægt. Ég átti kost á að byggja það upp í sömu aðgerð með sílikonpúða. Það er svo einkennilegt hvað maður býr yfir miklum innri styrk þegar á reynir. Ég hafði í ráun meiri áhyggjur af mínum nánustu. Sjálf var ég tilbúin að taka því sem verða vildi. Þrátt fyrir að þetta hafi tekið á bæði líkamlega og andlega þá var ég eftir á að hyggja mjög heppin því ég þurfti hvorki að fara í gegnum geislameðferð né lyfjameðferð. Það var mér til happs að ég greindist snemma." Iðunn segir að það hefði aldrei hvarflað að sér að hún gæti fengið krabbamein því hún var stálslegin og lifði heilbrigðu lífi. „Mérskilst að í um 10% tilfella sé sjúkdómurinn erfðatengdur. Að öllum líkindum tilheyri ég þeim hópi því systir mín hefur fengið staðfest að hún beri í sér genið sem veldur sjúkdómnum, en amma mln og tvær föðursystur mínar fengu einnig sjúkdóminn. Eftir þessa reynslu geri ég mér grein fyrir því hversu mikilvægt það er að þekkja sinn eigin líkama og fara að ráðleggingum um reglubundna skoðun." Iðunn segir að vissulega leynist ákveðinn ótti innra með henni um að meinið taki sig upp aftur. „Það er þó langt í frá að óttinn stjórni lífi mínu. Maður horfir jákvæðum augum fram á við. Ég er á besta aldri, á yndislega fjölskyldu og hef einsett mér lifa lífinu lifandi." ÞÞ. Kristbjörg Þórhallsdóttir leiðsögumaður og fyrrum formaður Samhjálpar kvenna segir lífsviðhorf sitt hafa breyst eftir brjóstakrabbameinið „Ég fékk staðfestingu á sjúkdómnum klukkan ellefu að morgni, var komin upp á spítala klukkan tvö og eldsnemma næsta morgun fór ég í skurðaðgerð. Ekkert svigrúm gafst til að búa eiginmanninn eða syni okkar undir það sem framundan var." Kristbjörg Þórhallsdóttir, leiðsögumaður og formaður Samhjálpar kvenna í tæpa tvo áratugi, rifjar upp þennan afdrifaríka dag í llfi sínu fyrir aldarfjórðungi. Hún segist hafa botn- frosið þegar sjúkdómurinn var staðfestur og öll rökhugsun rokið út I veður og vind. „Ég fór I sjoppuna á spítalanum, keypti mér kók og settist sem lömuð á bekk. Þá var eins og ég losnaði úr líkamanum, lyftist upp og horfði á sjálfa mig pínulitla úr mikilli hæð. Á þessum árum var krabbamein aldrei til umræðu enda nátengt dauðanum. Hræðslan var svo mikil að ÉG HORFÐI Á SJÁLFA MIG PÍNULITLA tengdamóðir mín, sem var afburðagreind kona, þorði ekki að heimsækja mig á spítalann þvl hún var sannfærð um að ég væri við dauðans dyr." „( dag er öldin önnur því ef einhver greinist með brjóstakrabbamein fer af stað teymi sem hlúir sérstaklega að sjúklingi og fjölskyldu við- komandi. Og sjúklingurinn fær góða aðlögun fyrir aðgerðina. Nú eru einnig oft gerðir fleyg- skurðir, en I mínu tilviki var bara um brott- nám brjóstsins að ræða. Þá fengum við líka að vera á spítalanum I tlu til tólf daga vegna lyfjameðferðar en núna eru konur sendar heim eftir tvo til þrjá daga. Elín Finnbogadóttir hjá Samhjálp kvenna heimsótti mig á spltalann og var I reglulegu sambandi slðar." Kristbjörg segir að hún hafi sjálf opnað umræðuna um krabbamein meðal sinna nánustu þegar hún fór að braggast. „Vissulega breyttist llfsviðhorf mitt eftir veikindin og gildi vináttu og hjónabandsins fór að vega þyngra. Við hjónin höfðum safnað fyrir nýju parketi en ákváðum þess I stað að fara I fimm vikna ferð til Austurlanda." Sem ötull liðsmaður Samhjálpar kvenna veit Kristbjörg að brjóstakrabbamein fer ekki I manngreinarálit. „Það virðist ekki alltaf fara eftir lífsmynstri hvers og eins hvar þennan sjúkdóm ber niður né hver endalokin verða, en slfellt fleiri konur læknast. Það er gríðarlega mikilvægt að vekja von hjá konum þvl krabbamein er alls enginn dauðadómur." ÞÞ. 17

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.