Heilbrigðismál - 01.10.2005, Page 19

Heilbrigðismál - 01.10.2005, Page 19
það veit guð að ég hvet allar konur til að fara í skoðun eins oft og reglulega og kostur er. Hvort sem óttinn gerir vart við sig eða ekki er betra að taka allt út strax. Foreldrar Vigdísar, þau Sigrlður Eiríksdóttir og Finnbogi Rútur Þorvaldsson, voru meðal stofnenda Krabbameinsfélags Reykjavíkur árið 1949 og var mikið rætt um félagið heima hjá henni. „Öll umræðan heima situr enn föst í mér," segir Vigdís. „Það er með krabbameinið eins og sjómennskuna að varla er til sú fjölskylda á íslandi sem hefur ekki tengst áföllum í sambandi við sjóinn eða á minningar um einhvern sem hefur fengið krabbamein." Vigdís greindist með brjóstakrabbamein árið 1977, aðeins 47 ára gömul, þremur árum áður en hún var kjörin forseti fslands. „í Ijósi reynslunnar tel ég að allir eigi að lýsa sjúkdómseinkennum eða segja frá hvernig sjúkdómurinn gerir vart við sig. Það veit í raun enginn hvað er að gerast í líkamanum og þess vegna er svo mikilvægt að geta lært af öðrum. Ef ég hefði ekki lært það af góðri vinkonu minni hvernig hún uppgötvaði sitt brjóstakrabbamein er óvíst hvort ég hefði fundið mitt í tæka tíð. Hún uppgötvaði sitt mein vegna inndreginnar geirvörtu. Það síaðist ómeðvitað inn í minni mitt án þess að ég hugsaði sérstaklega um það. Þegar það sama henti mig seinna kom minnið mér til bjargar. Ég brást strax við og var nokkuð kröfuhörð við læknana, vildi komast strax að. Ég var svo lánsöm að það tókst að fjarlægja meinið. I þá daga voru engar sneiðingar, aðeins stórir skurðir. Ég fór í aðgerðina þann 1. febrúar 1977 og þann dag ár hvert þakka ég fyrir að vera á þeirri ferð í lífinu sem raun ber vitni." Telurðu að ótti við sjúkdóminn komi í veg f fyrir að konur fari í reglubundna skoðun? „Ég tel frekar að það sé sú fullvissa æskunnar sem dvelur svo lengi með manni. * Fullvissan sem endurspeglast í orðunum: Þetta kemur ekki fyrir mig. Æskan er svo grunlaus um að eitthvað geti komið fyrir. Það kemur fram í dirfsku eins og glannalegum akstri og annarri áhættu. Það veit guð að ég hvet allar konur til að fara í skoðun eins oft og reglulega og kostur er. Hvort sem óttinn gerir vart við sig eða ekki, er betra að taka allt út strax. Brjóstakrabbamein fer ekki í manngreinarálit en ég hvet alla til að forðast álag því það liggur í hlutarins eðli að álag hraðar sjúkdómsför." Vigdís varð verndari Krabbameinsfélags íslands árið 1986 og má segja að það hafi nánast verið sjálfgefið því hún talaði reglulega fyrir málstað félagsins, tók þátt I söfnunum og ræddi hispurslaust um krabbamein út frá eigin reynslu. „Ég hef alla tíð verið einarður liðsmaður Krabbameinsfélagsins, sit í heiðursráði þess, hef verið ötul að mæta á aðalfundi og kem fram fyrir hönd félagsins þegar þess gerist þörf. Þá gildir einu hvort um er að ræða söfnunarátak eða umræður til að efla sjálfsvitund fólks fyrir krabbameini. Það er svo brýnt að ná til hennar." Finnurðu meðvitað hvernig afstaða þín til lífsins breytist þegar aldurinn færist yfir? „Afstaðan til lífsins hefur ekki breyst svo mikið því ég tel mig vera sömu manneskju og ég var þegar ég var um fertugt og komin til einhvers þroska. Aftur á móti hef ég lært svo óendanlega mikið, hef mun breiðari sýn en áður. Skilningur minn fyrir lífinu hefur dýpkað og breikkað á þessari löngu leið og afstaða mín til allra mála byggist á því. Það er svo gaman að eldast því ég er búin að komast að svo mörgu sem mér yngra fólk á enn eftir að uppgötva." Margir sem ganga í gegnum erfið veikindi segjast þakklátir fyrir þá dýrmætu reynslu því hún hafi kennt þeim að forgangsraða. Erum við of upptekin af lífsgæðakapphlaupinu? „Lífsgæðakapphlaupið er ákaflega smitandi, eins og inflúensa. Þegar við forgangsröðum er það ekki bara fyrir okkur sjálf heldur líka fyrir þá sem okkur þykir vænt um. Þess vegna þurfum við að hafa sjúkdóma með I vitundinni. Ég finn alltaf mest til með ættingjum þeirra sem greinast. Ég tala nú ekki um foreldra sem þurfa að horfa upp á erfið veikindi barna sinna." styrk og von. Við vorum fyrst og fremst að ræða menningu þjóða, allt sem lýtur að lífskjörum og lífsháttum og það voru sérstakar umræður um aðstöðu kvenna í heiminum. Það er algjörlega óviðunandi, að konur í lýðræðislegum þjóðfélögum, skuli sí og æ gerðar að annars flokks þegnum með því að veita þeim ekki sömu laun fyrir sömu vinnu. Fjöldi kvenna lifir við ólíkar hefðir í mismunandi menningarheimum sem gera þær að óæðri verum. Því miður setur Gamla testamenntið konuna ekki í sama sess ÉG Á góðan vin sem spyr mig reglulega hvort ég ætli ekki að fara að setjast í helgan stein. Ég segi honum að koma með steininn. Hugsarðu stundum um dauðann? „Hver gerir það ekki? Það hafa svo margir farið á undan og við munum fyrr eða síðar ganga þessa leið. Öll höfum við þurft að fylgja til hinsta legsstaðar en ég efast um að dauðinn sé einhver endalok." Á dögunum var haldin réðstefna á íslandi til heiðurs Vigdísi með fjölmörgum ráðherrum Evrópu sem bera ábyrgð á menningarmálum. Skyldu fleiri dyr opnast fyrir konur út um allan heim í kjölfar ráðstefna sem fjalla um misrétti kynjanna? „Þessi ráðstefna var bæði sterk og stór. Það er svo mikilvægt að bjargarlausar konur víða um heim viti að verið sé að berjast fyrir rétti þeirra og málefnum. Það gefur þeim og karlmann en Kristur reyndi að upphefja konuna." Sérðu eftir einhverju sem þú hefur ekki gert um ævina? „Þau stórmál sem ég hef fengist við í lífinu og þurft að taka ákvörðun um hef ég gert meðvituð um að ef ég tæki ekki ákveðinni áskorun, myndi ég sjá eftir því alla ævi. Þegar ég sótti um starf leikhússtjóra hjá Leikfélagi Reykjavíkur taldi ég mig ekki nógu góða en ég vissi að ég sæi eftir því ef ég léti ekki slag standa. Það sama var upp á teningnum þegar mér var ýtt fram til að bjóða mig fram til forseta. Ég var afskaplega hikandi og efaðist um sjálfa mig en tók áskoruninni í stað þess að hopa." 19

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.